Þá er til skoðunar að hætta við að greiða uppsagnarfrest þeirra starfsmanna sem hefur verið sagt upp.
Musk og stjórnendateymi hans eru að skoða hvort þeir komist upp með að greiða ekki uppsagnarfrestinn til starfsmanna sem búið er að segja upp og þess í stað berjast gegn lögsóknum fyrrverandi starfsmanna. Auðjöfurinn hefur þegar neitað að greiða fyrrverandi stjórnendum fyrirtækisins milljónir dala því hann segir þá hafa verið rekna af góðum ástæðum.
Þar að auki hefur starfsmönnum verið skipað að hætta að greiða birgjum og forsvarsmenn Twitter hafa þar að auki neitað að greiða nærri því tvö hundruð þúsund dali fyrir einkaþotur sem notaðar voru í vikunni sem Musk tók við eignarhaldi fyrirtækisins.
Þetta kemur fram í frétt New York Times og þykja þessar aðgerðir og vangaveltur til marks um að Musk sé enn að reyna að draga verulega úr kostnaði hjá Twitter, sem hann keypti fyrir 44 milljarða dala.
Sjá einnig: Skuldir Twitter stigmagnast við yfirtöku Musks
Óreiða hefur einkennt yfirtöku Musks. Stórum hluta starfsmanna Twitter hefur verið sagt upp og þar á meðal flestum yfirmönnum fyrirtækisins, auglýsendur hafa dregið saman seglin á samfélagsmiðlunum og hann sjálfur hefur hringlað fram og til baka með ýmsar ákvarðanir en einnig verið með puttana sjálfur í hvernig efni sem birtist á Twitter er stýrt.
Fyrr í dag bárust fregnir af því að Musk hefði leyst upp ráðgjafaráð fyrirtækisins um traust og öryggi notenda. Það gerði hann rétt áður en ráðið átti að funda með stjórnendum miðilsins.
Sjá einnig: Musk leysir upp ráðgjafaráð um öryggi notenda
Musk hefur varið miklu púðri í að reyna að draga úr kostnaði hjá Twitter og auka tekjur fyrirtækisins. Meðal annars hefur hann boðið upp á áskriftarleið en framkvæmd hennar hefur valdið miklum usla.
Skömmu eftir að Musk tók yfir Twitter skipaði hann Alex Spiro, einkalögmann sinn, yfir lögmannadeild fyrirtækisins. Spiro var hins vegar rekinn í dag en heimildarmenn NYT segja Musk hafa verið óánægðan með ákvarðanir hans að undanförnu.
Í stað þeirra lögmanna sem Musk hefur rekið er hann sagður hafa fengið lögmenn úr öðrum fyrirtækjum sínum til samfélagsmiðlafyrirtækisins. Þar á meðal eru lögmenn eldflaugafyrirtækisins SpaceX.
Fjármálaeftirlit Bandaríkjanna (FTC) er sagt hafa sent bréf til forsvarsmanna Twitter vegna rannsóknar um það hvort fyrirtækið sé enn að framfylgja samkomulagi um gagnavernd og persónuupplýsingar sem skrifað var undir árið 2011, eftir tvo gangaleka.
Twitter greiddi 150 milljónir dala í maí, vegna ásakana um að fyrirtækið hefði brotið gegn skilmálum samkomulagsins.