Gagnrýnda kynslóðin og glötuðu kennararnir Álfhildur Leifsdóttir skrifar 1. mars 2026 08:33 Í umræðunni um skólakerfið okkar eru sífellt háværari raddir um kennaraskort, aukið álag, hegðunarvanda og sífellt fjölbreyttari verkefni sem lenda á herðum skólanna. Það er auðvelt að telja upp vandamálin en flóknara er að tala um lausnir af ábyrgð. Til að bæta skólastarfið þarf að horfa bæði inn á við á skólastarfið sjálft en líka út á við, á samfélagið sem skólinn starfar í. Það verður að horfa á heildarmyndina, auka samvinnu við heimili um leið taktur samfélagsins þarf að róast. Sýndarsamráð stjórnvalda Gæði menntunar ráðast ekki af stefnumótandi skjölum sem hafa farið í gegnum sýndarsamráð í samráðsgátt, líkt og reglugerð um samræmt námsmat á dögunum, þar sem hundsaðar voru fjölmargar umsagnir sem vöruðu við samanburði skóla. Slíkur samanburður milli skóla tekur ekki mið af ólíkum félagslegum, menningarlegum og landfræðilegum forsendum þeirra og getur þannig aukið ójöfnuð fremur en gagnsæi. Breytingar í menntakerfinu verða að byggja á faglegri þekkingu og samráði við þá sem starfa í skólunum því gæði menntunar ræðst fyrst og fremst af fólkinu sem stendur á gólfi kennslustofunnar á hverjum degi. Þess vegna ætti að leggja áherslu á að styrkja starfsumhverfi kennara og námsumhverfi nemenda en það má gera með að fækka nemendum í umsjá kennara, auka stuðning innan skólanna og tryggja tíma til undirbúnings og fagþróunar. Það eru forsendur gæða skólastarfs. Hvert er kjarnahlutverk skólanna? Á undanförnum árum hefur sífellt fleiri verkefnum verið bætt á skólana eins og forvörnum, geðheilbrigðisstuðningi, tæknimenntun, lýðræðisfræðslu, fjölmenningarstarfi og fleiri mikilvægum verkefnum. Þannig þenst hlutverk skólans út án þess að tíminn til undirbúnings fleiri verkefna eða mannaflinn aukist í takt. Við þurfum að skilgreina kjarnahlutverk skólans betur og hætta að bæta sífellt við verkefnin án þess að styrkja grunninn. Kennarar þurfa að hafa aðgang að vönduðum námsgögnum sem eru í takt við tímann en þar er verulegur skortur á. Eins þarf raunverulegan stuðning við innleiðingu nýrra aðferða og tækni til að kennarar séu öryggir í sinni fagmennsku. Rólegri samfélagstakt takk En vandi skólakerfisins er líka samfélagsvandi. Skólinn á að sjá um menntun barna og foreldrar eiga að bera frumábyrgð á uppeldi þeirra. Þessi mörk hafa orðið óljósari á undanförnum árum. Kennarar finna í auknum mæli fyrir því að verkefni sem áður voru fyrst og fremst á ábyrgð heimila lenda meira á þeirra herðum, hvort sem það varðar grunnreglur samskipta, sjálfsaga eða viðhorf til náms. Ástæðan er eflaust sú að foreldrar standa sjálfir frammi fyrir auknu álagi og flóknara samfélagi en áður, samfélagi sem þarf að róa sig. Öflugt samstarf heimila og skóla byggir á gagnkvæmri virðingu og skýrri verkaskiptingu. Virðing fyrir kennarastarfinu er lykilatriði en hún birtist ekki aðeins í orðum heldur líka í kjörum, starfsumhverfi, trausti og því hvernig fjallað er um starf kennara inni á heimilum og í opinberri umræðu. Að draga störf kennara sífellt í efa eða gera þá ábyrga fyrir víðtækum samfélagsvanda er ekki til að auka gagnkvæma virðingu og efla samtarf. Trúum á unga fólkið okkar Við sem samfélag berum einnig sameiginlega ábyrgð á því hvernig við tölum um unga fólkið okkar. Þegar almenn umræða einkennist af neikvæðum alhæfingum um leti, ólæsi, ábyrgðarleysi eða skort á þrautseigju þá er verið að grafa undan sjálfstrausti heillar kynslóðar. Fjölmiðlar, stjórnmálafólk og við sem samfélag þurfum að vanda umræðuna og hætta að hampa röddum sem tala unga fólkið okkar sífellt niður. Unga kynslóðin stendur frammi fyrir flóknari áskorunum en kynslóðirnar á undan henni í formi hraðari tækniþróunar, aukinni samfélagsmiðlanotkun og breyttum samfélagslegum væntingum. Unga fólkið þarf stuðning, leiðsögn, traust og aukna trú á eigin getu en ekki sífellda gagnrýni á það sem þau eru ekki. Orðræða okkar mótar framtíðina þeirra. Höfundur er grunnskólakennari í Skagafirði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Álfhildur Leifsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar