Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar 23. október 2026 09:02 Áform dómsmálaráðherra um að fækka lögregluembættum landsins úr níu í þrjú vekja spurningar um framtíð löggæslu, þjónustu við íbúa og öryggi samfélaga um land allt. Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefur mótmælt þessum áformum harðlega og skorar á ráðherra að falla frá þeim í núverandi mynd. Það er ekki sjálfgefið að stærri stjórnsýslueiningar skili betri þjónustu. Þvert á móti getur aukin miðstýring veikt staðbundna þekkingu, fjarlægt ákvarðanatöku frá vettvangi og dregið úr mikilvægum tengslum lögreglu við sveitarfélög, íbúa og aðra viðbragðsaðila. Sérstaka furðu vekur sú hugmynd að sameina Vesturland og Norðausturland í eitt víðfeðmt lögregluumdæmi. Hvaða faglegu forsendur liggja að baki þeirri ákvörðun? Hvers vegna er talið rétt að fækka embættunum í þrjú fremur en að velja aðra umdæmaskipan? Og umfram allt: Hvernig verður tryggt að breytingarnar leiði til betri löggæslu og aukins öryggis íbúa? Í Hvalfjarðarsveit eru aðstæður sem gera kröfur til löggæslu og viðbragðsgetu. Þar má nefna umfangsmikla iðnaðarstarfsemi á Grundartanga, eina af stærri inn- og útflutningshöfnum landsins, Hvalfjarðargöng, þjóðveg 1 og víðfeðm dreifbýlissvæði. Horfur á aukinni skipaumferð um Grundartangahöf og nærsvæði undirstrika enn frekar mikilvægi öflugrar löggæslu, tollgæslu og samhæfðs viðbúnaðar. Stjórnvöld hafa verkfærin – eru þau nýtt? Það sem vekur ekki síður athygli en breytingarnar sjálfar er að ekki liggja fyrir fullnægjandi upplýsingar um greiningar á áhrifum þeirra á þjónustu, mönnun, viðbragðsgetu og öryggi íbúa. Stjórnvöld hafa sjálf sett fram leiðbeiningar um vandaðan undirbúning lagasetningar, þar sem meðal annars er lögð áhersla á skýra greiningu viðfangsefna, mat á mismunandi valkostum og áhrifum fyrirhugaðra breytinga. Þá hefur nýverið verið kynnt sérstakt greiningarverkfæri, Byggðalinsan, sem ætlað er að meta áhrif lagasetningar á byggðarlög og búsetufrelsi. Verkfærið var þróað af Byggðastofnun í samstarfi við ráðuneyti, þar á meðal dómsmálaráðuneytið sjálft. Hér er einmitt um að ræða breytingar þar sem beiting slíks verkfæris ætti að vera sjálfsagður hluti undirbúningsins. Hefur Byggðalinsunni verið beitt við undirbúning þessara áforma? Ef svo er, hvar er þá að finna niðurstöður þeirrar greiningar? Ef ekki, hvers vegna er ráðist í svo umfangsmiklar breytingar án þess að nýta þau verkfæri sem stjórnvöld hafa sjálf þróað til að stuðla að vandaðri ákvarðanatöku? Þessar spurningar snúast ekki um andstöðu við breytingar breytinganna vegna. Þær snúast um faglega stjórnsýslu, gagnsæi og þá grundvallarkröfu að ákvarðanir um mikilvæga grunnþjónustu ríkisins byggist á traustum forsendum. Öryggi íbúa á að ráða för Verði niðurstaðan engu að síður sú að fækka lögregluembættum í þrjú er nauðsynlegt að endurskoða fyrirhuguð umdæmamörk. Þar hlýtur meðal annars að koma til skoðunar hvort Hvalfjarðarsveit og önnur sveitarfélög á sunnanverðu Vesturlandi eigi betur heima innan umdæmis höfuðborgarsvæðisins, með hliðsjón af landfræðilegri nálægð, samgöngum og þjónustusókn. En sú umræða má ekki skyggja á grundvallaratriðið. Skipulag löggæslu á Íslandi á að taka mið af þörfum samfélagsins, öryggi íbúa og faglegum forsendum – ekki fyrirfram ákveðnum fjölda stjórnsýslueininga. Áður en ráðist er í jafn umfangsmikla uppstokkun á einni mikilvægustu grunnþjónustu ríkisins verður að liggja fyrir vandað mat á afleiðingunum og raunverulegt samráð. Stjórnvöld hafa verkfærin til þess. Nú þarf að sýna að þau séu tilbúin að nota þau. Höfundur er sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Björn Bjarki Þorsteinsson Lögreglan Hvalfjarðarsveit Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun