Samfélag sem stendur með fólki Valdimar Víðisson skrifar 20. apríl 2026 07:45 Þegar fólk glímir við geðrænan vanda skiptir sköpum að þjónustan sé til staðar í nærumhverfinu. Þar gegna sveitarfélög lykilhlutverki. Það er einfaldlega ekki ásættanlegt að fólk þurfi að leita langt eftir grunnstuðningi eða bíða mánuðum saman eftir viðeigandi úrræðum. Við sem samfélag verðum að horfast í augu við þessa ábyrgð af festu og alvöru. Það dugar ekki að vísa frá sér verkefninu eða vona að aðrir leysi það. Fólk þarf þjónustu, stuðning og húsnæði sem hæfir aðstæðum þess. Markviss uppbygging hefur skilað árangri Á undanförnum árum hefur Hafnarfjörður tekið mikilvæg skref í húsnæðismálum. Félagslegum íbúðum hefur verið fjölgað og við höfum lagt aukna áherslu á að efla grunnþjónustu og styrkja innviði fyrir íbúa sem þurfa á stuðningi að halda. Það hefur verið skýr stefna að byggja upp sterkari grunn, stytta biðlista og tryggja að fleiri hafi raunhæfan möguleika á öruggu húsnæði og viðeigandi stuðningi. Í nýjum hverfum höfum við jafnframt lagt áherslu á að samfélagsþjónusta og íbúðauppbygging fari saman. Það skiptir máli, því gott samfélag byggist ekki eingöngu á fermetrum heldur líka á aðgengi, stuðningi og öryggi. Þessi vinna hefur skilað árangri fyrir marga íbúa. En hún dugir ekki ein og sér. Enn er skortur á sértækum úrræðum Þrátt fyrir framfarir síðustu ára blasir við að enn er skortur á sértækum búsetuúrræðum fyrir fólk með alvarlegan geðrænan vanda. Þar þurfum við að gera betur. Raunin er sú að þörfin hefur vaxið hraðar en uppbyggingin. Það þýðir að fólk sem þarf mikinn og sérhæfðan stuðning fær hann ekki alltaf á réttum tíma eða á réttu þjónustustigi. Það er ekki staða sem við eigum að sætta okkur við. Við þurfum því að stíga næsta skref. Það felst í því að fjölga búsetuúrræðum á mismunandi þjónustustigum, stig I, II og III, þannig að fólk fái stuðning sem hæfir aðstæðum þess og þörfum. Slík uppbygging er forsenda þess að fólk geti lifað mannsæmandi lífi, fengið stöðugleika og byggt upp sjálfstæði sitt. Húsnæði og þjónusta verða að haldast í hendur Við vitum að öruggt húsnæði eitt og sér leysir ekki allan vanda. Á sama hátt dugar góð þjónusta illa ef fólk hefur ekki stöðugan samastað. Þetta þarf að haldast í hendur. Þess vegna snýst verkefnið ekki bara um að byggja fleiri íbúðir. Það snýst líka um að tryggja þjónustuna sem fylgir. Það þarf fagfólk, samfelldan stuðning og gott samstarf milli sveitarfélags, ríkis og heilbrigðiskerfis. Það þarf að tryggja mönnun, samfellu og raunhæfa framkvæmd. Það er líka mikilvægt að hafa í huga að með því að grípa fyrr inn í, tryggja viðeigandi húsnæði og veita stuðning við hæfi getum við komið í veg fyrir að vandi þyngist og verði fjárhagslega kostnaðarsamari síðar. Enginn má standa úti án úrræðis Við verðum líka að horfast í augu við annan og mjög erfiðan veruleika. Það er fólk í mjög þungri stöðu, oft með fjölþættan vanda og í neyslu, sem þarf ekki aðeins langtímalausnir heldur neyðaraðstoð hér og nú. Þegar neyðarskýli eru full má það aldrei þýða að fólk standi einfaldlega úti án úrræðis. Ef íbúi úr Hafnarfirði kemst ekki að í gistiskýli á höfuðborgarsvæðinu þá verðum við að hafa svar. Þess vegna þarf Hafnarfjörður að hafa skýra viðbragðsáætlun um neyðaraðstoð fyrir fólk í þessari stöðu. Slík áætlun þarf að tryggja að bærinn geti brugðist tafarlaust við, hvort sem það er með samstarfssamningum um neyðarpláss, tímabundnu bráðabirgðaskjóli, aukinni vettvangsþjónustu eða nánu samstarfi við önnur sveitarfélög, heilbrigðisþjónustu og meðferðarúrræði. Markmiðið á að vera einfalt og skýrt, enginn íbúi á að vera skilinn eftir án viðbragðs vegna þess að annað úrræði er fullt. Það er ekki ásættanlegt. Ábyrgðin er okkar Ábyrgðin liggur hjá okkur sem samfélagi og við ætlum að axla hana. Á næstu árum þurfum við að halda áfram að fjölga félagslegum íbúðum og leggja sérstaka áherslu á sértæk búsetuúrræði fyrir fólk með geðrænan og fjölþættan vanda. Við þurfum jafnframt að tryggja að neyðaraðstoð sé raunveruleg þegar á reynir, ekki bara í orði heldur á borði. Það er verkefni sem krefst bæði fjárfestingar og mannafla en fyrst og fremst pólitísks vilja og skýrrar sýnar. Því á endanum snýst þetta ekki bara um húsnæði. Þetta snýst um það hvort samfélagið okkar standi með þeim sem þurfa mest á því að halda. Það er mælikvarði á samkennd okkar, ábyrgð og manngildi. Og þar eigum við ekki að sætta okkur við neitt minna en að gera betur. Höfundur er oddviti Framsóknar í Hafnarfirði og bæjarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar