Sport

Hætti 14 ára en á nú leikjametið: „Fannst þær allar mikið stærri og sterkari“
Guðbjörg Sverrisdóttir varð í vikunni leikjahæsti leikmaður efstu deildar kvenna í körfubolta. Hún settist niður með Herði Unnsteinssyni og tæpti á því helsta á átján ára ferli.

Hrósuðu Viggó í hástert: „Hann er svo verðmætur“
Þeir Einar Jónsson og Bjarni Fritzson ræddu mikilvægi Viggós Kristjánssonar fyrir íslenska handboltalandsliðið í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar. Þeir segja að hann sé góður á báðum endum vallarins og passi vel inn í leikstíl íslenska liðsins.

Ítalir fundu landsliðsmarkvörðinn á Facebook
Ítalir hafa hingað til ekki verið þekktir fyrir afrek sín á handboltavellinum en þeir hafa komið á óvart á heimsmeistaramótinu og eiga möguleika á að komast í átta liða úrslit. Það er ekki síst markverðinum Domenico Ebner að þakka.

Betlaði einu sinni mat á götunni en er nú hetja Barcelona
Brasilíumaðurinn Raphinha fer nú á kostum með Barcelona og skoraði nú síðast mikilvægt sigurmark liðsins í Meistaradeildarleik í vikunni.

Svona fögnuðu Strákarnir okkar inni í klefa
Ísland sigraði Egyptaland, 24-27, í fyrsta leik sínum í milliriðli 4 á heimsmeistaramótinu í handbolta í gær. Íslendingar eru með sex stig í milliriðlinum og í góðri stöðu til að komast í átta liða úrslit.

Haaland fær tíu milljarða hjálp
Englandsmeistarar Manchester City kynntu í morgun Egyptann Omar Marmoush til leiks en hann kom til félagsins frá Frankfurt fyrir 70 milljónir evra, jafnvirði rúmlega 10 milljarða króna.

HM í dag: Þetta er heimsklassa lið
Geggjaður sigur á Egyptum í fyrsta leik milliriðils hjá strákunum okkar var gerður upp þætti dagsins af HM í dag.

Bragi heim frá Bandaríkjunum
Körfuknattleiksliði Grindavíkur hefur borist óvæntur liðsstyrkur því Bragi Guðmundsson er kominn heim frá Bandaríkjunum og mun klára tímabilið með liðinu.

Með geðveika hendi og öll skotin í bókinni
Einn leikmaður hefur sprungið út á HM í handbolta í ár og það er vinstri hornamaðurinn Orri Freyr Þorkelsson sem hefur eignað sér stöðuna og hjálpað mikið til við draumabyrjun Íslands á heimsmeistaramótinu.

Safna milljónum fyrir skúrk mótherjanna
Það er því miður alltof algengt að skúrkar í íþróttum verði fórnarlamb netníðs og hótanna. Fréttir frá Buffalo í Bandaríkjunum eru því jákvætt innlegg í baráttuna gegn slíkum ósóma.

Ætla þeir þá að segjast hafa verið að grínast?
Í nýjasta þætti GAZins rýna þeir Pavel Ermoliskij og Helgi Magnússon í nýjustu viðbótina við leikmannahóp Íslandsmeistara Vals en öllum að óvörum spilaði bandaríski leikmaðurinn Joshua Jefferson í leik liðsins í 8-liða úrslitum VÍS bikarsins gegn Sindra.

Mörkin úr Meistaradeildinni í gærkvöldi: Sjáðu hrunið hjá Man. City
Manchester City er ekki í neinum sérstaklega góðum málum í Meistaradeildinni þrátt fyrir draumabyrjun í leik sinum í gærkvöldi. Nú má sjá mörkin úr Meistaradeildinni frá því í gærkvöldi inn á Vísi.

Íslendingarnir orðnir fjórir hjá Kristianstad
Alexandra Jóhannsdóttir, landsliðskona í fótbolta, er gengin í raðir Kristianstad í Svíþjóð frá ítalska liðinu Fiorentina.

Gæti enn allt farið fjandans til með fjögurra marka tapi
Ef Slóvenía réttir ekki fram hjálparhönd myndi fjögurra marka tap gegn Króatíu annað kvöld fella Ísland úr keppni á HM í handbolta, þrátt fyrir að strákarnir okkar hafi unnið alla leiki sína til þessa á mótinu og séu efstir í milliriðli IV með sex stig.

