Viðskipti innlent

Martraðarverktaki Kópa­vogs­bæjar greiddi ekki krónu með gati

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Gamli Kársnesskóli árið 2018 þegar niðurrif á honum var í fullum gangi.
Gamli Kársnesskóli árið 2018 þegar niðurrif á honum var í fullum gangi. Vísir/Vilhelm

Ekki króna fékkst upp í 2,6 milljarða króna gjaldþrot ítalska verktakafyrirtækisins Rizzani de Eccher Ísland ehf. sem kalla mætti martröð Kópavogsbæjar eftir deilur við byggingu Barnaskóla Kársness. Undirverktakar sitja eftir með sárt ennið og ógreidda reikninga. Kópavogsbær undirbýr skaðabótamál á hendur móðurfyrirtækinu.

Ítalski verktakarisinn Rizzani de Eccher stofnaði samnefnt félag á Íslandi árið 2017. Félagið vakti nokkra neikvæða athygli fyrstu árin og datt svo í lukkupottinn árið 2021 þegar það varð hlutskarpast í útboði Kópavogsbæjar um byggingu nýs Kársnesskóla sem í dag heitir Barnaskóli Kársness.

Kársnesskóli hafði þá verið rifinn eftir mikið mygluvandamál og farið í útboð vegna endurreisnarinnar. 

Sex íslensk verktakafyrirtæki buðu í verkið en svo fór að Rizzani de Eccher átti besta tilboðið upp á 3,2 milljarða króna. Ístak bauð rúmum sextíu milljónum krónum hærra í verkið sem telja má líklegt að hefði verið farsælli niðurstaða fyrir Kópavogsbæ.


Verktaka sem buðu í verkið og tilboð þeirra

3.200.153.376 kr. - Rizzani de Eccher S.p.A.

3.238.854.220 kr. - Ístak hf.

3.519.014.085 kr. - ÞG verktakar

3.583.163.276 kr. - Íslenskir aðalverktakar hf.

3.632.187.536 kr. - Framkvæmdafélagið Arnarhvoll

3.795.362.779 kr. – Flotgólf ehf.

5.598.330.621 kr. – Eykt


Kostnaðaráætlun Kópavogsbæjar hljóðaði upp á rúma 3,6 milljarða og var útboðið það stærsta sem bærinn hafði ráðist í. Til stóð að ljúka verkinu í maí 2023 en verkefnið hljóðaði upp á sameiginlegan leik- og grunnskóla upp í fjórða bekk, framkvæmd upp á rúmlega 5700 fermetra.

Bæjarstjórn Kópavogs ákvað í maí 2023 að rifta verksamningi við verktakafyrirtækið vegna ýmissa galla sem komið hefðu upp og þeirrar staðreyndar að ekki hefði verið sinnt fullnægjandi úrbótum þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir. Í ljós hafði komið að rakaskemmdir og mygluvandræði voru þegar að gera vart við sig á byggingartíma.

Málið kom til kasta Gerðardóms sem komst að þeirri niðurstöðu að Kópavogsbær væri í fullum rétti að rifta samningnum.

Kópavogsbær gerði í framhaldinu kröfu um að verktakinn yrði tekinn til gjaldþrotaskipta og samþykkti Héraðsdómur Reykjavíkur í september að taka búið til gjaldþrotaskipta. Engar eignir fundust í búinu og var skiptum lokið í lok nóvember.

Grímur Már Þórólfsson, skiptastjóri Rizzani de Eccher, segir engan rekstur hafa verið í fyrirtækinu eftir að Kópavogsbær rifti samningnum. Stærsti kröfuhafinn sé Kópavogsbær með skaðabótakröfu upp á á annan milljarð króna og svo undirverktakar sem fengu ekki greitt frá ítalska fyrirtækinu. Ekki hafi tekist að ná í fyrirsvarsmenn fyrirtækisins og aðeins náðst samtal við lögmann ítalska móðurfélagsins.

Samkvæmt heimildum Vísis er málinu ekki lokið af hálfu Kópavogsbæjar sem hyggst sækja rétt sinn gagnvart móðurfyrirtækinu á Ítalíu.

Bæjarstjóri heimsótti Barnaskóla Kársness þegar hann tók til starfa í ágúst.Kópavogur.is

Annars er það að frétta af Barnaskóla Kársness að hann tók til starfa í ágúst og er samrekinn leik- og grunnskóli fyrir 1. til 4. bekk. Í honum eru tæplega 300 börn á grunnskólaaldri og 40 börn á leikskólaaldri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×