Skoðun

Vaxta­bætur hverfa þegar vextirnir bíta mest

Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Ákvörðun um að fella niður vaxtabætur frá árinu 2027 verður að skoða í samhengi við stöðu skuldsettra heimila. Í fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að vaxtabætur verði afnumdar frá næstu áramótum. Á sama tíma eru stýrivextir 8% og vaxtakostnaður hefur um langt skeið þrengt verulega að ráðstöfunartekjum fjölskyldna með húsnæðislán. Þetta samhengi skiptir öllu máli.

Vaxtabætur eru opinber fjárhagsstuðningur til fólks sem greiðir vexti af íbúðalánum vegna eigin húsnæðis. Markmiðið þeirra er að létta undir með húsnæðiskostnaði, einkum hjá fólki með lægri tekjur. Vaxtabætur eru vissulega ekki einn stærsti útgjaldaliður ríkissjóðs. En fyrir heimili sem ber mikinn húsnæðiskostnað getur brotthvarf þeirra skipt verulegu máli. Og áhrifin koma ekki ein og sér. Þau leggjast ofan á önnur gjöld, breytingar á bótum, verðtryggingu lána og þann vaxtakostnað sem heimilin bera nú þegar.

Tökum dæmi af hjónum með tvö börn og 45 milljóna króna húsnæðislán. Í útreikningum Framsóknar á utreikningur.is geta áhrif þess að vaxtabætur falli niður numið um 60–70 þúsund krónum á ári. Það er ekki upphæð sem flest heimili geta einfaldlega afskrifað sem smávægilega breytingu. Hún jafngildir mörgum innkaupaferðum, kostnaði við tómstundir barna eða verulegum hluta af mánaðarlegum rekstri fjölskyldunnar.

Þegar fjárlagafrumvarið er skoðað, þá eigum við ekki eingöngu að skoða hvern fjárlagalið fyrir sig heldur samanlögð áhrif ákvarðana ríkisins á heimilisbókhaldið. Afnám vaxtabóta kann að virðast hófleg sparnaðaraðgerð þegar hún er skoðuð ein og sér. Fyrir fjölskylduna kemur hún hins vegar inn í sama heimilisbókhald og hærri gjöld, húsnæðislán og önnur útgjöld.

Tímasetningin skiptir máli

Það má auðvitað hafa ólíkar skoðanir á því hvernig stuðningur við húsnæðiskostnað eigi að vera uppbyggður til framtíðar. Kerfi vaxtabóta er ekki hafið yfir gagnrýni og eðlilegt er að endurskoða það reglulega. En endurskoðun kerfis og afnám stuðnings eru ekki sami hluturinn. Og tímasetningin skiptir miklu.

Þegar vextir eru lágir, verðbólga við markmið og kaupmáttur vex er eitt svigrúm til að breyta húsnæðisstuðningi. Þegar stýrivextir eru 8%, vaxtabyrði heimilanna mikil og efnahagsumsvif að veikjast er staðan allt önnur. Þá verður að spyrja hvort skynsamlegt sé að draga úr stuðningi við skuldsett heimili einmitt þegar vaxtakostnaðurinn bítur hvað fastast? Ríkissjóður þarf vissulega að sýna aðhald. En aðhald þarf að vera skynsamlega samsett. Það má ekki eingöngu felast í því að færa reikninginn frá ríkissjóði yfir á heimili sem þegar glíma við háan húsnæðiskostnað.

Það er öfugsnúið að draga úr stuðningi við skuldsett heimili á sama tíma og vextirnir bíta þau hvað fastast.

Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar.




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×