Samband við Samband úr sambandi Ingibjörg Kristleifsdóttir og Haraldur F Gíslason skrifar 28. september 2012 13:45 Félag leikskólakennara, foreldrasamfélagið og aðrir velunnarar leikskólans fögnuðu þann 1. júlí 2008 þegar ný lög um leikskóla og lög um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda í leik-, grunn- og framhaldsskólum tóku gildi. Áfanga var náð. Samfélagið var búið að staðfesta það með enn skýrari hætti en áður að leikskólinn væri hluti af menntakerfinu og að sömu kröfur skyldi gera til kennara á öllum skólastigum. Leikskólinn, vagga lýðræðisins, var viðurkenndur sem undirstaða skólakerfisins. Framfaraskref Þáverandi menntamálaráðherra af hægri væng stjórnmálanna þorði að taka þetta framfaraskref og núverandi mennta- og menningarmálaráðherra af gagnstæðum væng stjórnmálanna hefur skilað af sér heilstæðri aðalnámskrá fyrir öll skólastig í takt við þessa hugmyndafræði. Lögin kveða á um það að meistaragráðu eða 5 ára háskólanám þurfi til þess að fá leyfisbréf til kennslu; leikskólakennslu, grunnskólakennslu og framhaldsskólakennslu. Frá hendi leikskólakennara var eini skugginn sem bar á, að látið var af því markmiði að allir sem sinntu uppeldi og kennslu í leikskóla þyrftu að vera með leyfisbréf og var sú krafa minnkuð í að 2/3 hlutar væru leikskólakennarar. Enn ríkir ekki full sátt innan leikskólasamfélagsins um það að slegið hafi verið af kröfum enda eru nokkur sveitarfélög með hærra hlutfall og leikskólakennarar vilja setja markið hátt. Til hvers? Meistaranám mun skila af sér fjölbreyttari flóru í rannsóknum. Starfendarannsóknir verða m.a. hluti af daglegu starfi skólanna og liður í öflugri skólaþróun. Það eru allir sammála um það að við verðum að stefna að besta hugsanlega skólakerfi og að Íslendingar þori alltaf að vera í fararbroddi. Þetta mun einnig þýða betri kjör kennara, sterkari fagmennsku og fjölbreytta möguleika á samvinnu og flæði á milli skóla og á milli skólastiga. Það er ein megin stoðin undir skólalöggjöfinni að horfa á skólakerfið sem eina heild og rauður þráður í nýrri aðalnámskrá. En hvað? Eru þá ekki allir sáttir? Því miður virðist svo ekki vera. Samband íslenskra sveitarfélaga virðist af einhverjum ástæðum óttast að leikskólastigið eflist og hefur unnið gegn því ljóst og leynt. Vitnisburð um það má sjá í umsögnum um fyrrnefnd lög, þrátt fyrir að hafa tekið þátt í mótun þeirra og nú síðast í séráliti í starfshópi um eflingu leikskólastigsins. Úr verkum sveitarfélaga við fækkun stjórnenda í leikskóla undanfarin misseri má einnig lesa þetta viðhorf. Við sameiningar leikskóla var í sumum tilfellum einskis svifist við að losa sig við leikskólastjórnendur, marga með áralanga farsælan starfsferil, allt í þágu tölfræðinnar sem sýnir fækkun stjórnenda en engan sýnilegan árangur til hagræðingar. Margir leikskólar eru enn í sárum eftir bröltið enda var stjórnunin veikt einmitt á þeim tímapunkti þegar þarf sterka leiðtoga til þess að leiða breytingar. Fyrirsjáanlegt. Nú halda forsvarsmenn sambandsins því fram fullum fetum að það sé vegna þess að nám leikskólakennara var lengt í 5 ár að aðsókn í námið hefur dalað. Þeir minnast ekki á önnur skólastig en það er sama sagan þar og reyndar í heiminum öllum, að aðsókn í kennaranám hefur dalað og alþjóðasamfélag kennara hefur af því þungar áhyggjur. Að finna sökudólg? Ástæðurnar fyrir því eru margar og Samband íslenskra sveitarfélaga ætti að líta alvarlega í eigin barm og spyrja sig hvort og hvernig starfsumhverfi leikskóla hefur verið gert eftirsóknarvert til þess að velja sér leikskólakennslu sem ævistarf. Ungt fólk sem er að velja háskólanám miklar það ekki fyrir sér að taka meistaragráðu ef starfsumhverfið og kjörin eru eftirsóknarverð. Bakkalárgráðan er og verður áfram ágæt trappa til þess að staldra við á ef einhver kýs það, enda væri sá hinn sami öruggur um starf í leikskóla þar sem 1/3 hluti starfa er ætlaður fólki án leyfisbréfs. Sýnum metnað - horfum fram á við Við getum ekki hangið í því að beini breiði vegurinn sem var í boði fyrir þá sem nú eru miðaldra sé enn sá eini rétti. Fólk er að nema alla ævi og fleiri og fleiri kjósa að taka þess vegna fleiri en eitt háskólapróf og hafa réttindi á ólíkum starfssviðum. Að ætla það að fólk sem velur sér leikskólakennslu hafi minni metnað og úthald en fólk sem velur sér nám á öðrum sviðum er dónaskapur og segir allt um það hve gömlu viðhorfin til þeirra sem annast og mennta börn eru lífseig. Við verðum að gera þetta upp við okkur í eitt skipti fyrir öll. Viljum við það besta eða vill einhver segja það upphátt að manneskjan sé verðmetin eftir aldri og því yngri sem börnin eru því minni metnaður eigi að ríkja í umönnun þeirra og kennslu? Svari hver fyrir sig. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Haraldur F. Gíslason Mest lesið Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Halldór 29.08.26 Halldór Skoðun Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar