Segja klasasprengjurnar nýtast vel gegn Rússum Úkraínskir hermenn segja klasasprengjur hafa nýst vel gegn Rússum á undanförnum vikum. Þær nýtist sérstaklega vel til að stöðva árásir Rússa í austurhluta landsins, á meðan Úkraínumenn reyna að sækja fram í suðri. Erlent 21. ágúst 2023 22:07
Húsleit gerð hjá stuðningsfólki Rússa vegna stríðsvopna Þýskir saksóknarar greindu frá því að þeir hefðu gert húsleit hjá pari sem hefur staðið fyrir mótmælum gegn stuðningi þýskra stjórnvalda við Úkraínu í dag. Rannsóknin á parinu er sögð snúast um brot á lögum um framleiðslu og flutnings á stríðsvopnum. Erlent 21. ágúst 2023 14:55
Skrúfa fyrir flugumferð eftir drónaárásir Minnst tveir særðust þegar flak úkraínsks dróna, sem Rússar grönduðu, hrapaði á hús í úthverfi Moskvu í nótt. Þá segja Rússar minnst sjö hafa særst í drónaárás á lestarstöð í Kúrsk í gær. Erlent 21. ágúst 2023 09:42
Telja að Úkraínumenn nái ekki markmiði gagnsóknar sinnar Úkraínuher tekst ekki að ná borginni Melitopol í suðuausturhluta landsins á sitt vald í ár, að mati bandarísku leyniþjónustunnar. Nái hann ekki að hrekja rússneska hermenn þaðan næst ekki eitt helsta markmið gagnsóknar Úkraínumanna. Erlent 18. ágúst 2023 08:58
Bandaríkjamenn samþykkja formlega að Úkraínumenn fái F-16 Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er sagður hafa lagt blessun sína yfir að F-16 herþotur verði fluttar frá Danmörku og Hollandi til Úkraínu um leið og þjálfun flugmanna er lokið. Erlent 18. ágúst 2023 07:19
Báðust afsökunar á að hafa dregið rússneskan aðdáanda á svið Bandaríska hljómsveitin The Killers hefur beðið aðdáendur sína afsökunar eftir að sveitin dró rússneskan aðdáenda á svið á tónleikum sínum í Georgíu við Svartahaf síðastliðinn þriðjudag. Lífið 17. ágúst 2023 16:41
Biðst afsökunar á ummælum um land fyrir aðild Stian Jenssen, yfirmaður skrifstofu Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla á dögunum þar sem hann gaf í skyn að Úkraína gæti bundið enda á átökin með því að láta land af hendi. Erlent 17. ágúst 2023 08:26
Stórhækkuðu stýrivexti til að hægja á falli rúblunnar Seðlabanki Rússlands ákvað að hækka stýrivexti í landinu um þrjú og hálft prósentustig á neyðarfundi í dag. Með ákvörðuninni reynir bankinn að bregðast við vaxandi verðbólgu og styrkja rúbluna sem er nú veikari en hún hefur verið eftir að innrásin í Úkraínu hófst í fyrra. Viðskipti erlent 15. ágúst 2023 15:37
Norskur fótboltamaður flýr Rússland og Rússarnir hóta málsókn Norski fótboltamaðurinn Mathias Normann fórnaði norska landsliðinu fyrir það að spila í rússneska boltanum en nú hefur hann yfirgefið Rússland af öryggisástæðum. Fótbolti 10. ágúst 2023 09:30
Tugir slasaðir í sprengingu í rússneskri verksmiðju Mikil sprenging varð á athafnasvæði verksmiðju sem framleiðir sjóntæki fyrir rússneska herinn nærri Moskvu í dag. Á fimmta tug manna eru slasaðir, þar af sex alvarlega. Orsakir sprengingarinnar liggja ekki fyrir að svo stöddu. Erlent 9. ágúst 2023 12:20
