Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. október 2026 06:32 Erling Haaland fagnar marki sínu í leiknum á móti Liverpool sem var sá fyrsti eftir að dómurinn féll. Getty/Robbie Jay Barratt Norska sjónvarpsstöðin TV2 átti möguleika á að fá einkaviðtal við Erling Braut Haaland en afþakkaði boðið. Ástæðan voru fjárhagsleg reglubrot City.
Haaland er stærsta íþróttastjarna Norðmanna og ein stærsta íþróttastjarna heims og því eftirsóttur viðtalsgestur. Forráðamenn TV2 voru aftur á móti ekki sáttir við þær hömlur sem þeim voru settar. Aðrir norskir fjölmiðlar fjalla um að ekkert hafi orðið af viðtalinu við Haaland. „Við lentum í ákveðnu atviki í tengslum við síðasta landsleikjahlé þar sem skilyrðið fyrir viðtali við Haaland var að við spyrðum ekki um dóminn yfir Manchester City. Því höfnuðum við,“ sagði Vegard Jansen Hagen, íþróttaritstjóri TV 2, við Verdens Gang. Sambandið staðfestir söguna Norska knattspyrnusambandið staðfestir einnig söguna og greinir frá því að fjölmiðlafulltrúi Haalands hafi tekið þátt í umræðunum. Á meðan á umræddri landsliðssamveru stóð varð ljóst að vinnuveitandi Haalands, Manchester City, hefði verið fundinn sekur um 114 brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Í kjölfarið átti Haaland að hitta norska fjölmiðlamenn í heild sinni en NFF ákvað að breyta áætlununum. Svarið var sem sagt nei Það var í þessu ljósi sem TV 2 fékk tækifæri til að ræða við stjörnuframherjann. Svarið var sem sagt nei. „Það hefði verið blaðamennskuleg vanræksla að sneiða hjá þeim augljósu spurningum sem áhorfendur okkar vildu fá svör við. Við áttum í skýrum samskiptum við NFF um þetta, þar sem við afþökkuðum,“ sagði íþróttaritstjóri TV 2 við VG. City hefur áfrýjað sakfellingunni vegna reglubrotanna.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Fleiri fréttir „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Sjá meira