Vélarbilun talin hafa orsakað þyrluslys í New York
Meiriháttar vélarbilun er líklega talin hafa orsakað þyrluslys í New York þar sem fimm manna fjölskylda og flugmaður létu lífið. Rannsókn er hafin á atvikinu en viðbragðsaðilar hófu snemma í morgun frekari leit að braki úr þyrlunni sem splundraðist á lofti og hrapaði í Hudson-ána. Myndbönd náðust af atvikinu sem sögð eru hjálpa til við rannsókn málsins.