Sjö handteknir í Noregi grunaðir um að hagræða úrslitum Lögreglan í Oslo, höfuðborg Noregs, tók sjö menn föstum höndum á miðvikudag og vistaði einn í gæsluvarðhald. Þeir eru grunaðir um að hagræða úrslitum í norskum fótbolta. Fótbolti 27.2.2026 15:18
Davos-toppur hættir vegna Epstein-tengsla Børge Brende sagði af sér sem forseti Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF) í dag vegna sambands hans við Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninn. Brende þrætti upphaflega fyrir að hafa átt í samskiptum við Epstein en annað kom í ljós þegar bandarísk skjöl voru birt nýlega. Viðskipti erlent 26.2.2026 14:45
Eva Rún og Jón Kalman tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs Rithöfundarnir Eva Rún Snorradóttir og Jón Kalman Stefánsson eru í hópi þeirra þrettán höfunda sem hafa verið tilnefndir til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2026. Eva Rún er tilnefnd fyrir Eldri konur og Jón Kalman fyrir Himintungl yfir heimsins ystu brún en báðar eru þær gefnar út af Benedikti bókaútgáfu. Menning 26.2.2026 11:28
Noregur jafnaði gullverðlaunametið sitt á Ólympíuleikum Gullverðlaun í norrænni tvíkeppni sem Andreas Skoglund og Jens Lurås Oftebro unnu sá til þess að Noregur jafnaði eigið gullverðlaunamet á Ólympíuleikunum í dag. Sport 19. febrúar 2026 17:30
Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Ráðgjafi í ferðaþjónustu segir ákvörðun Icelandair um að fljúga til Trömsö í Noregi til marks um það hvernig Íslendingar hafi sofnað á verðinum, á sama tíma og Norðmenn hafi vaknað. Félagið leggi lóð á vogarskálar Norðmanna en viðbragð þess sé tilkomið vegna sinnuleysis íslenskra stjórnvalda. Viðskipti innlent 19. febrúar 2026 06:45
Notuðu Sturlu í leyfisleysi til að auglýsa pararáðgjöf Norsku íþróttamennirnir Sturla Holm Lægreid og Johannes Hösflot Klæbo eru tveir af þekktustu íþróttamönnum Vetrarólympíuleikanna í Mílano og Cortina, Klæbo fyrir fern gullverðlaun sín og Sturla fyrir ótrúlegt sjónvarpsviðtal sitt þar sem hann viðurkenndi framhjáhald í beinni sjónvarpsútsendingu. Sport 17. febrúar 2026 07:31
Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti Beate Gangås, forstjóri norsku öryggisþjónustunnar PST, að rússneskir hakkarar hefðu náð yfirráðum yfir stíflu í Bremanger. Árásaraðilarnir opnuðu fyrir stífluna og í fjórar klukkustundir runnu 500 lítrar á sekúndu úr henni. Skoðun 16. febrúar 2026 08:00
Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með leynivopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður hafa glímt við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki. Erlent 14. febrúar 2026 22:36
Fékk sig fullsaddan í Noregi og vann sögulegt gull fyrir Brasilíu Lucas Pinheiro Braathen vann fyrsta Ólympíugull Brasilíu í sögu Vetrarleika í dag. Hann fagnaði sigri í stórsvigi þar sem okkar maður Jón Erik Stefánsson var á meðal keppenda. Sport 14. febrúar 2026 15:31
Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Eftir 22 ár með Ernu Solberg í broddi fylkingar tekur Ine Eriksen Søreide við formannsembætti í norska íhaldsflokknum Høyre. Ine er ein í framboði en næstu vikur munu reyna á nýja formanninn enda er enn mörgum spurningum um umfang sambands norskra stjórnmálamanna við Jeffrey Epstein ósvarað. Erlent 14. febrúar 2026 11:07
Ólst upp á sjónum og fann köllunina í stýrishúsinu „Fólk er oft forvitið um hvað við gerum raunverulega. Ég held að margir geri sér ekki alveg grein fyrir því hvað starfið er fjölbreytt,“ segir Jóna Krista Jónsdóttir en hún vinnur sem stýrimannsnemi á norska skemmtiferðaskipinu Hurtigruten sem siglir frá Hamborg til Honningsvåg. Hún ólst upp á sjó og starfaði ung á fiskibátum en núna sinnir hún leiðarskipulagi og eftirliti um borð. Lífið 14. febrúar 2026 09:01
