Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar 10. september 2026 14:15 Nú er haustið gengið í garð. Skólarnir eru byrjaðir, sumarleyfin að baki og á mörgum vinnustöðum er allt komið á fullt. Stefnur eru mótaðar, markmið sett, fjárhagsáætlanir undirbúnar og verkefnalistarnir fyllast. Við ætlum að ná árangri, klára árið vel og undirbúa það næsta. En mitt í allri áætlanagerðinni er mikilvægt að staldra við og muna eftir fólkinu sem stendur vaktina. Og að við mætum ekki bara til vinnu sem starfsfólk, heldur manneskjur. Með allt það sem fylgir lífinu. Börnin sem þurfa á okkur að halda, aldraða foreldra, veikindi, sambönd, fjárhagsáhyggjur, sorg, svefnlausar nætur og stundum þessa ósýnilegu þriðju vakt, félagslífið, skipulagið, ábyrgðina og hugsanaálagið sem heldur áfram löngu eftir að vinnudeginum lýkur. Við sjáum ekki alltaf hvað fólk ber með sér inn um dyrnar á morgnana. September er líka Gulur september, mánuður geðræktar og sjálfsvígsforvarna. Það er góð áminning um að þegar við setjum fókus á verkefnin fram undan þurfum við jafnframt að vera vakandi fyrir því hvernig fólkinu okkar líður. Árangurinn er nefnilega í fólkinu falinn. Ábyrgð stjórnenda felst ekki í því að vera sálfræðingar eða greina vanlíðan. En stjórnendur bera ríka ábyrgð á því umhverfi sem þeir skapa í kringum fólkið sitt – og þar skiptir sálfélagslegt öryggi miklu máli. Get ég sagt frá því þegar mér líður ekki vel?Má ég viðurkenna að ég ráði ekki við álagið?Get ég gert mistök án þess að óttast niðurlægingu?Treysti ég stjórnandanum mínum?Finn ég að tekið sé eftir mér – ekki bara frammistöðu minni? Sálfélagslegt öryggi verður ekki til með einu átaki eða fræðslufundi. Það byggist upp, dag eftir dag, í samskiptum og stjórnun. Í því hvernig við tökum á móti fólki. Hvort við gefum okkur tíma til að spyrja. Hvort við hlustum í alvöru á svarið. Hvort við tökum eftir breytingum – þegar einhver sem áður tók þátt dregur sig í hlé, virðist ekki vera eins og hann á að sér að vera eða á greinilega erfiðara en áður. Ekki síst hvernig við bregðumst við þegar starfsmaður treystir okkur fyrir því: „Mér líður ekki vel.“ Þá þurfum við ekki endilega að hafa réttu orðin eða lausnina. Stundum er mikilvægast að hlusta, taka því sem sagt er alvarlega og hjálpa viðkomandi að finna réttan stuðning. Stjórnandi sem þekkir fólkið sitt er líklegri til að taka eftir breytingum. Þar sem traust hefur verið byggt upp eru meiri líkur á að fólk treysti sér til að segja hvernig því raunverulega líður. Þegar við förum af stað inn í annasamt haust skulum við því ekki bara spyrja: Hvaða markmiðum ætlum við að ná? Spyrjum líka: Hvernig líður fólkinu sem á að koma okkur þangað? Höfundur er ráðgjafi hjá Attentus Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Geðheilbrigði Skóla- og menntamál Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar