Enginn læknir á vakt frá 22. desember Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. nóvember 2025 12:00 Erfitt ástand hefur skapast á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna manneklu. Vísir/Viktor Freyr Erfitt ástand hefur skapast á Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna læknaskorts en enginn læknir er á vakt á sjúkrahúsinu eftir 22. desember. Þrír læknar hafa sagt upp störfum vegna álags.
Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélagsins segir heimild vanta til að hægt sé að tryggja viðunandi mönnun á sjúkrahúsinu. Læknafélagið fór norður í gær og fundaði með læknum og yfirstjórn sjúkrahússins vegna málsins. „Við höfum verið að fylgjast lengi með ástandinu á Akureyri sem hefur verið erfitt, meðal annars með mönnun lækna. Þessi uppsögn ferliverka sem átti sér stað fyrr í haust, sem hefur verið ttöluvert í fjölmiðlum hefur ekki bætt úr skák,“ segir Steinunn. Stjórnendur sjúkrahússins fengu í haust fyrirmæli um að segja upp samningum við þrettán sérfræðilækna við spítalann. Ferilverkasamningum var sagt upp i haust en heilbrigðisráðuneytið telur þá auðvelda læknum að rukka fyrir gerviverktöku. Heimildir til að manna ekki nægar Steinunn segir að nálgast þurfi þjónustu á landsbyggðinni á annan hátt en í Reykjavík. „Þetta er öðruvísi þjónusta, það þarf að fjármagna hana öðruvísi og ég held að þetta kalli á gagngera endurskoðun á því hvaða fjárveitingar fara til sjúkrahússins og hvernig þau hafa heimildir til að manna. Sem er greinilega ekki nægjanlegt í dag.“ Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands segir læknana marga á stöðgri vakt, allan sólarhringinn, allan ársins hring.Vísir/Arnar Frá 22. desember næstkomandi er enginn læknir á vaktinni á Sjúkrahúsinu og samkvæmt heimildum fréttastofu hafa læknar bæði sagt sig af vöktum og sagt upp störfum vegna álags. Steinunn segir að neyðarkall hafi verið sent út á lækna um allt land til að reyna að bjarga málunum. Hljóðið í læknunum sé mjög þungt. „Enda eru þessir hópar búnir að standa undir mjög viðamikilli þjónustu í mikilli manneklu mjög lengi og það eru margir þarna sem eru á krónískri vakt, það er alltaf hringt í viðkomandi, allan sólarhringinn, allt árið í raun,“ segir Steinunn. Varasjúkrahús þjóðarinnar allrar Veita þurfi sjúkrahúsinu heimild til að fjölga læknum. Ekki gangi að þar sé einn læknir í hverri sérgrein og enginn til að leysa af. Steinunn bendir á að sjúkrahúsið þjónusti mörg þúsund manns alla jafna en sé jafnframt varasjúkrahús allra landsmanna. „Við verðum að vera viðbúin eins og allar aðrar þjóðir við mögulegum áföllum og að eitthvað raski til að mynda starfsemi Landspítalans.“
Sjúkrahúsið á Akureyri Akureyri Heilbrigðismál Tengdar fréttir Segir stöðuna á sjúkrahúsinu á Akureyri grafalvarlega Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir stöðuna á sjúkrahúsi Akureyrar grafalvarlega í kjölfar þess að stjórnendur hafi fengið fyrirmæli um að segja upp samningum við sérfræðilækna. Heilbrigðisráðherra segir ekki rétt að þau fyrirmæli hafi komið frá henni, tryggja þurfi þjónustuna með öllum ráðum, málið sé í farvegi hjá forstjóra sjúkrahússins. 7. október 2025 13:57 Mest lesið Kvígurnar kvaddar eftir meinta kúvendingu Landsvirkjunar Innlent Ungur drengur fékk púður úr flugeldi í augað Innlent Íbúar grátandi og í miklu uppnámi yfir flutningi Kaffistofunnar Innlent „Fasistinn“ og „kommúnistinn“ grófu stríðsöxina Erlent Ósætti um frysta sjóði Rússa: „Witkoff þarf á geðlækni að halda“ Erlent Hættir á þingi vegna deilna við Trump Erlent Björk og Rosalía í hart við íslenska ríkið Innlent Pútín tekur vel í „friðaráætlun Trumps“ Erlent Þrír læknar hafa sagt upp á Akureyri vegna álags Innlent Staðsetning flugeldanna endurskoðuð vegna drengsins Innlent Fleiri fréttir Staðsetning flugeldanna endurskoðuð vegna drengsins Björk og Rosalía í hart við íslenska ríkið Þrír læknar hafa sagt upp á Akureyri vegna álags Læknaskortur á Akureyri og Björk og Rosalía í hart við ríkið Endaði á ljósastaur eftir flótta undan lögreglu Kvígurnar kvaddar eftir meinta kúvendingu Landsvirkjunar Ungt fólk glími við offitu eftir einangrun í kjölfar Covid Ungur drengur fékk púður úr flugeldi í augað Íbúar grátandi og í miklu uppnámi yfir flutningi Kaffistofunnar Viðreisn hafi tekið upp málflutning Miðflokksins Hernaðarstuðningur hækkar ekki og Rutte kunnugt um „íslenska öryggismódelið“ 80% nemenda á Laugarvatni eru í kór menntaskólans Ráðherra hvatti börn til þess að mótmæla bókstafakerfi Flestir vilja að störf sérstaks saksóknara verði rannsökuð Meira í varnarmál og heitar umræður í beinni Erlendum vasaþjófum vísað úr landi Stöðvuðu stækkun Sigöldustöðvar Kanna fýsileika landeldis á Bakka Hyggjast reisa fjörutíu íbúðir í raðhúsum í Breiðholti Vara við netsvikum í nafni Skattsins Tæp tvö ár fyrir smygl á tæpum tveimur kílóum af kókaíni Hafa áhyggjur af fjármögnun loftslagsaðgerða stjórnvalda Stöðvar framkvæmdir við nýja Kaffistofu Samhjálpar Öryrkjar fá nú síður gjafsókn Fjörðurinn orðinn tvöfalt stærri Sveinn Óskar leiðir listann áfram Foreldrar eigi líka að leggja símann frá sér Samgönguáætlun ekki afgreidd á haustþingi Spáir enn desembergosi Ný fjármögnunarleið að ryðja sér til rúms og friðaráætlun í Úkraínu gagnrýnd Sjá meira
Segir stöðuna á sjúkrahúsinu á Akureyri grafalvarlega Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir stöðuna á sjúkrahúsi Akureyrar grafalvarlega í kjölfar þess að stjórnendur hafi fengið fyrirmæli um að segja upp samningum við sérfræðilækna. Heilbrigðisráðherra segir ekki rétt að þau fyrirmæli hafi komið frá henni, tryggja þurfi þjónustuna með öllum ráðum, málið sé í farvegi hjá forstjóra sjúkrahússins. 7. október 2025 13:57