Kínverjarnir selja sig út úr Elkem Kínverska félagið Bluestar hefur samið um sölu á öllum eignarhlut sínum í norska félaginu Elkem AS, sem rekur meðal annars járnblendisverksmiðju á Grundartanga. Kaupverðið verður allt greitt með einni af þremur deildum Elkem, sem verður klofin frá félaginu, og enginn peningur fer á milli aðila. Breytingarnar hafa engin áhrif á rekstur Elkem á Grundartanga. Viðskipti innlent 13. febrúar 2026 10:39
Lokar hringnum eftir tíu ár erlendis Matthea Lára Pedersen er úr mikilli listafjölskyldu og hefur starfað víða um Evrópu sem atvinnudansari síðan hún var nítján ára. Garðurinn með Íslenska dansflokknum er hennar fyrsta sýning á Íslandi. Samhliða dansferlinum hefur hún verið í sambandi með fótboltamanninum Kolbeini Finnssyni en milli þeirra ríkir mikill skilningur vegna flakks beggja. Matthea heldur framtíðinni opinni svo lengi sem hægt er að púsla dansinum saman við lífið. Lífið 13. febrúar 2026 07:00
Jagland ákærður fyrir spillingu Þorbjörn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, var ákærður fyrir spillingu og húsleit gerð á heimili hans í morgun. Hann vildi ekki tjá sig við fjölmiðla en fjallað hefur verið um tengsl Jagland við Jeffrey Epstein, bandaríska barnaníðinginn, undanfarna daga. Erlent 12. febrúar 2026 13:22
Sturla bað allt liðið afsökunar í kvöldverði Umdeildasti maður Ólympíuleikanna í Mílanó og Cortina, Sturla Holm Lægreid, til máls í kvöldverði með norska skíðaskotfimilandsliðinu í gærkvöldi og baðst afsökunar á viðtalinu fræga þar sem hann játaði framhjáhald í beinni útsendingu. Sport 12. febrúar 2026 09:30
Byrja að fljúga til Tromsø og oftar til Bergen Icelandair hyggst hefja áætlunarflug til Tromsø í Norður-Noregi en flogið verður tvisvar í viku til borgarinnar frá 23. október 2026. Viðskipti innlent 11. febrúar 2026 12:15
Sturla biðst afsökunar: „Ekki alveg ég sjálfur þessa dagana og hugsa ekki skýrt“ Norðmaðurinn Sturla Holm Lægreid er líklega umtalaðasti bronsverðlaunahafi sögunnar á Vetrarólympíuleikunum en hann hefur nú beðist afsökunar á ummælum sínum eftir keppnina í gær þegar hann rændi sviðsljósinu af gull- og silfurverðlaunahafanum og gerði framhjáhald og sambandsslit sín að heimsfrétt. Sport 11. febrúar 2026 11:31
Jagland sviptur friðhelgi Evrópuráðið svipti Þorbjörn Jagland, fyrrverandi framkvæmdastjóra sinn, friðhelgi gegn saksókn í kjölfar ásakana um tengsl hans við Jeffrey Epstein. Jagland sætir nú sakamálarannsókn í Noregi fyrir spillingu. Erlent 11. febrúar 2026 09:41
Fyrrverandi kærasta Sturlu tjáir sig: „Sárt að þurfa að standa í þessu“ Norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid gerði í gær sambandsslit sín að heimsfrétt en nú hefur fyrrverandi kærasta hans svarað honum. Sport 11. febrúar 2026 07:59
Norðmenn geti ekki útilokað innrás Rússa Eirik Kristoffersen, yfirmaður norska hersins, segist ekki geta útilokað þann möguleika að Rússar muni freista þess að ná undir sig landi í eigu Noregs og Finnlands til að tryggja hernaðarinnviði sína á Kólaskaga. Erlent 11. febrúar 2026 07:54
Goðsögnin les Sturlu pistilinn eftir opinberun um framhjáhald Norska skíðagoðsögnin Ole Einar Bjørndalen er allt annað en sáttur með samlanda sinn Sturlu Holm Lægreid sem, í viðtali eftir að hafa nælt í bronsverðlaun á Vetrarólympíuleikunum, viðurkenndi að hafa haldið fram hjá kærustu sinni. Sport 11. febrúar 2026 07:02
Sturla sturlaður af sorg og viðurkenndi framhjáhald í beinni Viðtal við Sturla Holm Lægreid, bronsverðlaunahafa á Vetrarólympíuleikunum, tók óvænta stefnu. Hann viðurkenndi framhjáhald og segir undanfarna viku hafa verið hans verstu á ævinni. Sport 10. febrúar 2026 15:48
Tæp fjórtán prósent þjóðarinnar búsett erlendis Tæplega 52 þúsund íslenskir ríkisborgarar, tæp fjórtán prósent þjóðarinnar, voru með skráð lögheimili erlendis í fyrra. Langsamlega flestir þeirra eru búsettir á Norðurlöndunum, 61,7 prósent. Innlent 10. febrúar 2026 10:25
Vill verða Bond illmenni Norski fyrrum fótboltamaðurinn John Carew á sér stóra drauma innan leiklistarinnar. Hann lærði iðjuna í leyni meðan hann var leikmaður Aston Villa á Englandi og hefur getið sér gott orð að undanförnu. Fótbolti 9. febrúar 2026 16:15