Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Aron Guðmundsson skrifar 27. ágúst 2026 09:31 Julian Alvarez í leik með Atletico Madrid Vísir/Getty Julian Alvarez, sóknarmaður Atletico Madrid er sagður vera farinn að íhuga hvort félagsskipti til Englandsmeistara Arsenal gæti verið rétta skrefið á hans ferli núna. Samband hans við Atletico Madrid virðist nær óbætanlegt. Argentínumaðurinn hefur ekki mætt á æfingu tvo daga í röð.
Frá þessu er greint á vef Sky Sports núna í morgun en svo virðist sem engin leið sé fyrir Barcelona að kaupa kappann frá Atletico Madrid sem er alls ekki til í að selja sinn besta mann til samkeppnisaðila í spænsku úrvalsdeildinni. Barcelona er sagt vera draumaáfangastaður Alvarez sem hefur gefið það skýrt út að hann vilji nýja áskorun á sínum ferli. Alvarez mætti ekki á æfingu í gær, var sagður veikur, og þá mætti hann heldur ekki á æfingu í morgun en hann hlaut afar vondar móttökur frá stuðningsmönnum Atletico Madrid í fyrsta heimaleik liðsins í spænsku úrvalsdeildinni núna á dögunum. Samkvæmt Sky Sports stendur tilboð Barcelona í Atletico Madrid fari svo að hugur þeirra breytist en forseti Barcelona lét hafa það eftir sér í gær að hann teldi forráðamenn Atletico Madrid vera að reyna selja Argentínumannsins til annars félags. Heimildir Sky Sports herma að Alvarez sé nú farinn að íhuga það meira hvort félagsskipti til Arsenal væri rétta skrefið á hans ferli á þessum tímapunkti. Eins og sagt var frá á dögunum telja forráðamenn Arsenal sig geta náð samkomulagi við Atletico Madrid um kaupverð á Alvarez. Arsenal muni hins vegar aðeins leggja fram tilboð í kappann opni hann á það að snúa aftur til Englands þar sem að hann spilaði áður með Manchester City. Talið er að Atletico Madrid vilji fá um 128 milljónir punda fyrir Alvarez. Alvarez er 26 ára gamall og hefur verið á mála hjá Atletico Madrid síðan sumarið 2024. Hann hefur spilað 107 leiki fyrir félagið, skorað 49 mörk og gefið 17 stoðsendingar. Þar áður var hann leikmaður Manchester City á Englandi. Spilaði þar 103 leiki, skoraði 36 mörk og gaf 19 stoðsendingar. Alvarez er uppalinn hjá River Plate í heimalandinu og varð heimsmeistari með Argentínu árið 2022. Þá hefur hann í tvígang unnið Copa América, í tvígang orðið Englandsmeistari og einu sinni unnið Meistaradeild Evrópu og enska bikarinnmeð Manchester City.
Enski boltinn Arsenal FC FC Barcelona Spænski boltinn Mest lesið Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Fótbolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Fótbolti Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Fótbolti Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Bakgarðsáskorunin: Leitast eftir óprenthæfri hvatningu Sport Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Fótbolti Fleiri fréttir Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Sjá meira