Stelpurnar snúa aftur Magnús Jochum Pálsson skrifar 14. október 2026 10:21 Marnie, Jessa, Hannah og Shoshanna munu snúa aftur á næsta ári. HBO Gamanþættirnir Girls eftir Lenu Dunham munu snúa aftur á HBO og hefjast tökur á næsta ári, tíu árum eftir að sjötta serían kom út. Nýja þáttaröðin verður fimm þættir og snúa aðalstelpurnar fjórar allar aftur þó óvíst sé með Hollywood-stjörnuna Adam Driver.
Dunham og félagar greindu frá þessum tíðindum í sameiginlegu myndbandsspjalli á samfélagsmiðlum. Girls gekk í sex seríur frá 2012 til 2017 og var Dunham allt í senn handritshöfundur, aðalleikkona þeirra og hafði yfirumsjón á vettvangi (e. showrunner). Þættirnir fjölluðu um fjórar vinkonur á þrítugsaldri sem reyna að fóta sig á fullorðinsárum og gera alls konar mistök í leiðinni. View this post on Instagram A post shared by HBO Max (@hbomax) Aðalleikkonurnar fjórar munu snúa aftur í endurkomunnni: Dunham sem Hannah Horvath, Allison Williams sem Marnie Michaels, Jemima Kirke sem Jessa Johansson og Zosia Mamet sem Shoshanna Shapiro. Sömuleiðis mun Andrew Rannells snúa aftur í hlutverki Elijah Krantz. „Við sögðum alltaf að við myndum bara snúa aftur í Girls ef það væri sérstök saga sem við brynnum fyrir að segja,“ sagði Dunham í yfirlýsingu um þættina. „Ég hef saknað þessara karaktera en lengi vel gat ég ekki ímyndað mér þá í nútímanum. Síðan, rétt í kringum fertugsafmælið mitt, byrjuðu þeir að tala við mig í sturtunni. Og, eins og þið munið, um leið og fimmmenningarnir byrja að tala er erfitt að stoppa þá.“ Enginn Driver Tvö áberandi nöfn vantaði í yfirlýsingu HBO um þættina: Adam Driver sem lék Adam, ástarviðfang Hönnuh, og yfirframleiðandann Jenni Konner. Dunham skrifaði um neikvæða reynslu sína af Driver í æviminningum sínum, Famesick, sem komu út í vor. Dunham sagði að Driver hefði verið „aggressívur í tali, yfirlætisfullur og líkamlega ógnandi“ og rifjaði upp sögu af því þegar hann kastaði stól í vegg vegna þess að hún hafði gleymt línunum sínum. Þá hafi hann verið frjálslegur á tökustað og skeytt litlu um tilfinningar annarra. Adam Driver var erfiður á setti að sögn Dunham.Getty Konner var aftur á móti náin vinkona Dunham og lærimeistari í upphafi Girls en eftir því sem á leið súrnaði sambandið. Dunham sagði Konner hafa beitt hana þrýstingi til að semja um jöfn laun fyrir þær og orðið köld og fjarlæg þegar Dunham glímdi við heilsuvandræði. Girls er jafnan talinn með bestu sjónvarpsþáttum 21. aldarinnar og oft sagður marka tímamót í umfjöllun um ungar konur í sjónvarpi þar sem allt var látið flakka, kynlíf var sýnt á hispurslausan hátt og eðlilegar líkamsmyndir sýndar. Þátturinn hlaut nítján Emmy-tilnefningar og hreppti tvö verðlaun.
Bíó og sjónvarp Hollywood Bandaríkin Tímamót Mest lesið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ Lífið Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Bíó og sjónvarp Ekkert offors hjá Fors Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Kát á kynfræðslukarnivali Menning Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Horfa fram á sögulegt tap Diggers Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Sjá meira