Segjast hafa komið í veg fyrir atlögu að lífi Selenskís Úkraínsk stjórnvöld segjast hafa komið í veg fyrir atlögu að lífi Volodómír Selenskí, forseta landsins. Úkraínsk kona hefur verið handtekinn vegna málsins. Hún er sögð hafa safnað gögnum um ferðir forsetans til að undirbúa rússneska loftárás. Erlent 9. ágúst 2023 07:26
Saka Rússa um að ráðast á viðbragðsaðila Úkraínsk stjórnvöld sökuðu rússneska herinn um að beina spjótum sínum sérstaklega að björgunarfólki í flugskeytaárásum sem voru gerðar á borgina Pokrovsk í austanverðri Úkraínu í gærkvöldi. Fimm féllu í árásinni. Erlent 8. ágúst 2023 15:59
Úkraínuforseti segir árás á blóðgjafarstöð vera stríðsglæp Tveir fórust og fjórir særðust þegar rússnesk stýrisprengja hæfði blóðgjafarmiðstöð í norðausturhluta Úkraínu, að sögn þarlendra embættismanna. Volodomír Selenskí Úkraínuforseti birti ljósmynd af alelda heilbrigðisstofnuninni sem er nærri borginni Kupiansk í Kharkív-héraði. Erlent 6. ágúst 2023 16:59
Úkraínumenn halda áfram árásum sínum utan landamæranna Árás sem gerð var með úkraínskum dróna á eitt stærsta olíutankskip Rússa er sú nýjasta í röð árása þar sem úkraínski herinn hefur notast við ómönnuð tæki til að hæfa rússnesk skotmörk bæði af sjó og úr lofti. Erlent 5. ágúst 2023 15:08
Gerðu árás á flotastöð og skemmdu herskip Úkraínumenn réðust á rússneska flotastöð nærri Novorossiysk við á Svartahafi í nótt og virðast hafa valdið skemmdum á herskipi. Litlir fjarstýrðir sjálfsprengibátar voru notaðir til árásarinnar en Rússar segjast hafa grandað þeim öllum. Erlent 4. ágúst 2023 07:50
Auka viðveru íslenskra stjórnarerindreka í Kænugarði Íslensk stjórnvöld stefna að því að auka viðveru sína í Úkraínu og hafa gert samkomulag við utanríkisráðuneyti Litáens um að íslenskir stjórnarerindrekar fái vinnuaðstöðu í sendiráði Litáens í Kænugarði. Innlent 2. ágúst 2023 08:25
Starfsemi sendiráðsins lögð niður í dag Starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu verður lögð niður í dag. Verkefni ráðuneytisins, sem hefur einnig verið með fyrirsvar gagnvart Armeníu, Belarús, Kasakstan, Kirgistan, Moldóvu, Tadsíkistan, Túrkmenistan og Úsbekistan færast yfir á utanríkisráðuneytið. Innlent 1. ágúst 2023 11:32
Enn gerðar drónaárásir í Moskvu Yfirvöld í Rússlandi segja dróna hafa hæft byggingu í Moskvu, tveimur dögum eftir að annar dróni hæfði sömu byggingu. Úkraínumenn virðast vera að auka framleiðslu á eigin drónum sem hægt er að nota til árása í Rússlandi. Erlent 1. ágúst 2023 09:18
Hafa flutt fleiri en sjö hundruð þúsund börn til Rússlands Yfirvöld í Rússlandi hafa flutt fleiri en sjö hundruð þúsund börn frá Úkraínu til Rússlands. Í nýrri skýrslu frá Maríu Lvova-Belova, nokkurs konar umboðskonu barna í Rússlandi, segir að mikill meirihluti þeirra hafi komið til Rússlands með foreldrum sínum. Erlent 31. júlí 2023 10:13
„Stríðið færist til Rússlands“ Volodomír Selenskí forseti Úkraínu segir stríðið sem geisar nú í landi hans á leið „aftur til Rússlands“. Þetta sagði hann í kjölfar drónaárása sem gerðar voru í Moskvu höfuðborg Rússlands. Erlent 30. júlí 2023 23:24
