Skoðun

Stærsta gjöfin gæti verið líffæra­gjöf

Sunna G. Sigurðardóttir skrifar

Nýlega hlustaði ég á afskaplega áhugavert erindi frá íslenskum lækni, Jóhanni Jónssyni, sem hefur á síðustu áratugum sérhæft sig í líffæraígræðslum í Bandaríkjunum. Jóhann hefur líka lyft grettistaki varðandi líffæraígræðslur hér á Íslandi, helst er þar um að ræða ígræðslur á nýrum en aðrar nauðsynlegar aðgerðir fyrir Íslendinga fara að mestu leyti ennþá fram í Svíþjóð. Það er magnað að kynnast því hvernig einn aðili getur, með sérfræðiþekkingu sinni og dugnaði, náð að ýta slíku verkefni úr vör hér á landi og sýnir okkur hversu mikilvægt einstaklingsframtakið er.

Ég er líffæragjafi – en veit fjölskyldan það?

Í erindi Jóhanns rifjaðist upp fyrir mér að árið 2018 voru sett lög hér á landi sem fela í sér að fólk teljist sjálfkrafa líffæragjafar við andlát. Þeir sem ekki vilja vera líffæragjafar þurfa að skrá sérstaklega þá afstöðu sína á island.is. Að sögn Jóhanns kemur það hins vegar nokkuð reglulega fyrir að þrátt fyrir að einstaklingur hafi kosið að vera líffæragjafi þá leggist nánir aðstandendur gegn líffæragjöfinni. Þetta er líklega staða sem fáir hafa leitt hugann að geti komið upp og eru viðbrögð aðstandenda því skiljanleg í erfiðum aðstæðum. Vegna þessa ákvað ég að setjast niður með eiginmanni mínum og dætrum og ræða þessi mál við þau. Ég útskýrði fyrir þeim að ég vilji sannarlega gefa líffæri mín eftir andlát ef sú staða myndi koma upp og ef aðstæður leyfa. Þrátt fyrir að vera heldur niðurdrepandi umræðuefni þá tel ég mikilvægt fyrir fjölskyldur að ræða þessi mál til að vera viðbúin ef slys eða óvænt andlát ber að garði. Innan minnar fjölskyldu er það nú skýrt hverjar óskir mínar eru varðandi líffæragjöf, og ég treysti mínum nánustu til að virða þær.

Þörfin er mikil

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum þurfa nokkrir tugir Íslendinga á líffæraígræðslu að halda á hverju ári. Árið 2025 voru 14 líffæragjafir hér á landi, sem er metfjöldi. Við eigum að halda áfram að byggja á þeirri góðu vinnu sem Jóhann og samstarfsfólk hans hefur unnið á þessu sviði og að mínu mati er það gífurlega jákvætt að sífellt fleiri líffæragjafir og ígræðslur fari fram hér á landi. Helsti kosturinn er auðvitað sá að það er talsvert þægilegra fyrir líffæraþega að fara í slíka aðgerð hér heima, auk þess sem kostnaðurinn er líklega margfalt lægri en ef aðgerðin færi fram erlendis. Þrátt fyrir þennan góða árangur er framboð á líffærum til gjafa ennþá mun minna en þörfin, eins og kemur reglulega fram hjá þeim sem vinna að þessum málum. Með þessu greinarkorni vil ég hvetja alla til að taka umræðuna um líffæragjafir við fólkið sitt, því hver líffæragjöf getur bjargað lífi.

Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokks í SV kjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×