Innlent

Hópslysaáætlun virkjuð á Snæ­fells­nesi

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Slysið varð í Seljafirði.
Slysið varð í Seljafirði. Já.is

Rúta með um fjörutíu manns innbyrðis fór út af veginum á Snæfellsnesi. Hópslysaáætlun hefur verið virkjuð. 

Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, í samtali við fréttastofu. Allar björgunarsveitir í nágrenni eru á leið á vettvang.

Hann sagðist ekki getað gefið upp nákvæma staðsetningu rútunnar en samkvæmt heimildum fréttastofu var rútan í Seljafirði, á norðanverðu Snæfellsnesi. Heimildir herma einnig að rútan sé á hvolfi.

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið ræst út nokkrar mínútur í sex að sögn Guðmundar Birkis aðgerðarstjóra.

Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, segir viðbragðsaðila mætta á vettvang og allir séu komnir út úr rútunni. Nú sé verið að hlúa að fólkinu sem var í rútunni. Samhæfingarmiðstöð Almannavarna hefur verið virkjuð.

„Þetta lítur betur út en á horfðist,“ segir hún.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×