Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar 28. september 2026 07:32 Íslenskt réttarvörslukerfi stendur frammi fyrir nýrri og skelfilegri birtingarmynd mansals og ofbeldis hér á landi. Ég hef því miður kynnst þessum málum í stöfum mínum sem lögmaður og ítrekað fengið inn á mitt borð viðkvæm mál þar sem konur í viðkvæmri stöðu vegna fötlunar, alvarlegrar neyslu eða erfiðra félagslegra aðstæðna eru skipulega nýttar af mönnum af erlendum uppruna í þeim eina tilgangi að tryggja þeim síðarnefndu landvistarleyfi og fjárhagslegan ávinning. Þetta er kerfislægt ofbeldi þar sem fórnarlömbin eru undir ægivaldi gerendans. Konurnar eru ekki aðeins beittar kynferðislegu og líkamlegu ofbeldi, heldur eru þær notaðar fjárhagslega. Þær eru neyddar til þess að taka lán, láta af hendi fjármuni eða afhenda húsnæði sem þær hafa fengið í gegnum félagslega kerfið, svo hægt sé að nota það í annarlegum tilgangi. Skelfilegast er þó þegar þessar konur eru þvingaðar til þess að verða óléttar í þeirri von og trú gerenda að barneignir muni auka möguleika þeirra á dvalarleyfi og tryggja þeim hærri bótagreiðslur frá hinu opinbera. Umfang þessa vandamáls er dulið, en alþjóðlegar og innlendar skýrslur sýna að þolendur með fötlun eða í virkri neyslu eru í margfaldri hættu á að verða fyrir mansali þar sem gerendur nýta sér bágborna stöðu þeirra. Jafnvel þótt þessi vandi sé þekktur að nokkru leyti innan réttarvörslukerfisins þá er blasir við mikið úrræðaleysi og vangeta til þess að takast á við hann. Úrræðaleysið ristir dýpst þegar börn eiga í hlut. Þekkt eru sláandi dæmi þess að barnaverndaryfirvöldum hafi borist skýrar og alvarlegar tilkynningar um mál þar sem rökstuddur grunur leikur á að börn séu ekki aðeins vitni að ofbeldi heldur sjálf að verða fyrir líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á heimilinu. Samt sem áður gerist lítið sem ekkert. Skýringar yfirvalda eru af skornum skammti og aðgerðaleysið er æpandi. Þegar stofnanir eru veikburða og hafa ekki nægileg sterk lagaleg úrræði til að grípa til verður staða þessara kvenna og barna hreinlega hræðileg og vonlaus. Kerfið virðist lamast þegar flækjustig mála eykst, sem verður til þess að viðkvæmustu hópar samfélagsins búa við algjört bjargarleysi. Oft leysast þessi mál þegar gerandi er kominn með langan sakaferli eða er undir rannsókn fyrir önnur alvarleg brot, þá fyrst getur lögreglan loksins skorist í leikinn og gripið inn í. Þolendur þessara brota eiga ekki að þurfa að bíða eftir því að gerendur þeirra brjóti af sér margsinnis annars staðar áður en hægt er að grípa inn og bjarga einstaklingum í viðkvæmri stöðu, konum, og saklausum börnum þeirra, úr prísund nútímaþrælahalds. Það verður að vera hægt að grípa inn í og aðstoða þolendur undan þeim brotum sem framin eru á þeim. Það verður að rjúfa þögnina og krefjast þess að yfirvöld opni augun fyrir þessu skuggamansali, ef svo má að orði komast, áður en fleiri líf verða lögð í rúst. Það er siðferðisleg skylda okkar sem samfélags að vernda þá sem geta ekki varið sig sjálfir. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sævar Þór Jónsson Dómstólar Mansal Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar