
Viðskipti erlent

Hætti hjá Google til að vara við hættu af gervigreind
Frumkvöðull í gervigreind segist hafa sagt starfi sínu hjá tæknirisanum Google lausu til þess að geta tjáð sig óheft um þær hættur sem hann telur að fylgi tækninni. Hann segist hafa gert sér grein fyrir að tölvur gætu orðið greindari en menn mun fyrr en hann taldi.

JPMorgan taka yfir First Republic-bankann
Búið er að selja bandaríska bankann First Republic til annars banka, JPMorgan, eftir að bankinn fór í greiðslustöðvun. Tekur JPMorgan nú við öllum eignum og skuldum First Republic.

Verðlækkun matvæla á mörkuðum skilar sér ekki á diskana
Verð á korni, grænmetisolíu, mjólkurvörum og öðrum landbúnaðarvörum hefur lækkað töluvert á mörkuðum á undanförnum mánuðum. Sú lækkun hefur þó lítið skilað sér á matardiska fólks um heiminn allan.

Prentvélar elsta dagblaðs í heimi þagna
Elsta starfandi dagblað í heimi hættir að koma út á prenti eftir atkvæðagreiðslu á austurríska þinginu í dag. Blaðið hefur komið út frá árinu 1703 og sagði meðal annars frá uppgangi Mozarts og endalokum keisaraveldis Habsborgara.

Forstjóri Theranos frestar fangelsisvist með áfrýjun
Elizabeth Holmes, forstjóri fallna tæknifyrirtækisins Theranos, hefur ekki afplánun á meira en ellefu ára fangelsisdómi í dag þar sem hún áfrýjaði niðurstöðu alríkisdómstóls. Samverkamaður Holmes seinkaði afplánun sinn um mánuð með sams konar áfrýjun í síðasta mánuði.

Bretar hafna stærsta samruna leikjaiðnaðarins
Samkeppniseftirlit Bretlands hefur ákveðið að meina bandaríska tæknifyritækinu Microsoft að festa kaup á leikjarisanum Activision Blizzard fyrir 69 milljarða Bandaríkjadollara. Ákvörðunin er áfall fyrir forsvarsmenn fyrirtækisins sem hyggjast áfrýja.

Lentu samkomulagi um losun frá flugsamgöngum
Ráðherraráð Evrópusambandsins og Evrópuþingið náðu samkomulagi um nýjar reglur til þess að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda frá flugferðum í nótt. Íslensk stjórnvöld krefjast undanþága frá reglunum.

Kaupa flugvél til að flytja ferskan eldislax á markað
Færeyski fiskeldisrisinn Bakkafrost, í gegnum dótturfélag sitt FarCargo, mun í sumar hefja beint flug frá Færeyjum með ferskan eldislax á erlenda markaði. Til flugsins verður notuð fraktflugvél sem sérstaklega var keypt fyrir verkefnið.

Bed Bath & Beyond gjaldþrota
Verslunarkeðjan Bed Bath & Beyond hefur óskað eftir greiðslustöðvun í Bandaríkjunum. Mun öllum verslunum þeirra vera lokað á næstu vikum. Verða allar eignir félagsins seldar á næstu vikum.

Hrökklast frá vegna ofsafenginna viðbragða við trans áhrifavaldi
Yfirmaður markaðsmála fyrir bandarísku bjórtegundina Bud light, er farinn í leyfi eftir að samstarf fyrirtækisins við trans áhrifavald vakti ofsafengin viðbrögð íhaldsmanna. Reiðir hægrimenn ákváðu að sniðganga vörur framleiðandans.

Stjörnur ósáttar við að vera bendlaðar við Twitter-áskrift
Samfélagsmiðillinn Twitter heldur áfram að krukka í hvernig hann útdeilir staðfestingamerkjum til notenda sinna. Heimsþekktir einstaklingar sem misstu merkið eftir nýlegar breytingar fengu það skyndilega til baka. Þeir eru ekki allir sáttir þar sem Twitter gefur ranglega í skyn að þeir hafi greitt fyrir þjónustuna.

