Ljósið í sálinni Árni Már Jensson skrifar 18. desember 2022 14:59 „Aldir og andartök hrynja,með undursamlegum nið,það er ekkert í heiminum öllum,nema eilífðin, Guð og við.“ Hversu fögur eru orð skáldsins í ljóðinu Ást. Hvernig skynjar maðurinn Guð og hvaða afl skyldi það vera sem er manninum og Guði órjúfanlegt í daglegu lífi? Í veruleika upplýsingarinnar styðjumst við mennirnir við lög, reglur og venjur sem við höfum samið og úthlutað hvort öðru í viðleitni til að siðvæða samfélög okkar. Lýðræðið og stjórnskipanin; löggjafarvald, dómsvald og framkvæmdarvald eru grunnstoðir þessa veruleika. Við höfum sett okkur lögin við aðstæður sem við rákum okkur á að þyrfti, til að friður megi ríkja meðal okkar, og notum sem viðmið til aðgreiningar á réttu og röngu. Við höfum stofnanir; dómstóla, lögreglu og fullnustu-yfirvald refsinga sem eiga að gæta hlutleysis en fylgja ramma laganna. Þannig hefur okkur lærst að við þurfum ytra aðhald til að fara okkur ekki að voða fyrir eigin hugsunum og gjörðum. Þessi þörf okkar endurspeglar ákveðna smæð og auðmýkt gagnvart æðri vitund sem við skynjum í nálægð og viljum eiga samfélag við. Meðvitað ástand um þessa vitund er jákvæður þáttur í þróun mannsins sem að lokum mun úthýsa grimmd og illsku sem því miður er langt ferðalag. En af hverju þarf vel upplýstur maðurinn að setja sér þessar eftirlitsstofnanir og lög? Jú, hann á það til að fyllast sjálfum sér og glata þar með auðmýkt og tengslum við æðri vitund í daglegu lífi. Við slíkar aðstæður hrynur siðferðið og óreiðan tekur við. Hvorki upplýsing né akademísk þekking leysir af hólmi vitundina góðu sem maðurinn þarf sér við hlið til að úthýsa illskunni. Það gerir einungis samviskan. Hvernig skiljum við samviskuna? Hugsun mannsins ræðst annars vegar af erfðum og getu til að lifa af í veröld efnisins, og hins vegar af þrá hans til að þroskast andlega. Hvort hugarrýmið fyrir sig víkkar í hlutfalli við athyglina og er samviskan sú glíma sem skilur þar á milli. Í trúarlegu samhengi er synd brot gegn Guðlegum lögum. Hver menning hefur sína eigin túlkun á því hvað það þýðir að drýgja synd. Þó að syndir séu yfirleitt athafnir, þá er hægt að kalla allar hugsanir, orð eða athafnir sem eru siðlausar, eigingjarnar, skammarlegar, eða skaðlegar, syndugar. Sé hugtakið synd sett í samhengi við hegðun mannsins án tillits til trúarbragða myndi nærtækast að miða synduga gjörð við flest það sem stríðir gegn betri vitund, þ.e. gegn samvisku mannsins. Svo geta menn farið dýpra og velt fyrir sér hvaðan samviskan er upprunnin og yfir höfuð hvað hún er: Guðleg eða mannleg, eða e.t.v. sambland hvoru tveggja; ‘Sam-Viska’ Guðs og manns. Hvað gerist ef við förum á svig við þessa æðri vitund? Jú, að ganga gegn samviskunni jafngildir því að brjóta gegn heiðarleikanum sem er ávísun á vanlíðan. Að sama skapi leiðir það af sér vellíðan að lúta henni. Samviskan er þannig andlegt leiðbeinandi afl sem tjáir sig gegnum tilfinningar okkar og opinberar samofið eðli Guðs og manns. „Þú gafst mér skýin og fjöllin og Guð,til að styrkja mig.Ég fann ei hvað lífið var fagurt,fyrr en ég elskaði þig.Ég fæddist til ljóssins og lífsins,er lærði ég að unna þér,og ást mín fær ekki fölnað,fyrr en með sjálfri mér.“ Lífið, ástin, ljósið og eilífðin spinna örlagaþræði í þessu undurfagra ljóði Sigurðar Nordals. Lífið er ferðalag sem aldrei tekur enda, þó forvitnileg umskipti bíði okkar við viðskilnað sálar og líkama. Þetta ferðalag er í senn erfitt og gefandi en umfram allt lærdómur þar sem enginn ávinningur er ábatasamari yfir fljót vistaskiptanna en andlegur þroski. Við bröltum áfram gegn um lífið, misstígum okkur, er refsað, leiðréttum, höldum áfram, misstígum okkur, er refsað, leiðréttum og höldum áfram osfrv,. osfrv. Hjá sumum okkar er þetta eins og hringavitleysa endaleysunnar. En svo gerist eitthvað. Við vöknum til andlegrar vitundar, tenging myndast við samviskuna, og lærdómur mistakanna raungerist. Við flestar hindranir sem við hrösum um, þurfum