Ég skvetti málningu á bandaríska sendiráðið en hér er opið bréf til utanríkisráðherra Margrét Rut Eddudóttir skrifar 6. október 2024 10:01 Þórdís Kolbrún, ég, Margrét Rut Eddudóttir hef nú mótmælt aðgerðaleysi þínu og ábyrgðarleysi í að verða eitt ár. Í eitt ár hafa þú og Bjarni Benediktsson lagt ykkur fram við að viðhalda þjóðarmorðinu í Palestínu og nú Líbanon. Þú talar um að sýna alþjóðlega ábyrgð með því að vopnavæða Úkraínu á meðan Bandaríkin nota þig eins og búktalara til þess að hvítþvo hryðjuverk sín í Mið-Austurlöndum. Þú berð nú persónulega ábyrgð á þessu þjóðarmorði í Palestínu og hefur gert mig og samlanda okkar samsek. Þessi hegðun þín teygir anga sína í sálarlíf okkar allra. Meðvirkni með ofbeldinu er að gjöreyða mannkyninu og ég neita að sitja hjá og það ættir þú að gera líka. Þú hefur talað töluvert fyrir hönd afganskra kvenna undanfarið. Það er sárt að sjá hvað þú ert tilbúin að eyða mikilli orku í það á meðan Ísrael og Bandaríkin myrða 6000 saklausar konur og 11000 börn. Samanlögð greining Oxfam og Action on Armed Violence (AOAV) leiðir í ljós að fleiri konur og börn hafa verið myrt á Gaza af ísraelska hernum (og Bandaríkjunum) á síðasta ári en í nokkrum öðrum átökum síðustu áratugi. Gögn AOAV sýna fram á að ísraelsk sprengjuvopn réðust á borgaralega innviði á Gaza að meðaltali einu sinni á þriggja klukkutíma fresti síðan 7. okt 2023. Í víðara samhengi átakanna greinir Oxfam frá því að auk þeirra þúsunda kvenna og barna sem eru drepin er fjöldi óþekktra, týndra eða grafinna undir rústum sem þýðir að fjöldi látinna er hærri en opinberar tölur staðfesta. Nýleg rannsókn Lancet bendir til þess að þegar tekið er tillit til óbeinna dauðsfalla þeirra sem stafa af hungri og skorts á heilbrigðisþjónustu - gæti raunverulegur fjöldi myrtra á Gaza farið yfir 186.000 manns. Þetta er allt bara í Gaza. Á Vesturbakkanum hefur Oxfam tilkynnt að yfir 680 Palestínumenn hafa verið myrtir af Ísrael síðan 7. okt. Yfir þúsundir árásir landnema hafa beinst að palestínsku landbúnaðarlandi, eyðilagt uppskeru, áveitukerfi og gróðurhús, þar á meðal alþjóðleg verkefni sem Oxfam styrkir. 2000 heimili hafa verið rifin sem eykur enn á mannúðarkreppuna af völdum Ísraels og Bandaríkjanna. Þetta eru allt upplýsingar sem liggja fyrir og hafa verið staðfestar víða frá áreiðanlegum heimildum. Samt sem áður ávarpaðir þú Sameinuðu Þjóðirnar og kenndir saklausu fólki í Palestínu um að það sé búið að sprengja hvert einasta sjúkrahús þar. Út frá óstaðfestum fregnum að Hamas væri undir hverjum einasta steini í Gaza. Ég veit ekki hvort þú gerir þér grein fyrir hversu þróaða tækni Ísrael er að vinna með til þess að misþyrma og myrða saklaust fólk á Gaza, en það þarf ekki mikla heimildavinnu til þess að komast að þeirri niðurstöðu að Ísrael er ekki að reyna útrýma Hamas. Ísrael er að reyna í samráði við Bandaríkin að sölsa undir sig landi. Þú veist líklegast líka að það eru ekki bara sjúkrahús sem eru sprengd heldur skólar, moskur og allir helstu samkomustaðir Palestínubúa þar á meðal svæði sem eiga að vera örugg. Fólki er sagt að flýja aftur og aftur á svo kölluð “safe zone” þar sem þau hafa stundum 15 til 30 mín til þess að yfirgefa svæðið svo enda þessi “öruggu svæði” á því að verða sprengd. Það er svo langur listi hér þar sem Ísrael og Bandaríkin hafa gerst brotleg á alþjóðalögum og ekki erfitt að leita sér heimilda þegar kemur að öllum þeim hryðjuverkum sem þetta tvíeyki heldur áfram að fremja. Nú eru áhyggjur síðustu mánuða að raungerast og ofbeldið er að breiðast út. Allt þetta hefði verið hægt að koma í veg fyrir hefðum við og nágrannaríki okkar tekið okkur saman og sett Bandaríkjunum mörk. En það hefur núna skýrst fyrir mér að Ísland er í raun ekki sjálfstætt ríki þegar kemur að því að standa vörð um mannréttindi. Nóg af upptalningu illskunnar og allt um það af hverju ég skvetti