Olíusjóðurinn vill ekki gera olíufélag loftslagsvænna
Norski olíusjóðurinn ætlar að greiða atkvæði gegn ályktun um að breska olíufélagið BP setji sér metnaðarfyllri loftslagsmarkmið á hluthafafundi í næstu viku. Hópurinn sem stendur að ályktuninni segir sjóðinn ekki framfylgja eigin fjárfestingastefnu.

Fræga fólkið ekki lengur auðkennt á Twitter
Einungis þeir sem eru áskrifendur að Twitter Blue eru nú með bláa staðfestingarmerkið merkið á samfélagsmiðlinum. Í gær misstu stærstu stjörnur heims, til að mynda Cristiano Ronaldo, Justin Bieber og Kim Kardashian merkið sitt.

Óðagot hjá Google þar sem unnið er að nýrri leitarvél
Forsvarsmenn Alphabet og Google hafa sett af stað margskonar verkefni sem snúa að því að berjast gegn gervigreindum og áhrifum þeirra á rekstur Google og yfirburðastöðu fyrirtækisins þegar kemur að leitarvélum á netinu. Meðal annars er verið að skoða að gera róttækar breytingar á Google leitarvélinni og að byggja nýja leitarvél frá grunni.

Orkunotkun rafmyntargraftar á við milljónir heimila
Á fjórða tug gagnavera sem grafa eftir rafmyntum í Bandaríkjunum nota svipað mikla raforku og þrjár milljónir heimila í næsta nágrenni þeirra. Verin eru að langmestu leyti knúin með jarðefnaeldsneyti og valda þau losun á við 3,5 milljónir bensín- og dísilbíla.

Tupperware á barmi gjaldþrots
Hlutabréf í Tupperware, sem er hvað þekktast fyrir að framleiða samnefnd ílát, hríðféllu í upphafi vikunnar. Fyrirtækið segist nú vera á barmi gjaldþrots. Hvort það nái að lifa af fari eftir því hvort það fái meira fjármagn og hversu hratt það gerist.

Stofnandi Theranos kemst ekki hjá fangelsisvist
Alríkisdómstóll í Kaliforníu hafnaði kröfu Elizabeth Holmes, stofnanda fallna heilbrigðistæknifyrirtækisins Theranos, um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sem hún hlaut fyrir fjársvik.

Twitter ekki lengur til sem hlutafélag
Twitter er ekki lengur til sem sjálfstætt hlutafélag eftir samruna þess við skúffufyrirtækið X Corp. Breytingin hefur vakið vangaveltur um framtíð samfélagsmiðilsins og hvað Elon Musk ætlar sér með hann.

Virgin Orbit stefndi á geiminn en lenti á hausnum
Geimferðarfyrirtækið Virgin Orbit í eigu breska auðkýfingsins Richards Barnason óskaði eftir gjaldþrotameðferð í Bandaríkjunum í gær. Eldflaugarskot fyrirtækisins misheppnaðist fyrr á þessu ári og það hefur átt í erfiðleikum með að fjármagna frekari tilraunir.

Endurnýja tryggingar á Nordstream-gasleiðslunni
Tvö stór þýsk tryggingafélög endurnýjuðu tryggingu á Nordstream 1-gasleiðslunni sem skemmdarverk voru unnin á í haust. Það er sagt benda til þess að ekki hafi verið útilokað að leiðslan verði tekin aftur í notkun einhvern daginn.

Musk skiptir Twitter-fuglinum út fyrir Doge-hundinn
Elon Musk hefur skipt Twitter-fuglinum Larry út fyrir Doge-hundinn Kabosu. Hundurinn er ein frægasta skopmynd heims og stendur Musk nú í málaferlum vegna rafmyntar sem notast við sömu mynd af hundinum, Dogecoin.

