Við heyrum reynslusögur íbúa í Úkraínu, sem upplifað hafa loftárásir á borg sína Poltova, en Elín Margrét Böðvarsdóttir fréttamaður heimsótti borgina í dag.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur tilkynnt að hún muni láta af formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga í vikunni, og lækka þar með í launum um tæplega 900 þúsund krónur. Borgarstjóri ræðir ákvörðun sína í kvöldfréttatímanum.
Við fjöllum um mótmæli við ríkisstjórnarfund vegna stöðunnar á Gasa, heyrum merkilega sögu leiguflugs á Íslandi, fáum nýjar fréttir af Ölfusárbrú og ræðum við goðsögn í íslenskum handbolta, sem óvíst er að geti spilað aftur eftir erfið veikindi.
Þetta og fleira í kvöldfréttum í beinni útsendingu á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni á klukkan hálf sjö.