„Slakiði á maður, eru þið ruglaðir?“
Það er ekki aðeins gaman hjá íslensku strákunum í leikjum því fjörið er líka mikið á æfingum liðsins þar sem keppnisskapið er stundum ekkert minna.

„Aron er betri handboltamaður en Óli Stef“
Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson hefur átt magnað heimsmeistaramót og sýndi enn á ný mikilvægi sitt í frábærum sigri á sterku liði Egypta í gærkvöldi.

Þurfti að fljúga heim í keppnisbúningnum
Sænski skíðagöngumaðurinn William Poroma fagnaði tímamótasigri um síðustu helgi en hann kom sér í fréttirnar fyrir annað.

Kusu að henda út myndbandsdómgæslu
Varsjáin er ekki vinsæl meðal margra stuðningsmanna knattspyrnufélaga í Noregi og nú virðist sem örlög myndbandsdómgæslu í norskum fótbolta séu ráðin.

Myndasyrpa frá sigrinum sem kom Íslandi einu skrefi nær átta liða úrslitum
Ísland hóf veru sína í milliriðli á HM í handbolta með nokkuð þægilegum sigri á Egyptalandi. Strákarnir okkar hafa nú unnið alla leiki sína til þessa á mótinu og geta tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum með sigri á Króatíu á föstudaginn kemur.

Sér eftir því sem hann sagði
Ruben Amorim, þjálfari Mancheser United, sagði eftir síðasta leik að núverandi lið Manchester United væri mögulega það versta í sögu félagsins en nú sér Portúgalinn eftir orðum sínum.

Dagskráin í dag: Brýtur Amorim annað sjónvarp?
Það er svo sannarlega nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag. Fjöldi leikja í Evrópudeild karla í knattspyrnu er á boðstólnum sem og spennandi leikir í Bónus deild karla og kvenna í körfubolta.

Skýrsla Henrys: Það liggur eitthvað í loftinu
Ævintýrið heldur áfram. Fjórir leikir, fjórir sigrar og allt sannfærandi. Ísland er einfaldlega eitt besta lið HM það sem af er móti. Magnað.

Feyenoord pakkaði Bayern saman
Feyenoord vann nokkuð óvæntan 3-0 sigur á Bayern München í Meistaradeild Evrópu karla í knattspyrnu í kvöld. Þá skoraði Real Madríd fimm gegn Salzburg og Mílanó-liðin unnu 1-0 sigra.

Einkunnir Strákanna okkar á móti Egyptalandi: Nokkrir með fullt hús
Íslendingar stigu stórt skref í átt að átta liða úrslitunum á HM í handbolta karla með sigri á Egyptum, 24-27, í milliriðli 4. Flestir leikmenn íslenska liðsins spiluðu stórvel í kvöld og nokkrir voru í heimklassa.

„Ég held að við höfum ekki verið svona góðir í áratug“
Ólafur Stefánsson var mjög ánægður með frammistöðu íslenska landsliðsins í sigrinum á Egyptum í kvöld en hann og sérfræðingar Ríkisútvarpsins sjá mikil þroskamerki á íslenska liðinu.

„Þurfum að halda okkur á jörðinni“
„Rosa góð. Það var kannski þannig aldrei nein spenna í þessu þó við höfum aldrei náð að slíta þá frá okkur,“ sagði Viggó Kristjánsson um sigur Íslands á Egyptalandi á HM í handbolta. Ísland er með fullt hús stiga í milliriðli eftir frábæra byrjun. Viggó segir menn þó þurfa að halda einbeitingu.

„Leið eins og þeir kæmust ekki í gegn“
„Geggjuð, fannst ótrúlega gaman að spila þennan leik,“ sagði Elvar Örn Jónsson um tilfinninguna eftir fjórða sigur Íslands í röð á HM í handbolta.

„Geðveikt að sjá þennan bláa vegg“
„Við vorum að vinna Egypta! Við þurfum að átta okkur á í hvaða stöðu við erum komnir! Við erum komnir með sex stig og maður er að bilast af jákvæðni núna,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson, í skýjunum eftir frábæran sigur gegn Egyptum á HM í handbolta í kvöld.

Tölfræðin á móti Egyptum: Aron og Viggó fóru fyrir sókninni þegar mest á reyndi
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann mikilvægan þriggja marka sigur á Egyptum, 27-24, í fyrsta leik sínum í milliriðli á heimsmeistaramótinu í handbolta. Íslenska liðið hefur þar með unnið fjórða fyrstu leiki sína á mótinu.

Noregur marði Spán
Noregur vann Spán með minnsta mun á HM karla í handbolta, lokatölur 25-24.