FA vill að félögin hafi val um standandi svæði Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 29. ágúst 2018 13:30 Stuðningsmenn Shrewsbury Town voru ánægðir með nýja standandi svæðið á Montgomery Waters Meadow vellinum Vísir/Getty
Enska knattspyrnusambandið mun styðja félögin í því að fá val um hvort þau taki upp standandi svæði á völlum sínum. Endurskoðun á löggjöfinni sem bannar standandi svæði er í höndum sjálfstæðs aðila. Breska ríkisstjórnin stóð fyrir því að sjálfstæður aðili rannsakaði hvort endurskoða ætti löggjöf frá 1989 (e. Football Spectators' Act) sem bannar standandi svæði á leikvöngum í efstu tveimur deildum Englands. Löggjöfin var sett á laggirnar eftir Hillsborough slysið þar sem 96 stuðningsmenn Liverpool létu lífið. Forráðamenn ensku úrvalsdeildarinnar og fyrstu deildarinnar hafa stutt félögin í baráttu þeirra fyrir því að fá að ráða því sjálf hvort standandi svæði verði tekin upp. Nú hefur enska knattspyrnusambandið einnig lýst yfir stuðningi sínum. „Enska knattspyrnusambandið studdi ákvörðun íþróttamálaráðherrans Tracey Crouch að skoða hvort endurskoða ætti löggjöfina og styður bæði félögin og deildirnar í því að þau eigi að ráða því hvort þau vilji bjóða upp á standandi svæði, að því gefnu að allar öryggiskröfur séu uppfylltar,“ sagði í tilkynningu frá knattspyrnusambandinu. Margir stuðningsmenn hafa barist fyrir því í árabil að fá þessari löggjöf aflétt. Shewsbury Town, sem spilar í ensku C-deildinni, varð í sumar fyrsta liðið til þess að taka upp standandi svæði á Englandi síðan lögin voru sett.
Enski boltinn Hillsborough-slysið Mest lesið Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Enski boltinn Elías og félagar flugu áfram Fótbolti Uppgjörið: Borac - Víkingur 3-1 | Evrópuþátttöku Víkinga lokið Fótbolti Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Handbolti Palacios til Ipswich Enski boltinn Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Handbolti Tólf tíma þrekraun Elísu með þeim bestu í heimi: „Hentar mér mjög vel“ Sport Róbert Frosti og Daníel Tristan á skotskónum Fótbolti Kristall skoraði þegar Brann komst áfram Fótbolti Rodri kom inn af bekknum í sigurleik Fótbolti Fleiri fréttir Palacios til Ipswich Chelsea að ná í Emiliano Martínez Danny Welbeck kominn af stað fyrir Chelsea Goretzka mættur til Villa Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Dagný orðin sendiherra West Ham Raheem Sterling ákærður Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Manchester City keypti liðsfélaga Hákonar á metfé Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Tottenham landar öðrum leikmanni frá Manchester City Jákvæður tónn og bjartsýni í viðræðum Liverpool við PSG Savinho til Tottenham frá Manchester City Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Cody Gakpo orðaður við Manchester City Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjá meira