„Við munum hvorki gleyma né fyrirgefa neitt af þessu“ Rússar segjast hafa eyðilagt hernaðarlega mikilvæga stjórnstöð í úkraínsku borginni Dnipro í gær. Níu særðust í eldflaugaárásum á borgina, þar af tvö börn. Forseti Úkraínu gerir allt hvað hann getur til að hvetja þjóð sína til dáða í stríðinu. Erlent 29. júlí 2023 22:00
Dæmd úr leik fyrir að neita að taka í höndina á Rússa Úkraínsk skylmingakona var dæmd úr leik á HM fyrir að neita að taka í höndina á rússneskum mótherja sínum. Sport 28. júlí 2023 13:46
Rússar segjast hafa skotið niður dróna í Moskvu Rússnesk stjórnvöld fullyrða að þau hafi skotið niður dróna í höfuðborginni Moskvu í nótt. Þau segja drónann hafa verið úkraínskan en enginn særðist í árásinni. Erlent 28. júlí 2023 08:01
Putin lofar leiðtogum Afríku fríu korni Á meðan Rússlandsforseti lætur eldflaugum rigna yfir korngeymslur í hafnarborgum Úkraínu lofar hann leiðtogum Afríku fríu korni og vonast til að geta endurreist alþjóðlega bankastarfsemi með þeim. Á sama tíma skoðar varnarmálaráðherra Rússlands vígreifur vopnasafn einræðisherra Norður-Kóreu. Erlent 27. júlí 2023 19:21
203 löndum boðið en þrjú útundan: „Viljum ekki að allt fari út böndunum“ Ólympíusambönd 203 ríkja hafa verið boðin velkomin á Ólympíuleikana í París á næsta ári. Aðeins þrjú sambönd eru útilokuð og segir Thomas Bach, forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar, leikana eiga að verka sem sameinandi afl á tímum átaka. Sport 27. júlí 2023 13:31
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Úkraínumenn sagðir gefa í og sækja fram í Saporisjía Úkraínumenn eru sagðir hafa sett aukinn þunga í árásir þeirra gegn Rússum í Sapórisíjahéraði í suðausturhluta landsins. Þeir hafa einnig náð frekari árangri nærri Bakhmut í Dónetskhéraði. Erlent 27. júlí 2023 09:37
Særðum hermönnum bjargað á leynilegu sjúkrahúsi í Úkraínu Læknar á leynilegu hersjúkrahúsi í Úkraínu framkvæma fimmtíu til eitt hundrað skurðaðgerðir á særðum hermönnum á hverri nóttu. Þeir sem eru mest særðir eru sendir af víglínunni á spítalann. Erlent 26. júlí 2023 20:22
Fulltrúi rússneska alræðisins heiðrar einræðisstjórnina í Norður Kóreu Sergei Shoigu varnarmálaráðherra alræðisstjórnarinnar í Rússlandi ásamt sendinefnd heiðraði vini sína í einræðisríkinu Norður Kóreu með nærveru sinni í dag. Erlent 26. júlí 2023 19:30
Stríðsfangarnir í Olenivka ekki felldir í HIMARS-árás Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna kallaði í gær eftir því að þeir sem bæru ábyrgð á dauða minnst fimmtíu úkraínskra stríðsfanga í Olenivka í Dónetsk í fyrra yrðu dregnir til ábyrgðar. Volker Türk segir að rannsókn Sameinuðu þjóðanna gefi til kynna að Rússar hafi logið um það af hverju mennirnir dóu í stórri sprengingu í fangabúðum þeirra. Erlent 26. júlí 2023 10:27
Færir úkraínskum börnum lýsi í samstarfi við heimsmeistara í boxi Hinn úkraínski Artem Melnychuk hefur fengið umboð til að selja lýsi í Úkraínu. Í samstarfi við heimsmeistarann í hnefaleikum gefur hann börnum á spítölum krakkalýsi. Artem hefur búið á Íslandi í fjögur ár. Lífið 26. júlí 2023 07:45