við ekki að eiga við refsiramma kerfisins. Okkar eigin samviska sér um fullnustuna í glímunni um sjálfsvitundina – þá meðvitund sem sker úr um hver við erum. Ekki endilega gagnvart samfélaginu og öllum hinum, heldur okkur sjálfum og því sem æðra er – betri vitund og Guði. Þannig angrar samviskan okkur ýmist og lítillækkar eða gleður og auðgar. Meðvituð sjálfsmynd verður því ekki aðskilin þessu vitundarangri sem skilur milli tilgangs og tilgangsleysis í jarðverunni. Jesú sagði: Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér, mun ekki ganga í myrkri, heldur hafa ljós lífsins. Jóh. 8:12 Öllum þeim kimum vitundarinnar sem myrkar hugsanir dveljast getum við umbreytt með ljósi. Það gerum við með því að hlusta á rödd samviskunnar og lúta í gras. Þannig ræktum við kærleika lífsins í samfélagi við sjálf okkur, hvort annað og Guð. Því samviskan og Guð eiga sér samnefnara sem er réttlætið. Höfundur er áhugamaður um betra samfélag og líf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann Skoðun Akademísk kurteisi á tímum þjóðarmorðs Finnur Ulf Dellsén Skoðun Rangfærslur ESB-sinna leiðréttar Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Þú ert búin að eyðileggja líf mitt!!! Sandra Ósk Jóhannsdóttir Skoðun Ég frétti af konu Gunnhildur Sveinsdóttir Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég frétti af konu Gunnhildur Sveinsdóttir skrifar Skoðun Rangfærslur ESB-sinna leiðréttar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Eineltið endaði með örkumlun Davíð Bergmann skrifar Skoðun Akademísk kurteisi á tímum þjóðarmorðs Finnur Ulf Dellsén skrifar Skoðun Við megum ekki tapa leiknum utan vallar Eysteinn Pétur Lárusson skrifar Skoðun Börnin heyra bara sprengjugnýinn Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Gagnslausa fólkið Þröstur Friðfinnsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Allt mun fara vel Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Normið á ekki síðasta orðið Katrín Íris Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ég er eins og ég er, hvernig á ég að vera eitthvað annað? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Við lifum á tíma fasisma Una Margrét Jónsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Hinir miklu lýðræðissinnar Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kolefnishlutleysi eftir 15 ár? Hrafnhildur Bragadóttir,Birna Sigrún Hallsdóttir skrifar Skoðun Gleði eða ógleði? Haraldur Hrafn Guðmundsson skrifar Skoðun Tískuorð eða sjálfsögð réttindi? Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Ráðherrann og illkvittnu einkaaðilarnir Freyr Ólafsson skrifar Skoðun Áttatíu ár frá Hírósíma og Nagasakí Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Er einhver hissa á fúskinu? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Réttmætar áhyggjur eða ósanngjarnar alhæfingar? Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar Skoðun „Þótt náttúran sé lamin með lurk!“ Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ekkert ævintýri fyrir mongólsku hestana María Lilja Tryggvadóttir skrifar Skoðun Nám í skugga óöryggis Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Tæknin á ekki að nota okkur Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ytra mat í skólum og hvað svo? Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar Skoðun Tóbakslaust Ísland! - Með hjálp stefnu um skaðaminnkun Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Tjáningarfrelsi Laufey Brá Jónsdóttir,Sigríður Kristín Helgadóttir,Þorvaldur Víðisson skrifar
Skoðun Örvæntingarfullir bíleigendur í frumskógi bílastæðagjalda Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar
Skoðun Þegar hæstaréttarlögmenn kynda undir mismunun og kerfisbundnu ofbeldi Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Stjórnun, hönnun og framkvæmd öryggisráðstafana í Reynisfjöru Magnús Rannver Rafnsson skrifar
Skoðun Sorglegur uppgjafar doði varðandi áframhaldandi stríðin í dag Matthildur Björnsdóttir skrifar