Viðskipti erlent

G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn

Samúel Karl Ólason skrifar
Emmanuel Macron segir að ákvörðunin feli í sér að engir tálmar verði settir á flutning olíuafurðir milli G7-ríkja og að með þessu yrði refsiðaðgerðum gegn Rússlandi haldið áfram.
Emmanuel Macron segir að ákvörðunin feli í sér að engir tálmar verði settir á flutning olíuafurðir milli G7-ríkja og að með þessu yrði refsiðaðgerðum gegn Rússlandi haldið áfram. AP/Manu Fernandez

Leiðtogar G7-ríkjanna svokölluðu hafa samþykkt að hleypa hundrað milljónum tunna af hráolíu og olíuafurðum úr neyðarbirgðum sínum á markað. Fyrst verða tuttugu milljónir tunna settar á markaðinn og mun restin fylgja yfir næstu fjóra mánuði. Með þessu er vonast til að lækka megi verð á díselolíu og öðrum olíuafurðum, sem hafa hækkað mikið á undanförnum mánuðum.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur þrýst verulega á leiðtoga annarra ríkja eins og Þýskalands og Frakklands að grípa til þessara aðgerða. Aðgerðinni er einnig ætlað að koma í veg fyrir útflutningsbann á díselolíu frá Bandaríkjunum, sem Trump var líklegur til að grípa til.

Áðurnefndir leiðtogar samþykktu þetta á fundi í Frakklandi í morgun. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, opinberaði ákvörðunina í kjölfarið.

Hann sagði að ákvörðunin fæli einnig í sér að engir tálmar yrðu settir á flutning olíuafurða milli G7-ríkjanna. Þá snýst ákvörðunin einnig um það að refsiaðgerðum gegn Rússlandi verði haldið áfram en Trump hefur gefið til kynna að hann hafi viljað rússneska olíu á markaðinn til að létta á olíuverði.

G7-ríkin eru Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Ítalía, Japan, Kanada og Þýskaland. Hópurinn var kallaður G8 á sínum tíma en Rússum var vísað úr honum eftir innlimun Krímskaga og innrásina í austurhluta Úkraínu árið 2014.

Meira flæði en verðið lækkar ekki

Áður en Macron opinberaði ákvörðunina hafði Donald Trump lýst því yfir á samfélagsmiðli sínum að „Evrópa“ hefði samþykkt að opna birgðir sínar af díselolíu. Hann gaf til kynna að þessar birgðir væru mjög umfangsmiklar.

Frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu stríðið gegn Íran í febrúar, með meðfylgjandi takmörkunum á siglingar um Hormússund og árásum Írana á olíuvinnsluinnviði í nágrannaríkjum sínum, hefur olíuverð hækkað verulega á heimsvísu.

Fyrir stríðið fóru um nítján milljónir tunna af olíuafurðum um Hormússund á degi hverjum.

Ríkisstjórn Trumps og Repúblikanar eru undir miklu álagi vegna mikillar hækkunar á eldsneytisverði í Bandaríkjunum í aðdraganda þingkosninga í næsta mánuði.

Sjá einnig: Upp­ör­vandi fréttir fyrir Demó­krata

Undanfarinn mánuð hefur tekist að flytja mikið magn olíuafurða um Hormússund og með flutningum um aðrar leiðir hefur flæðið frá Mið-Austurlöndum verið að nálgast fyrra horf.

Olíuverð hefur samt ekki lækkað í takti við það, þar sem hagkerfi heimsins eru enn viðkvæm gagnvart frekari truflunum á olíuflæði. Víða um heim hefur verið gengið töluvert á olíubirgðir á þessu ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×