Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Kjartan Kjartansson skrifar 24. apríl 2026 08:55 Þóra Jónasdóttir, yfirdýralæknir hjá MAST. Vísir Óvanalega mikið hefur verið um að starfsfólk Matvælastofnunar sé áreitt og því hótað að undanförnu, að sögn yfirdýralæknis stofnunarinnar. Hún segir dæmi um að starfsfólk upplifi óöryggi heima hjá sér vegna ógnana.
Hótanirnar eru sagðar tengjast sérstaklega afskiptum MAST af dýrhaldi og þvingunarúrræðum sem stofnunin beitir þegar brotið er á velferð dýra. Í tilkynningu á vef stofnunarinnar segir að myndir af starfsfólki séu birtar á samfélagsmiðlum og það nafngreint. Áreitið hafi gengið það langt að sumt starfsfólk upplifi sig ekki öruggt heima hjá sér og dæmi séu um að það hafi sett upp öryggiskerfi og óttist um börnin sín. Einnig hafi skyldmenni starfsfólks fengið ógnandi og óviðeigandi skilaboð um nætur. Þóra Jónasdóttir, yfirdýraæknir MAST, sagði starfsfólk stofnunarinnar hafa verið slegið eða því hrint í störfum sínum í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Í alvarlegasta tilfellinu um ofbeldi hafi verið ráðist á starfsmann með kylfu. „En svo geta ógnir verið meira dulbúnar eins og til dæmis: „ég veit hvar þú átt heima“. Þannig að fólki fer að líða óöruggu heima hjá sér sem er auðvitað óásættanlegt,“ sagði Þóra. Skömm og reiði geti brotist út Eftirlit með velferð dýra er erfitt starf fyrir, að sögn Þóru. Dýr geti verið mjög vanrækt eða illa haldin sem erfitt sé að horfa upp á. „En þegar við bætast árásir eða ógnanir á starfsfólk sem er bara að reyna að gera vinnuna sína þá verður þetta óásættanlegt,“ sagði Þóra. Starfsmenn stofnunarinnar yrðu frekar varir við ógnanir af hálfu gæludýraeigenda en búfjáreigenda enda stæðu dýrin þeim yfirleitt tilfinningalega nær. Meira væri nú um myndbirtingar af starfsfólki og árásum, sérstaklega á samfélagsmiðlum, en áður. „Auðvitað vitum við að það getur verið tilfinningalega erfitt fyrir suma dýraeigendur þegar uppgötvast að dýrahaldið sé kannski ekki í lagi og dýr eru vanhirt eða jafnvel illa farið með þau. Það getur verið skömm eða reiði eða hræðsla eða allt í bland sem að þá stundum getur brotist út með þessum hætti,“ sagði yfirdýralæknirinn. Nýti sér að þau geti ekki svarað fyrir sig Starfsfólk MAST á erfitt með að bera hönd fyrir höfuð sér þar sem það sé bundið þagnarskyldu um málefni einstaklinga. Þannig geti það ekki svarað rangfærslum um störf þess. „Fólk nýtir sér það. Það birtir ýmist takmarkaðar, villandi eða hreinlega rangar upplýsingar,“ sagði Þóra. Hótanir og líkamsárásir í garð starfsfólks MAST eru kærðar. Þóra sagði að stofnunin ætti einnig í góðri samvinnu við lögreglu um liðsinni þegar stíga þyrfti inn í erfiðar aðstæður sem gætu ógnað öryggi starfsfólks.
Matvælastofnun Dýr Dýraheilbrigði Bítið Mest lesið Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira