PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar 13. september 2026 08:00 Hugsum okkur foreldri sem fær skilaboð frá skólanum undir lok vinnudags. Barnið hefur truflað kennsluna og átt erfitt með að hefja verkefni. Ekki í fyrsta skiptið. Kennarinn óskar eftir samtali og foreldrið finnur hvernig herðarnar síga. Enn eitt sem þarf að sinna. Hinum megin er kennari, líka þreyttur, sem hefur reynt að hjálpa barninu og þarf stuðning. Bæði vilja barninu vel. Samt getur beiðni um samstarf hljómað eins og ásökun þegar orkan er á þrotum. Þetta þurfum við að ræða þegar við ræðum PISA. Við þurfum að skoða kennsluhætti af fullri alvöru, já, en umhverfið þarf líka að ráða við þær kröfur sem kennslan gerir til barna og fullorðinna. Og kannski er það einmitt þetta sem við höfum ekki skoðað nægilega vel hingað til. Í starfi mínu með börnum spyr ég: Vinnum við saman? Er ljóst hver gerir hvað? Eða erum við svo þreytt að hver og einn reynir fyrst og fremst að komast lifandi í gegnum daginn, með litla orku aflögu? Þegar einn segir „já“ við barn, annar segir „nei“, og sá þriðji segir „kannski“, verður dagurinn erfiðari fyrir alla. Barnið mætir breytilegum væntingum og fullorðna fólkið þarf sífellt að semja um sömu hlutina. Þreytan getur aukið ósamræmið og ósamræmið aukið þreytuna. Síðan horfum við á barnið og spyrjum hvað sé að því. Í írskri langtímarannsókn fundust gagnkvæm tengsl milli streitu í uppeldi hjá foreldrum og hegðunar- og tilfinningavanda barna frá fimm til níu ára aldurs. [1] Álagið á foreldrana og erfiðleikar barnanna geta því nærst hvort á öðru. Við þurfum því að hjálpa fólki út úr því mynstri af sömu alvöru og við tökum á námsvanda barna. Mér finnst við líka þurfa að ræða ábyrgð okkar á að vinna saman af sömu alvöru og við ræðum rétt okkar til þjónustu. Í mínu starfi heyri ég reglulega „skólinn á að leysa þetta“ eða „heimilið á að leysa hitt“. Á meðan bíður barnið. Ábyrgð sem við ýtum frá okkur hverfur ekki. Hún lendir hjá einhverjum öðrum eða verður ósinnt. Foreldri sem er orðið örmagna þarf stuðning til að geta sinnt uppeldinu. Kennari sem nær varla að sinna kennslu fyrir átökum þarf hjálp inni í skólastofunni. Stjórnendur og stjórnvöld verða að gera fólki kleift að sinna þeim skyldum sem því eru faldar. Við þurfum einnig að þora að spyrja hvað eigi að fá minna pláss í skólastarfinu en það fær í dag. Þegar við bætum við námsefni og verkefnum án þess að draga úr öðrum þáttum tökum við tíma frá því sem fyrir er. Ef við viljum að börn nái betri tökum á lestri og öðrum undirstöðum verðum við að gefa þeim nægilegan tíma til þess. Það er ekki hægt að setja allt í forgang og eitthvað þarf að víkja svo að annað geti dafnað. Samstarfið sjálft þarf að verða viðráðanlegt verkefni fyrir bæði foreldra og skóla. Skýrt þarf að vera hver hjálpar barninu í hvaða aðstæðum og hvert megi leita ef það dugar ekki til. Annars hætta fundir um hagsmuni barnsins að skila lausnum og verða enn ein byrðin á fólkinu sem situr þá. Í safngreiningu á 77 rannsóknum skiluðu skipulögð inngrip sem samstilltu heimili og skóla að jafnaði framförum í bæði námi barna og félagslegri og tilfinningalegri stöðu þeirra. [2] Þessar rannsóknir skýra ekki orsakir PISA-þróunarinnar á Íslandi, en þær sýna að aukinn stuðningur við það fólk sem styður við börn getur skilað mikilvægum árangri. Að hjálpa því er að hjálpa barninu. Við megum ekki láta PISA-umræðuna verða enn eitt verkefnið sem bætist við án þess að aðstæður barnanna breytist. Það er okkar fullorðinna að skapa aðstæður þar sem börn geta lært. Það er ekki barnanna að samstilla okkur. Ég vil þakka A. fyrir djúpar samræður, gagnrýna yfirferð og mikilvægt framlag við vinnslu greinarinnar. Höfundur er atferlisfræðingur, sálfræðingur og kennari. Heimildir [1] Van Dijk, W., de Moor, M. H. M., Oosterman, M., Huizink, A. C. og Matvienko-Sikar, K. (2022). Longitudinal relations between parenting stress and child internalizing and externalizing behaviors: Testing within-person changes, bidirectionality and mediating mechanisms. Frontiers in Behavioral Neuroscience, 16, 942363. doi: 10.3389/fnbeh.2022.942363. [2] Smith, T. E., Sheridan, S. M., Kim, E. M., Park, S. og Beretvas, S. N. (2020). The effects of family-school partnership interventions on academic and social-emotional functioning: A meta-analysis exploring what works for whom. Educational Psychology Review, 32, 511–544. doi: 10.1007/s10648-019-09509-w. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál PISA-könnun Mest lesið Halldór 03.10.2026 Agnar Már Másson Halldór Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Skoðun Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar