Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar 22. október 2026 08:00 Margir kannast vafalaust við hugtakið þroskaþjófur. Hugtakið vísar til hegðunar manneskju sem hindrar persónulegan þroska annarrar manneskju með því að gera allt fyrir hana. Hugtakið er náskylt því sem er kallað á ensku „micromanagement“, sem gervigreindin lýsir með dæmi um „yfirmann sem treystir þér ekki fyrir neinu og stjórnar hverju litlu skrefi, sem kemur í veg fyrir að þú lærir af mistökum og þróir nýja færni.“ „Yfirmaðurinn“ getur verið foreldri, samstarfsfólk eða hreinlega stofnanir, vinnustaðir o.s.frv.. Hvernig eigum við að læra og ná tökum á að hjóla, að synda, að læra annað tungumál ef við fáum ekki að reyna okkur og gera mistök? Æfingin skapar meistarann og mistökin eru besti kennarinn. Nánast allir hafa reynslu af sannleiksgildinu sem felst í þessum máltækjum. Mér verður oft hugsað til þessara máltækja í tengslum við að hafa verið innflytjandi – í þremur ólíkum löndum í tæp 15 ár - þar sem enginn talaði íslensku og ég þurfti að læra ríkjandi tungumál – ekki meira framandi en svo að þau eru öll evrópsk og með sama letri og íslenskan. Í tveimur tilvikum var ég með grunnþekkingu á tungumálinu en í einu landinu alls enga og vitanlega var það erfiðasta viðureignin. Í því landi dvaldi ég í tæpt ár og var farin að gera mig skiljanlega í lokin. Í þeim tungumálum þar sem ég hafði grunnþekkingu voru framfarirnar í tjáningu vissulega mun hraðari en ekki síst vegna þess að mér var gefinn kostur á að spreyta mig. Réttara væri að segja: það var annað hvort að duga eða drepast. Vera með, eða standa fyrir utan. Glósa, fletta upp í orðabókum, spyrja um merkingu. Æfa sig að segja orðin, já með hreim, beygja þau vitlaust og gera allskonar mistök. Það gat vissulega reynt verulega á að skilja ekki og geta ekki tjáð sig eins og maður vildi og í verstu tilvikum sent mann á fleygiferð í tilfinningalegan rússíbana: þar sem frústrasjón, óþolinmæði, vantrú á sjálfan sig og fleiri neikvæðar tilfinningar tóku völdin. En hér gilti að gefast ekki upp. Já, gefast ekki upp. Það var ekki bara ég sem ekki mátti gefast upp heldur líka fólkið í kringum mig. Ef ég átti að ná einhverjum framförum þá skipti sköpum að fá áheyrn og tækifæri til að tala þrátt fyrir að kunna lítið í málinu. Fjölmargt af því fólki, sem flust hefur til Íslands og sest hér að er í þessum sporum varðandi íslenskuna. Það er margsannað að til að verða hluti af samfélaginu verður maður að ná tökum á málinu sem þar er talað. Innflytjendur eru um fimmtungur landsmanna og fjórði hver starfandi á vinnumarkaði er aðfluttur. Þetta er mjög stór hópur fólks sem mikilvægt er að fái áheyrn og sterka rödd í íslensku samfélagi. Þar skiptir notkun íslenskunnar sköpum. Íslendingar/íslenskumælandi fólk er hér í hlutverki dyravarðarins, sem annað hvort hleypir inn í íslenskt málsamfélag eða ekki. Ófá dæmi úr veruleikanum hafa verið sögð af heimamönnum sem grípa til ensku í samskiptum við aðflutta óháð því hvort þeir tali íslensku eða séu að læra hana. Þarna er í fleiri en færri tilvikum verið að ræna fólk tækifærinu til að spreyta sig. Fjölmargir hafa bent á neikvæðar afleiðingar þessarar hegðunar. Fyrir mitt leyti held ég að þetta stýrist að hluta til af ákveðinni blindu þ.e. viðkomandi sér ekki að hann/hún er að loka dyrunum að íslensku málsamfélagi og þar með koma í veg fyrir félagslega þátttöku þess aðflutta á íslensku og um leið aftra því að þeir séu teknir inn í hópinn. Hér reynir á virðingu, gagnkvæma virðingu. Íslenskumælandi fólk verður að tileinka sér virðingu fyrir þeim sem tala íslensku með hreim og aðflutt fólk verður að bera virðingu fyrir því að hér er íslenska ríkjandi tungumál, en hvorki enska, pólska eða nokkurt annað. Vissulega er enskan það erlenda tungumál, sem hér mest notað í samskiptum á eftir íslensku og hún er eitt útbreiddasta samskiptatungumál sem notað er á Vesturlöndum og víða annarsstaðar. Enskan getur því verið brú en hún getur líka verið hindrun gegn því að nota íslensku í samskiptum. Allt of mörg dæmi er því miður að finna af fólki, sem flytur til landsins og talar enga eða litla ensku en lærir hana á undan íslenskunni, sem er þá augljóslega sett í annað sæti. Hver svo sem ástæðan fyrir þessu kann að vera er þetta vægast sagt mjög undarlegt ástand og vekur upp ýmsar áleitnar spurningar, sem beinast ekki síður að heimamönnum en aðfluttum. Rétt er að skoða í kringum sig og kanna hvort (nær)umhverfið styður við að íslenska sé notuð sem ríkjandi mál í samskiptum eða ekki. Fyrir þá sem eiga ensku að móðurmáli – og þá innflytjendur sem nota mest ensku í samskiptum - getur enskunotkun dregið úr hvatanum til að læra íslensku. Eins má spyrja hvers vegna pólska fær svona mikið rými fram yfir önnur tungumál innflytjenda (rýmið er skapað af heimamönnum og engum öðrum). Ýmiskonar upplýsingar um þjónustu – sumar brýnar en aðrar ekki eru þýddar á pólsku. Fá pólskir innflytjendur þessa sérstöku þjónustu af því þeir eru stærsti innflytjendahópurinn sem stendur eða er Pólverjum ekki treystandi til að læra íslensku? Hvar er hvatinn fyrir þá að læra íslensku ef þeir geta fengið allar upplýsingar á pólsku, þar með taldar fréttir? Hvað þurfa aðrir innflytjendahópar að vera fjölmennir til að fá sömu „þjónustu“ á sínu eigin tungumáli á Íslandi? Það má líka velta fyrir sér nauðsyn þess nú á tímum þýðingarforrita og orðabóka, sem eru í öllum símum, að merkja - svo dæmi sé tekið - endurvinnslutunnur (í Reykjavík) með þremur tungumálum, sem öll eru indó-evrópsk og nota sama letrið, samanber: pappír, paper, papier. Vissulega er í neyðartilvikum réttlætanlegt að þýða sumar upplýsingar yfir á einstök tungumál innflytjenda en í mjög mörgum tilvikum er það misskilin góðmennska, sem rænir þá reynslunni að fá að spreyta sig á íslenskunni og aftar þeim frá því að verða virkir í íslensku málsamfélagi. Það er ekki hagur neinna, hvorki innflytjendanna sem verða utangarðs, né heimamanna sem ergja sig á kunnáttuleysi þeirra í íslensku. Slíkt ergelsi getur auðveldlega orðið olía á eld fordóma og í versta falli útlendingaandúðar. Aðgangur að þýðingaröppum og tungumálakennslu eins og t.d. „Bara tala“ appinu er fagnaðarefni og sannarlega til mikilla bóta. En þessi hjálpargögn koma ekki að neinu gagni nema þau séu notuð og þá að hvatinn til að nota þau sé til staðar. Ég vil hvetja atvinnurekendur, opinberar stofnanir og hvert og eitt okkar.að taka ábyrgð á því að greiða götu innflytjenda að íslenskunni og um leið hvet ég innflytjendur til að læra og spreyta sig á henni og býð þá hjartanlega velkomna í íslenskt málsamfélag. Hallfríður Þórarinsdóttir er doktor í menningarmannfræði og stundar rannsóknir á innflytjendum á vinnumarkaði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Innflytjendamál Mest lesið Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Gnexit Viðreisnar Bergþór Ólason Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ósýnilegt fólk og sýnileg ábyrgð Þorvaldur Óttar Guðlaugsson skrifar Skoðun Bókun 35 - þarf virkilega að breyta stjórnarskránni? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun „Ný“ markmið í grunnskólum duga ekki Þórgunnur Reykjalín Vigfúsdóttir skrifar Skoðun Pólitískt fleipur landlæknis Bjarni Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Ákall um samstarf – Ekki bara samtal Anton Kári Halldórsson skrifar Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar Skoðun Myndin sem þú mátt ekki sjá Anna Laufey Stefánsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun Áttu áttu? Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Þegar sannleikurinn þjónar ekki óttanum Helena Jónsdóttir skrifar Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ísland sé frjálst, meðan sól gyllir haf Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Misfarir í Mosfellsbæ Sólveig Anna Jónsdóttir skrifar Skoðun Gilda lögin bara þegar okkur hentar? Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Smekkvísi er ekki samningsbundin Ásgeir Guðmundsson skrifar Skoðun „Nýjasta tíska, nýjasta tíska –allt innan fjárheimilda!“ Agla Þyri Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík á ekki að gera allt ein Björg Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar
Skoðun Hvort á ég að kenna eftir fyrirmælum aðalnámskrár eða eftir getustigi nemandans? Eyjólfur Pétur Hafstein skrifar
Skoðun Peningaglýjuórar meiða íslenskan almenning -Opið bréf til Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra Örn Karlsson skrifar
Skoðun Íslenskt táknmál í stefnu – en hvar eru aðgerðirnar? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar