Skoðun

Jólagjöfin í ár 

Hörður Ægisson skrifar
Skjótt skipast veður í lofti. Eftir stöðugar verðhækkanir var heimsmarkaðsverðið á hráolíu komið yfir 80 Bandaríkjadali í lok september og hafði ekki verið hærra í um fjögur ár. Þrátt fyrir að hafa hækkað um liðlega 30 prósent fyrstu níu mánuði ársins töldu flestir greinendur, sökum þess að útlit væri fyrir skort á framboði, engar olíuverðslækkanir vera í spákortunum heldur stæðu fremur líkur til þess að verðið myndi halda áfram að hækka á næstu mánuðum. Fyrir íslensku flugfélögin, sem hafa staðið höllum fæti og þurfa að greiða jafnvirði um 60 milljarða króna fyrir þotueldsneyti á þessu ári, voru þetta sérstaklega váleg tíðindi. Sem betur fer gengu spárnar ekki eftir heldur hefur heimsmarkaðsverð á olíu þess í stað hrunið um nærri 40 prósent á aðeins tæplega þremur mánuðum og stendur núna í um 53 dölum fatið.

Hvað gerðist? Orsakirnar eru auðvitað margþættar en skyndilegt offramboð af olíu, einkum vegna aukinnar framleiðslu vestanhafs, ásamt væntingum um minni eftirspurn og hægari vöxt í alþjóðahagkerfinu sökum viðskiptastríðs Bandaríkjanna og Kína skýra ekki hvað síst þetta mikla verðfall. Þá hefur ákvörðun aðildarríkja OPEC, samtaka olíuframleiðsluríkja, um að draga úr framleiðslu sinni í því skyni að reyna að vinna gegn frekari lækkun á olíuverði ekki skilað tilætluðum árangri. Brynjólfur Stefánsson, sérfræðingur í hrávörum hjá Íslandssjóðum, benti einnig á það í samtali við Fréttablaðið fyrir skemmstu að mörg ríki hefðu búið sig undir stífar viðskiptaþvinganir Bandaríkjastjórnar gagnvart stjórnvöldum í Íran með því að bæta hjá sér birgðastöðuna. Þegar á hólminn var komið reyndust aðgerðirnar mun vægari en haldið var í fyrstu – og með þeim afleiðingum að olíuverð tók að lækka mjög skarpt.

Fáar þjóðir nota jafn mikið af olíu og Íslendingar á hvern íbúa. Sveiflur á olíuverði hafa því gríðarmikil áhrif á allt íslenskt efnahagslíf en olíunotkun Íslendinga hefur stóraukist – um 40 prósent frá 2010 – samhliða vexti ferðaþjónustunnar. Þar skipta flugsamgöngur mestu máli en olíunotkun flugfélaganna hefur þrefaldast á aðeins sjö árum og í fyrra stóðu þau undir um 38 prósentum af heildarolíunotkun. Mikil verðlækkun á olíu kemur sér því vel fyrir flugfélögin, ekki hvað síst WOW air sem hefur ekki varið eldneytiskaup sín fyrir sveiflum í olíuverði. Áætlað er að fyrir hverja tíu prósenta lækkun á þotueldsneyti hafi það jákvæð áhrif á afkomu Icelandair og WOW air sem nemur um 1.500 til 2.000 milljónum á ársgrundvelli. Það munar um minna á tímum þegar félögin hafa verið að berjast í bökkum.

Það eru auðvitað ekki aðeins fyrirtækin sem njóta góðs af lægra olíuverði. Ávinningurinn fyrir heimilin er ekki síðri þar sem verð á ýmsum innfluttum vörum ætti að fara lækkandi og þrýstingur til aukinnar verðbólgu að sama skapi að minnka. Tímasetningin gæti vart verið betri enda er verðbólgan nú að nálgast fjögur prósent – og hefur ekki mælst hærri í fjögur ár – sem stafar ekki síst af miklum olíuverðshækkunum síðustu misseri og veikingu krónunnar. Flestir hafa talið að Seðlabankinn verði í vaxtahækkunarham á nýju ári, meðal annars vegna hækkandi hrávöruverðs, en samkvæmt grunnspá bankans gerir hann ráð fyrir að olíuverð verði í kringum 80 dali á árinu 2019. Haldist verðið hins vegar á svipuðum slóðum og nú mun það auka líkur á að til þess þurfi ekki að koma. Hríðlækkandi olíuverð er því réttnefnd jólagjöfin í ár fyrir íslensku eyðsluklóna.




Skoðun

Skoðun

Kona, vertu ekki fyrir!

Elín Björg Jónsdóttir,Halldóra Sigríður Sveinsdóttir,Hrafnhildur Lilja Harðardóttir skrifar

Sjá meira


×