rauðri Málningu á Bandaríska sendiráðið Bandaríkin bera hér höfuð ábyrgð þar sem Ísrael fær 70% af vopnum sínum þaðan. Það er óhætt að segja að allt þetta mannsfall hefði aldrei átt sér stað ef að Bandaríkin væru ekki að knýja gjöreyðinguna áfram. Ísrael fær svo að valsa inn á þing Sameinuðu þjóðanna og þvaðra þar linnulaust og ljúga upp í opið geðið á heiminum sem horfir á þjóðarmorðið í beinni. Bandaríkin beita svo trekk í trekk neitunarvaldi til þess að greiða götu Ísrael við að halda blóðbaðinu áfram. Nú seinast sömdu Bandaríkin um að senda 8,7 billjón bandaríkjadali í formi hergagna til Ísrael. Það eru 1.186 milljarðar, tala sem fæst okkar skiljum, eða náum utan um. Þetta dúó heldur bara áfram að myrða börn og sakleysingja án þess að fá einu sinni smávægilega sekt. Svo já. Ég skvetti smávegis rauðri málningu á steinsteypu. Ég gerði það ein og ekki í samráði við neinn nema mína betri vitund til þess að að fordæma Bandaríkin, Ísrael, Þýskaland (sem á 29 prósent vopna sem send eru til Ísraels) og Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfadóttir sem tekur sér stöðu með Bandaríkjunum. Kröfur mínar eru sem áður Að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael, koma á viðskiptaþvingunum og að taka undir mál S-Afríku gegn Ísrael vegna þjóðarmorðsins í Palestínu í Alþjóðadómstólum. Síðast en ekki síst að mynda sjálfstæða skoðun um ástandið sem er ekki ritskoðuð af Bandaríkjunum og koma henni á framfæri og í jákvæðan farveg. Við sem þjóð erum of vel upplýst til þess að láta mata okkur á hlutdrægum fréttum valdhafanna og núna er tíminn til þess að móta okkar utanríkisstefnu með mannúð að leiðarljósi en ekki meðvirkni og eyðileggingu. Að lokum langar mig að þakka fyrir mig þennan dag. Þetta var falleg ganga þó svo að tilefnið hafi verið átakanlegt. Ég vil þó benda lögreglunni á að það hafi myndast töluverð hætta þar sem hún var ekki undirbúin að leiða hópinn í gegnum umferðina við gatnamótin Suðurlandsbraut, Kringlumýrarbraut. Lukkulega voru engin slys og þetta verður vonandi athugað fyrir næstu göngu. Auðmjúk málningarskvettukveðja, Margrét Rut Eddudóttir Höfundur er sjúkraliði og myndlistarkona. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Sendiráð á Íslandi Mest lesið PCOS: Er ódýrara að halda heilsu eða meðhöndla veikindi? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Miðbær Selfoss vekur ánægju Bragi Bjarnason Skoðun Flumbrugangur í framhaldsskólum Jón Pétur Zimsen Skoðun Be Kind - ekki kind Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir ,Perla Magnúsdóttir Skoðun Enn einn kvennahópurinn sem þarf bara að vera duglegri að harka af sér? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Opinn og alþjóðlegur: Krísa erlendra nemenda við íslenska háskóla Melissa Anne Pfeffer Skoðun Illa verndaðir Íslendingar Sighvatur Björgvinsson Skoðun Hróplegt óréttlæti í lífeyrismálum Finnbjörn A. Hermansson Skoðun Móðir í Breiðholti hjólar 5.000 kílómetra Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Viðreisn afhjúpar sig endanlega Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Enn einn kvennahópurinn sem þarf bara að vera duglegri að harka af sér? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Flumbrugangur í framhaldsskólum Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Miðbær Selfoss vekur ánægju Bragi Bjarnason skrifar Skoðun PCOS: Er ódýrara að halda heilsu eða meðhöndla veikindi? