Skoðun

Innantómt upphlaup

Atli Bollason skrifar

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fer mikinn í viðtali við Morgunblaðið 17. apríl og segist tilbúinn að segja upp lífskjarasamningnunum standi stjórnvöld ekki við fyrirheit í húsnæðismálum. Hann viðrar einnig áhyggjur af verðlagsþróun hérlendis.

En hér gæti VR lagt miklu meira af mörkum heldur en gagnrýni á stjórnvöld.

Vextir LV hækka

Í júníbyrjun 2019 tilkynnti stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna um fyrirhugaða hækkun breytilegra vaxta á verðtryggðum húsnæðislánum úr 2,06% í 2,26%. Þetta kom illa við stjórn VR og í kjölfarið ákvað fulltrúaráð VR að skipta út öllum stjórnarmönnum í LV. Í yfirlýsingu sagði stjórn VR ástæðuna vera „hækkun breytilegra vaxta verðtryggðra sjóðfélagalána sem gengur í berhögg við hina miklu áherslu sem lögð var á vaxtalækkanir í nýgerðum kjarasamningi [lífskjarasamningunum].“

En þótt stjórninni hafi verið skipt út þá tók vaxtabreytingin engu að síður gildi. Ég tók sjálfur nákvæmlega svona lán hjá LV í árslok 2017 og vextirnir hafa ekki nema hækkað samhliða lækkun stýrivaxta sem eru nú í sögulegu lágmarki. Miðað við upprunalega lánaskilmála ættu vextirnir á mínu láni í dag að vera 1,65% en þeir eru enn 2,26% þrátt fyrir upphlaupið síðasta sumar. Var það ekki nema innantómt sjónarspil? Er ekki eðlileg krafa að LV virði þær forsendur og skilmála sem ég gekkst undir við lántöku?

Bætum lífskjörin

Hér skal nefnt að Neytendastofa lýsti því yfir að vaxtabreytingin hefði ekki verið í samræmi við gerða lánasamninga og LV ákvað í vor að endurgreiða lántökum ofgreidda vexti. Sú ákvörðun tók hins vegar bara til lána sem voru veitt fram í apríl 2017 og nær því ekki til mín né annarra sem tóku lán að þeim tíma loknum. Í mínu tilfelli er vaxtahækkunin því dæmd lögleg. Hvort hún er siðleg er hins vegar annað mál. Með því að taka mið af stýrivöxtum eins og eðlilegt þykir meðal lánveitenda sem bjóða upp á breytilega vexti hefur VR tækifæri til að leggja sitt af mörkum og bæta lífskjör fjölda félagsmanna. Óskandi væri að Ragnar Þór gripi það.

Höfundur er launþegi




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×