„Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum“ Lovísa Arnardóttir skrifar 19. mars 2026 08:09 Dýraverndunarsamband Íslands segir aðbúnað í loðdýrarækt ekki viðunandi og kallar eftir því að starfsemin verði bönnuð. Vísir/Sigurjón Dýraverndunarsamband Íslands, DÍS, segir ljóst að aðbúnaður dýra í loðdýraeldi samræmist ekki lögum um velferð dýra. Samtökin kalla eftir því að stjórnvöld banni loðdýraeldi.
Í yfirlýsingu frá DÍS er bent á að lög um dýravelferð kveði á um að dýr séu laus við þjáningu, sársauka og meiðsli og að þau geti sýnt sitt náttúrulegt atferli eins og frekast er unnt. Fjallað var um loðdýraeldi í Kveik á RÚV fyrr í vikunni. Þar var sýnt myndefni frá þremur minkabúum og mátti sjá á myndefninu blóðug og sár dýr sem sum voru farin að naga sig að beini. Yfirdýralæknir sagði í Kveik að hún teldi réttast að endurskoða lög um loðdýrarækt. Fjallað var um það seint á síðasta ári á fimm loðdýrabúum hefði verið lokað í fyrra og aðeins eitt stæði eftir. Rætt var við síðasta loðdýrabóndann í kvöldfréttum Sýnar í desember. Upplifi streitu í litlum búrum Í yfirlýsingu DÍS segir að minkunum sé haldið í litlum vírbúrum og að þar upplifi þeir mikla streitu. Það geti leitt til sjálfsskaðandi hegðunar. „Dýrin eru jafnframt aflífuð með kolmonoxíð gasi sem er grimmilegt því það getur tekið nokkrar mínútur fyrir dýrin að deyja með slíkri aflífunaraðferð. Við aflífun upplifa þessi dýr dauðastríð sem er andstætt lögum. Um er að ræða gróft dýraníð,“ segir í yfirlýsingunni. 24 lönd hafi bannað Þar kemur einnig fram að alls hafi 24 lönd í Evrópu bannað loðdýrahald vegna dýravelferðarsjónarmiða, nú síðast Pólland sem hefur verið leiðandi í framleiðslu loðdýraskinna í Evrópu. „Ísland ætti ekki að vera undanskilið þessari þróun heldur taka af skarið og banna með skýrum hætti loðdýraeldi. Slíkt bann myndi senda skýr skilaboð um að velferð dýra sé sett í forgang og að samfélagið sætti sig ekki við atvinnugreinar sem byggja á þjáningu og vanvirðingu gagnvart dýrum,“ segir í yfirlýsingunni. Þar kalla samtökin eftir því að stjórnvöld fylgi fordæmi annarra þjóða sem hafa bannað loðdýraeldi.
Loðdýrarækt Dýr Dýraheilbrigði Pólland Félagasamtök Tengdar fréttir Öll minkaskinn seldust upp í Kaupmannahöfn Uppboð á minkaskinnum í Kaupmannahöfn í vikunni færir íslenskum loðdýrabændum vonarglætu á ný eftir sjö mögur ár. Öll skinn seldust upp og var meðalverð tólf prósentum hærra í dönskum krónum en í fyrra. 3. mars 2023 22:00 Tvö þúsund íslenskum minkum ætlað að fara fyrir upprisu nýs dansks minkastofns Til stendur að flytja tvö þúsund minka frá Íslandi til Danmerkur. Innflutningurinn er liður í því að koma minkarækt aftur af stað í Danmörku eftir að öllum minkum landsins var lógað síðla árs 2020 til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. 12. desember 2022 09:38 Vona að minkar á Íslandi geti bjargað danska stofninum frá endanlegum dauða Danskir minkabændur hafa heimsótt íslenska starfsbræður sína síðustu daga og binda þeir vonir við að minkar á Íslandi geti bjargað danska minkastofninum frá endanlegum dauða. Danskt blóð rennur í æðum íslenskra minka, en eins og mikið var fjallað um var öllum minkum í Danmörku árið 2020 vegna útbreiddra kórónuveirusmita. 17. mars 2022 10:32 Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira
Öll minkaskinn seldust upp í Kaupmannahöfn Uppboð á minkaskinnum í Kaupmannahöfn í vikunni færir íslenskum loðdýrabændum vonarglætu á ný eftir sjö mögur ár. Öll skinn seldust upp og var meðalverð tólf prósentum hærra í dönskum krónum en í fyrra. 3. mars 2023 22:00
Tvö þúsund íslenskum minkum ætlað að fara fyrir upprisu nýs dansks minkastofns Til stendur að flytja tvö þúsund minka frá Íslandi til Danmerkur. Innflutningurinn er liður í því að koma minkarækt aftur af stað í Danmörku eftir að öllum minkum landsins var lógað síðla árs 2020 til að stemma stigu við útbreiðslu kórónuveirunnar. 12. desember 2022 09:38
Vona að minkar á Íslandi geti bjargað danska stofninum frá endanlegum dauða Danskir minkabændur hafa heimsótt íslenska starfsbræður sína síðustu daga og binda þeir vonir við að minkar á Íslandi geti bjargað danska minkastofninum frá endanlegum dauða. Danskt blóð rennur í æðum íslenskra minka, en eins og mikið var fjallað um var öllum minkum í Danmörku árið 2020 vegna útbreiddra kórónuveirusmita. 17. mars 2022 10:32