Dúxaði í FG eins og mamma og pabbi Agnes Ómarsdóttir útskrifaðist af náttúrufræðibraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ um helgina og varð dúx með ágætiseinkunnina 9,8. Henni kippir greinilega í kynið enda dúxuðu báðir foreldrar hennar við sama skóla á sínum tíma. Innlent 29. maí 2023 19:31
Innflytjandi og tveggja barna móðir treysti ekki sjálfri sér en dúxaði Jolanta Paceviciene, tveggja barna móðir og innflytjandi frá Litháen, dúxaði á stuðningsfulltrúabraut Borgarholtsskóla með 9,75 í meðaleinkunn. Í upphafi ætlaði hún varla að treysta sér í námið vegna íslenskunnar. Innlent 28. maí 2023 15:41
Nýr gjaldmiðill á Hellu og mikill áhugi á mótorkrossi Nýr gjaldmiðill var tekin upp á Hellu í vikunni þegar nemendur grunnskólans buðu bæjarbúum á markað í íþróttahúsinu þar sem fjölbreytt dagskrá var í boði. Krossarar komu líka við sögu á hátíðinni og þá voru nemendur með sína eigin fréttastofu. Innlent 27. maí 2023 21:06
Lögmaður hjá Skattinum hlaut verðlaun fyrir árangur í skipstjórn Fjölmennasta útskrift í sögu Tækniskólans fór fram í gær. Meðal útskrifaðra var Thelma Þorbjörg Sigurðardóttir, sem hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í skipstjórnargreinum. Hún er lögfræðingur frá Háskóla Íslands, með lögmannsréttindi og starfar hjá Skattinum. Innlent 27. maí 2023 18:48
„Ég get ekki skilið þriggja ára barn eftir eina heima“ Verkföll hófust í sundlaugum og íþróttahúsum víða um land í dag. Formaður BSRB segir að enn sé ekki búið að bjóða til annars fundar með ríkissáttasemjara. Foreldri barns á leikskóla og starfsmaður Kópavogsbæjar furðar sig á því að viðræðurnar séu ennþá í hnút. Innlent 27. maí 2023 16:22
Fagna réttlæti fyrir dóttur sem kennari sló Magnea Rún Magnúsdóttir, móðir unglingsstúlku sem var löðrunguð af kennara í Dalvíkurskóla árið 2021, segir viðsnúning Landsréttar í máli kennarans létti. Málið sé búið að liggja eins og mara á fjölskyldunni í langan tíma. Innlent 27. maí 2023 12:14
Fékk 10 í meðaleinkunn í MH: „Ég reyndi bara alltaf að gera mitt besta“ Tómas Böðvarsson, nýsleginn stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð, hlaut í gær hreina tíu í meðaleinkunn, fyrstur allra í sögu skólans. Hann vissi ekkert um afrekið fyrr en á útskriftarathöfninni í gær. Innlent 27. maí 2023 07:01
Kennarar undirrituðu kjarasamninga Félag grunnskólakennara og Félag leikskólakennara skrifuðu nú undir kvöld undir kjarasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga. Um er að ræða skammtímasamninga til eins árs. Innlent 26. maí 2023 20:39
Hlaut meðaleinkunn sem aldrei verður toppuð Sögulegt met var slegið á útskriftarathöfn Menntaskólans í Kópavogi í dag þegar Orri Þór Eggertsson var útskrifaður með hreina tíu í meðaleinkunn. Ljóst er að met Orra Þórs mun standa um ókomna tíð. Innlent 26. maí 2023 18:55
Kennari mátti ekki löðrunga barn eftir allt saman Dómi Héraðsdóms Norðurlands eystra um skaðabætur til handa konu, sem var rekin úr starfi grunnskólakennara fyrir að löðrunga þrettán ára stúlku, hefur verið snúið við í Landsrétti. Landsréttur telur háttsemi konunnar hafa falið í sér gróft brot í starfi sem heimilaði skólanum að segja henni fyrirvaralaust upp störfum. Innlent 26. maí 2023 17:54
Esther fékk verðlaun fyrir meistaraverkefni við Harvard Esther Hallsdóttir hlaut á dögunum verðlaun fyrir besta meistaraverkefni ársins frá Harvard Kennedy háskólanum. Lífið 26. maí 2023 14:00
Stefna á opnun Ævintýraborgar á bílastæðaplaninu við Laugardalsvöll Reykjavíkurborg stefnir á að opna tímabundinn leikskóla á bílastæðaplaninu við Laugardalsvöll, næst hringtorginu á mótum Reykjavegar og Engjavegar. Gangi allt eftir er gert ráð fyrir að leikskólinn, sem yrði svokölluð Ævintýraborg, myndi opna á fyrri hluta næsta árs og geta tekið við um hundrað börnum. Innlent 26. maí 2023 13:00
Eins og sameining sé ákveðin og „sýndarsamráð“ tekið við Framhaldsskólakennari í Keili furðar sig á því sem fram kom á fundi sem stýrihópur mennta- og barnamálaráðuneytisins boðaði til vegna mögulegrar sameiningar skólans við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Langflestir séu ósáttir en að hans mati virtist vera sem búið væri að taka ákvörðun um sameiningu. Nú sé eins og svokölluð sýndarsamráð hafi tekið við. Innlent 26. maí 2023 08:01