Gera ekki lengur greinarmun á áskrifendum og þekktum notendum
Samfélagsmiðillinn Twitter virðist hafa dregið í land með fyrirhugaðar breytingar á staðfestingarmerkjum á síðunni. Til stóð að svipta þekkta notendur og stofnanir merkinu um mánaðamótin en það virðist að mestu ekki hafa gerst. Þess í stað er ekki lengur hægt að greina á milli þekktra notenda og þeirra sem greiddu áskrift til þess að fá merkið.

ChatGPT bannað á Ítalíu
Yfirvöld á Ítalíu hafa ákveðið að banna gervigreind fyrirtækisins OpenAI, ChatGPT. Verður fyrirtækið rannsakað af yfirvöldum þar í landi áður en ákvörðun verður tekin um framhaldið.

SBF ákærður fyrir að reyna að múta kínverskum stjórnvöldum
Sam Bankman-Fried, stofnandi rafmyntafyrirtækisins FTX, er sagður ætla að lýsa sig saklausan af ákæru um að hann hafi brotið bandarísk kosningalög og mútað kínverskum yfirvöldum. Hann hefur þegar lýst sig saklausan af ákærum um stórfelld fjársvik.

Frumkóða Twitter lekið á netið
Hluta af frumkóða Twitter var lekið á netið nýverið og leikur grunur á að þar hafi verið á ferðinni fyrrverandi starfsmaður sem auðjöfurinn Elon Musk rak. Kóðinn var birtur á GitHub en fjarlægður þaðan þegar lögmenn Twitter sendu forsvarsmönnum síðunnar bréf.

Lohan og fleiri stjörnur látnar borga fyrir rafmyntarauglýsingar
Leikkonan Lindsay Lohan og rapparinn Akon eru á meðal nokkurra stjarna sem gerðu sátt við bandaríska verðbréfaeftirlitið vegna ásakana um að þær hafi auglýst fjárfestingar í rafmyntum án þess að upplýsa að þær fengju greitt fyrir það. Þær þurfa að greiða tugi þúsunda dollara hver.

Bandaríski seðlabankinn hækkar líka vexti
Bandaríski Seðlabankinn hefur ákveðið að hækka stýrivexti í landinu þrátt fyrir áhyggjur manna af því að slík aðgerð gæti aukið á óróann á fjármálamörkuðum en þar í landi hafa bankar verið að lenda í miklum vandræðum.

Forstjóri TikTok mætir þingmönnum og varar við því að banna forritið
Shou Zi Chew, forstjóri TikTok, mun mæta á þingfund í fulltrúadeild Bandaríkjaþings á morgun, þar sem hann mun verjast ásökunum um að forriti hans sé ekki treystandi. Ráðamenn í Bandaríkjunum og þar á meðal þingmenn bæði Demókrata- og Repúblikanaflokksins vilja að forritið verði bannað í Bandaríkjunum eða selt.

167 ára „vandræðabarn bankakerfisins“ heyrir sögunni til
167 ára saga hins fornfræga banka Credit Suisse er á enda eftir að bankanum tókst ekki að standa af sér enn eina krísuna. Vandræði bankans, sem lýst hefur verið sem vandræðabarni bankakerfisins, hafa mallað árum saman áður en upp úr sauð um helgina. Nýleg saga svissneska bankans er stráð þyrnum af ævintýralegri stærð.

Íhuga að búa til markað með sæði óbólusettra karlmanna
Stjórnendur lítils hægrisinnaðs samfélagsmiðils í Bandaríkjunum íhuga nú að breyta miðlinum í markaðstorg fyrir sæði karlmanna sem hafa ekki látið bólusetja sig gegn Covid-19. Ein fjölmargra samsæriskenninga um Covid-19 er að bóluefni geri karla ófrjóa eða getulausa.