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Opinn og alþjóðlegur: Krísa erlendra nemenda við íslenska háskóla Melissa Anne Pfeffer skrifar Skoðun Be Kind - ekki kind Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir ,Perla Magnúsdóttir skrifar Skoðun Illa verndaðir Íslendingar Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Viðreisn afhjúpar sig endanlega Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Heimalestur – gæðastund en ekki grátur og gnístan tanna Svava Þ. Hjaltalín skrifar Skoðun Frelsi til sölu Erling Kári Freysson skrifar Skoðun Vangaveltur um íslenskt barnaefni – Hvers vegna skiptir það máli að börn heyri sjálf sig? Tinna Björg Kristinsdóttir,Valdimar Gylfason skrifar Skoðun Móðir í Breiðholti hjólar 5.000 kílómetra Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Viðreisn lætur verkin tala Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sterkara framhaldsskólakerfi Guðmundur Ingi Kristinsson skrifar Skoðun Hægfara endalok sjónvarps útsendinga fyrir móttöku á loftneti á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Eru Íslendingar feigir? Olíuvinnsla! Sigurður Loftur Thorlacius skrifar Skoðun Ástæðan fyrir því að við þurfum möguleika á dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Heimur á heljarþröm? Innflutningur á hatursorðræðu til Íslands! Arna Magnea Danks skrifar Skoðun Einföld og skiljanleg kerfi sem virka fyrir fólk og fyrirtæki Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Er veganismi á undanhaldi? Aldís Amah Hamilton,Kristín Helga Sigurðardóttir,Adelina Antal,Hanna Halldórsdóttir,Sigrún Elfa Kristinsdóttir,Lowana Veal skrifar Skoðun Lýðræðið tekið úr höndum nemenda í Lundarskóla Benedikt Már Þorvaldsson skrifar Skoðun Geðheilbrigði er mannréttindamál Svava Arnardóttir skrifar Skoðun Stuðningsyfirlýsing forstöðumanna Sólheima Elfa Björk Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Sniðganga fyrir Palestínu Hólmfríður Drífa Jónsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hrönn G. Guðmundsdóttir,Katrín Björg Þórisdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir,Yvonne Höller skrifar Skoðun Tími skyndilausna á húsnæðismarkaði er liðinn Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Lýðræði í mótvindi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Orka Breiðafjarðar Ingólfur Hermannsson skrifar Skoðun Axarvegur styttir leiðina milli Suðurlands og Egilsstaða um tæpa 70 km Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin svíkur verkafólk: Ætlar að leggja niður jöfnunarframlagið Vilhjálmur Birgisson skrifar Skoðun Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda Eldur Smári Kristinsson skrifar Sjá meira
Enn einn kvennahópurinn sem þarf bara að vera duglegri að harka af sér? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Enn einn kvennahópurinn sem þarf bara að vera duglegri að harka af sér? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar
Skoðun Opinn og alþjóðlegur: Krísa erlendra nemenda við íslenska háskóla Melissa Anne Pfeffer skrifar
Skoðun Vangaveltur um íslenskt barnaefni – Hvers vegna skiptir það máli að börn heyri sjálf sig? Tinna Björg Kristinsdóttir,Valdimar Gylfason skrifar
Skoðun Hægfara endalok sjónvarps útsendinga fyrir móttöku á loftneti á Íslandi Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Einföld og skiljanleg kerfi sem virka fyrir fólk og fyrirtæki Hanna Katrín Friðriksson skrifar
Skoðun Er veganismi á undanhaldi? Aldís Amah Hamilton,Kristín Helga Sigurðardóttir,Adelina Antal,Hanna Halldórsdóttir,Sigrún Elfa Kristinsdóttir,Lowana Veal skrifar
Skoðun Sniðganga fyrir Palestínu Hólmfríður Drífa Jónsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hrönn G. Guðmundsdóttir,Katrín Björg Þórisdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir,Yvonne Höller skrifar
Skoðun Axarvegur styttir leiðina milli Suðurlands og Egilsstaða um tæpa 70 km Kristján Ingimarsson skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin svíkur verkafólk: Ætlar að leggja niður jöfnunarframlagið Vilhjálmur Birgisson skrifar
Skoðun Hinsegináætlun stjórnvalda – pólitísk hugmyndafræði í stað staðreynda Eldur Smári Kristinsson skrifar
Enn einn kvennahópurinn sem þarf bara að vera duglegri að harka af sér? Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun