Sport

HM í dag: Erfitt kvöld með erkifífli
Það voru þyngsli í HM í dag eftir slaka frammistöðu strákanna okkar gegn Króatíu sem fer að líkindum langt með að senda þá heim.

KR verði að bregðast við: „Hann lifir ekki af úrslitakeppni“
Nimrod Hilliard er Bandaríkjamaðurinn í liði KR í Bónus-deildinni í körfubolta. Hann hefur glímt talsvert við meiðsli en hefur KR efni á því að vera að pæla í hvort að Nimrod verði heill út tímabilið?

Bjarni var kominn á lista hjá Icelandair: „Rotaðir frá fyrstu mínútu“
Stemningin og meðbyrinn sem var með íslenska landsliðinu á HM í handbolta hvarf snarlega með tapinu gegn Króatíu í gærkvöld. Fólk sem ætlaði að fljúga til Zagreb á 8-liða og jafnvel undanúrslitaleik hjá Íslandi heldur núna í veika von.

Sjáðu markið sem hefði bjargað Íslandi á HM
Eins og vonbrigðin yfir tapi Íslands gegn Króatíu í gærkvöld séu ekki nógu mikil þá nístir sjálfsagt inn að beini að jöfnunarmark Slóvena gegn Egyptum, sem hefði svo gott sem komið Íslandi inn í 8-liða úrslitin, skyldi ekki fá að standa í gær.

Ásgeir Örn: „Eigum okkur eiginlega engar málsbætur með þetta“
Ásgeir Örn Hallgrímsson fór yfir varnarleik íslenska karlalandsliðsins í handbolta í tapinu fyrir Króatíu, 32-26, í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar.

Joey Barton sparkaði í höfuð eiginkonu sinnar
Fótboltamaðurinn fyrrverandi, Joey Barton, ýtti eiginkonu sinni og sparkaði svo í höfuð hennar á heimili þeirra fyrir þremur árum.

Myndasyrpa frá svekkelsinu í Zagreb
Ísland tapaði fyrir heimaliði Króatíu, 32-26, í öðrum leik sínum í milliriðli 4 á heimsmeistaramótinu í handbolta karla í gær. Fyrir vikið eru möguleikar Íslendinga á að komast í átta liða úrslit orðnir ansi litlir.

Dagskráin í dag: Ísak og Valgeir í beinni
Fimm beinar útsendingar eru á dagskrá sportrása Stöðvar 2 í dag. Sýnt verður frá fótbolta, körfubolta, pílukasti og íshokkí.

Skýrsla Vals: Svartur Dagur í Zagreb
Það er einn Íslendingur sem á hrós skilið eftir þungt kvöld í Zagreb. Því miður er það Dagur Sigurðsson.

Hvernig kemst Ísland áfram?
Von íslenska karlalandsliðsins í handbolta á að komast í átta liða úrslit á HM er ansi veik eftir slæmt tap fyrir Króatíu í kvöld, 32-26. En hvað þarf að gerast til að Ísland komist upp úr milliriðli 4 og í átta liða úrslit?

Jón Axel og félagar spila til úrslita
Jón Axel Guðmundsson og félagar í San Pablo Burgos munu spila úrslitaleik á morgun í bikarkeppni neðri deilda Spánar. Það varð ljóst eftir 101-79 útisigur í undanúrslitum gegn Odilo Cartagena í kvöld.

Samfélagsmiðlar eftir tapið: „Ömurleg auglýsing fyrir McDonald‘s“
Landsliðsmenn Íslands voru verðlaunaðir með McDonald‘s hamborgurum eftir sigurinn í síðasta leik. Þeir eiga engar hamingjumáltíðir skilið í kvöld ef marka má Íslendinga sem tjáðu sig á samfélagsmiðlum um tapið slæma gegn Króatíu.

Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Hér varð hrun
Eftir að hafa unnið fyrstu fjóra leiki sína á HM á íslenska karlalandsliðið í handbolta allt í einu litla möguleika á að komast í átta liða úrslit eftir stórt tap fyrir Króatíu, 32-26, í Arena Zagreb í kvöld.

„Fyrri hálfleikurinn var alveg frábær“
„Við fengum rosa góða byrjun á leiknum, vörnin var alveg hrikalega sterk og markvarslan góð. Fengum ekkert hraðaupphlaup út úr því en náðum að komast í sóknirnar og klára þær ágætlega,“ sagði landsliðsþjálfari Króatíu, Dagur Sigurðsson, eftir sigurinn gegn Íslandi.

Logi Geirs: „Það er ótrúlegt að liðið sé komið í þessa stöðu“
Logi Geirsson var sleginn eins og fleiri Íslendingar eftir stóra tapið á móti Króatíu í kvöld. Hvernig er hægt að klúðra mótinu í einum hálfleik?

„Verðum bara að vera bjartsýnir og hafa trú“
„Þetta er ótrúlega svekkjandi,“ sagði Elliði Snær Viðarsson eftir tapið gegn Króatíu á HM í handbolta í kvöld. Hann heldur þó í bjartsýnina og von um sæti í 8-liða úrslitum.

Tölfræðin á móti Króatíu: Níu prósent markvarsla í fyrri hálfleik
Íslenska karlalandsliðið í handbolta fékk slæman skell á móti Króatíu í öðrum leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta. Liðið mátti ekki tapa með fjórum mörkum eða meira en skellurinn var stærri. Sex marka tap kippti íslenska liðinu harkalega niður á jörðina og hálfa leið út úr mótinu.

„Ég held að þeim hafi bara liðið vel allan tímann“
„Erfiður dagur. Við vorum bara ekki nægilega góðir,“ sagði landsliðsþjálfarinn Snorri Steinn Guðjónsson eftir sex marka tap gegn Króatíu. Hann segir liðið ekki hafa náð sama takti varnarlega og í síðustu tveimur leikjum, tapið muni síðan líklega kosta sæti í átta liða úrslitum.

„Gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera“
„Við vorum með allt klárt og gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum ekki að gera,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði í handbolta, hundóánægður eftir skelfilega útreið gegn Króatíu á HM í Zagreb í kvöld.

Uppgjörið: Keflavík - Valur 70-81 | Valur vann er meistararnir mættust
Bikarmeistarar Keflavíkur töpuðu með ellefu stigum gegn Íslandsmeisturum Vals í fimmtándu umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Bæði lið hafa verið í örlitlu brasi það sem af er móts og vonast til þess að rétta úr kútnum fyrir úrslitakeppnina. Eftir mikinn baráttuleik voru það Valur sem höfðu á endanum betur 70-81 og tóku sinn fjórða sigur í síðustu fimm leikjum.

Uppgjörið og viðtöl: Þór Þ. - ÍR 94-95 | Dramatískur sigur hjá gestunum
ÍR jafnaði Þór Þorlákshöfn að stigum með dramatískum eins stigs sigri sínum í leik liðanna í 15. umferð Bónus deildar karla í körfubolta í Icelandic Glacial-höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Lokatölur í Þorlákshöfn urðu 94-95 en það var Zarko Jukic sem tryggði ÍR-ingum sætan sigur með því að blaka boltanum ofan í rétt rúmri sekúndu fyrir leikslok.

Umfjöllun: Króatía - Ísland 32-26 | Hjálp Slóvenar! Við klúðruðum þessu
Eftir skelfilegt tap gegn Króatíu í Zagreb í kvöld veltur draumur Íslands um sæti í 8-liða úrslitum á HM á hjálp frá Slóveníu á sunnudaginn. Króatar voru átta mörkum yfir eftir ótrúlegan fyrri hálfleik, 20-12, og unnu að lokum 32:26.

Stjarnan réði ekki við hraðann á Selfossi
Selfoss tók á móti Stjörnunni í þrettándu umferð Olís deildar kvenna og vann fimm marka sigur. 27-22 urðu lokatölur eftir að Selfoss skoraði síðustu þrjú mörk leiksins.

Tveggja marka tap í toppslagnum
Inter tapaði 2-0 á útivelli gegn Juventus í toppslag ítölsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta.

Afskrifuð stjarna Króata óvænt með
Það vakti töluverða undrun í fjölmiðlaaðstöðunni í Zagreb þegar Domagoj Duvnjak, fyrirliði Króata, var skyndilega mættur til leiks gegn íslenska landsliðinu.

Okkar menn fengu ekki slóvenskan greiða
Egyptaland jafnaði Ísland að stigum í milliriðli 4 á HM í handbolta karla með sigri á Slóveníu, 26-25, í dag.

Einar Þorsteinn kemur inn í hópinn
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í handbolta, gerir eina breytingu á leikmannahópi liðsins fyrir leikinn gegn Króatíu í milliriðli 4 á heimsmeistaramótinu í kvöld.

ÍBV fær stóran og sterkan miðvörð
ÍBV heldur áfram að styrkja sig fyrir komandi átök í Bestu deildinni í fótbolta eftir að hafa unnið sér sæti þar á nýjan leik á síðustu leiktíð.

Sögulegur árangur Portúgals á HM
Portúgalar eru komnir áfram í 8-liða úrslit HM karla í handbolta í fyrsta sinn, eftir að hafa skellt grönnum sínum frá Spáni, 35-29, í dag.

Býr sig undir að mæta morðingjum í kvöld
Janus Daði Smárason er klár í slaginn fyrir leik Íslands við Króatíu á HM karla í handbolta í Zagreb í kvöld. Búast má við gríðarmikilli stemningu.