Skoðun

Skóli án aðgreiningar er ekki að virka fyrir öll börn

Kolbrún Baldursdóttir skrifar
Allt of oft berast fréttir af slæmri líðan og gengi barna í grunnskólum landsins og að árangur íslenskra nemenda sé áberandi verri en nemenda á hinum Norðurlöndunum. Sú niðurstaða að rúmlega 30% drengja útskrifast úr grunnskóla illa læsir eða með lélegan lesskilning er t.d. ekki ásættanleg. Sumum nemendum líður svo illa í skólanum að þeir geta ekki beðið eftir að útskrifast. Þau kvarta yfir of miklum hávaða í bekknum og eiga erfitt með að einbeita sér. Mörg segjast ekki skilja námsefni eða ná ekki fyrirmælum. Sumum er strítt, þau lögð í einelti og margir krakkar segjast ekki eiga neina vini. Í þessu samhengi má spyrja, er skólinn í núverandi mynd að virka?

Í lögum um grunnskóla og í aðalnámsskrá er skýrt tekið fram að nemendur eigi rétt á að fá námsþarfir sínar uppfylltar í almennum skóla án aðgreiningar og án tillits til líkamlegrar eða andlegrar getu (lög um grunnskóla nr. 91/2008).

Flokkur fólksins telur að ekki allir nemendur séu að fá námsþarfir sínar uppfylltar án tillits til færni og getu. Í því sambandi má nefna börn sem hneigjast til verklegs náms. Val í verknámi er takmarkað og því lítið svigrúm til að rækta fjölbreyttari færni á því sviði. Þau börn sem finna sig ekki í núverandi fyrirkomulagi eiga á hættu að brotna niður því þau upplifa sig ýmist vera ómöguleg eða týnd. 

Vanlíðan barna er ekki kennurum að kenna heldur mikið frekar sá þröngi stakkur sem þeim er gert að vinna samkvæmt. Flokkur fólksins vill að hlustað sé betur á foreldra og fólkið á gólfinu. Leggja þarf allt kapp á að að skólar fái frelsi til að þróa fjölbreytni í námsvali, ólíkar leiðir í gegnum námið og fjölbreyttar námsaðstæður. Börn eiga að geta farið á sínum hraða í gegnum námið og hafa meira val þegar kemur að verklegum og skapandi þáttum.

Það sem er öllum börnum sameiginlegt er að þau þarfnast umhyggju, hlýju og hvatningar. Þau þarfnast samveru, öryggis og vináttu. Sérhver einstaklingur þarf að fá að vera hann sjálfur í hópi jafningja.

Endurskoða þarf núverandi kerfi skóla án aðgreiningar. Ekki dugar að vera sammála um stóru drættina þegar ljóst er að okkur er að mistakast. Flokkur fólksins hefur hagsmuni barnsins ávallt í fyrirrúmi. Fólkið fyrst!

Höfundur skipar 1. sæti Flokks fólksins í Reykjavík




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×