Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Aron Guðmundsson skrifar 4. febrúar 2026 18:02 Pep Guardiola er knattspyrnustjóri Manchester City Vísir/Getty Ekki er hægt að slá því föstu að Pep Guardiola verði knattspyrnustjóri Manchester City á næsta tímabili. Lið í kringum Manchester City eru farin að nota óvissuástandið til þess að reyna klekkja á City.
Ítarleg grein birtist nú síðdegis á vef BBC þar sem farið er yfir áætlanir Manchester City er snúa að því að byggja upp leikmannahóp liðsins og búa sig undir lífið án Pep Guardiola í starfi knattspyrnustjóra liðsins. Núgildandi samningur Guardiola rennur út eftir tímabilið 2026-27 en heimildir BBC herma að mikil óvissa ríki varðandi það hvort Spánverjinn muni yfir höfuð halda inn í síðasta tímabilið á sínum samningi eftir yfirstandandi tímabil. Búist sé við því að Guardiola ákveði framhaldið hjá sér þegar að dregur nær lokum yfirstandandi tímabils eða skömmu eftir að því lýkur. „Og ef Guardiola ákveður að halda áfram inn í næsta tímabil er jafnframt talið ólíklegt að hann muni framlengja samning sinn hjá Manchester City.“ Jákvæður andi er ríkjandi hjá Manchester City eftir nýafstaðinn félagsskiptaglugga þar sem að liðið náði að styrkja sig með tveimur sterkum bitum í þeim Marc Guehi og Antoine Semenyo. Báðir voru þeir eftirsóttir af öðrum félögum og herma heimildir BBC að framkvæmdastjórar annarra félaga hafi reynt að sá fræjum efasemdar í huga leikmannanna með því að nefna óvissuna í kringum framtíð Guardiola. Sem stjóri Manchester City hefur Pep Guardiola sex sinnum gert liðið að Englandsmeistara, í tvígang hefur Manchester City unnið enska bikarinn undir hans stjórn og einu sinni unnið Meistaradeild Evrópu. Eru þá ekki taldir upp titlar félagsins í enska bikarnum, Samfélagsskildinum, Ofurbikarnum og Heimsmeistarakeppni félagsliða sem eru saman alls níu talsins.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjá meira