Birtir launaseðla leikskólaleiðbeinenda Töluverður munur er á launum leikskólaleiðbeinenda sem vinna í Reykjavík og í Kópavogi. Samkvæmt launaseðlum sem formaður BSRB birtir í dag fær leiðbeinandi í Kópavogi um 45 þúsund krónum minna í heildarlaun fyrir skatt. Innlent 25. maí 2023 17:43
Afar ósáttur við auglýsingar BSRB sem hann telur ólöglegar Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, er allt annað en sáttur við auglýsingar BSRB í nafni Reykjanesbæjar þar sem óskað er eftir nægjusömum starfskrafti. Félagsmenn í Starfsmannafélagi Suðurnesja lögðu niður störf í grunnskólum í dag og fjölmenntu á bókasafn bæjarsins í morgun og hittu fyrir bæjarstjórann. Innlent 24. maí 2023 12:00
Yfirlýsing vegna MA málsins Þann 11. maí síðastliðin gaf Menntaskólinn á Akureyri út yfirlýsingu og bað þar geranda afsökunar á að hafa trúað því sem þau kalla „sögusögn“. Skoðun 24. maí 2023 07:30
Mesta brottfall í Evrópu Brottfall ungs fólks úr námi er á uppleið aftur eftir covid faraldurinn og er nú það hæsta í Evrópu. Tvöfalt fleiri drengir hverfa á brott úr námi en stúlkur. Dósent í félagsfræði segir vandann hefjast í grunnskólum. Innlent 24. maí 2023 07:00
Sú fyrsta sem fær tíu í einkunn fyrir meistaravörn Guðrún Sólveig Sigríðardóttir Pöpperl, laganemi við Háskóla Íslands, hlaut í gær 10 í einkunn fyrir vörn á meistararitgerð sinni í greininni. Þetta er í fyrsta sinn sem hæsta einkunn er gefin fyrir meistararitgerð við deildina. Lífið 23. maí 2023 15:17
Amma kölluð út í morgun vegna verkfalla Verkföll BSRB hófust af fullum þunga í morgun í níu sveitarfélögum. Samband íslenskra sveitarfélaga og BSRB funduðu hjá ríkissáttasemjara síðdegis en enn er langt í land. Amma var kölluð út í morgun vegna verkfalla í leikskólanum hjá einu barnabarninu. Innlent 22. maí 2023 18:49
Getur ekki sótt þá slitnu skólastarfsemi sem er í boði vegna verkfalla Verkföll BSRB hófust að fullum þunga í tíu sveitarfélögum í dag. Samtal er í gangi milli samningsaðila þó ekki hafi veirð formlega fundað í tæpar tvær vikur. Foreldri fatlaðs barns í Ölfus segir verkföllin hafa mikil áhrif en óvíst er hvort foreldrar fái veikindafrí, þurfi að taka út sumarfrí eða verði launalausir til að vera heima með börnunum. Innlent 22. maí 2023 12:57
Sameining Kvennó og MS: Til varnar því sem vel er gert Ég hef hugsað mér að láta af störfum sem framhaldsskólakennari vorið 2024 eftir 24 ára starf við Kvennaskólann í Reykjavík. Þá eru jafnframt liðin 50 ár frá því ég útskrifaðist úr skólanum með landspróf upp á vasann. Síðar sama ár verður skólinn 150 ára þannig að ég hef fylgt skólanum í þriðjung af þeim tíma sem hann hefur starfað. Skoðun 21. maí 2023 14:00
„Þetta er blaut tuska í andlitið á Þóru Melsteð stofnanda Kvennaskólans“ Fyrirhugaðri sameiningu Menntaskólans við Sund og Kvennaskólans í Reykjavík var harðlega mótmælt á fjöldafundi í dag. Nemendur og kennarar skoruðu á menntamálaráðherra að falla frá hugmyndinni; menningarverðmæti beggja skóla muni glatast við samrunann. Innlent 19. maí 2023 23:01
Gelkúlur úr leikfangabyssum valda usla á leikskólalóðum Gelkúlur úr leikfangabyssum eru farnar að valda usla á leikskólalóðum landsins. Kennarar biðla til foreldra barna og unglinga að halda byssunum frá leikskólalóðum enda komist kúlurnar auðveldlega í litla munna, nef og eyru. Innlent 19. maí 2023 20:01
Starfsmenn og nemendur mótmæla fyrirhugaðri sameiningu Kvennó og MS Nemendur og kennarar við Kvennaskólann í Reykjavík og Menntaskólann við Sund mótmæla fyrirhuguðum samruna skólanna og segja mennta- og barnamálaráðuneytið taka stór skref án samráðs og aðkomu nemenda og starfsmanna. Samband íslenskra framhaldsskólanema, nemendur skólanna beggja og kennarar hafa boðið til mótmæla í dag sem hefjast klukkan eitt í dag fyrir utan mennta- og barnamálaráðuneytið. Skólameistari Kvennaskólans segir alveg ljóst að mikil andstaða sé við hugmyndina. Innlent 19. maí 2023 13:16
Boða til frekari verkfalla í 29 sveitarfélögum Félagsmenn í BSRB samþykktu í morgun frekari verkfallsaðgerðir um land allt vegna kjaradeilu félagsins við sveitarfélög. Boðað hefur verið til aðgerða í 29 sveitarfélögum. Innlent 19. maí 2023 12:52
Kvennaskólinn lagður niður á 150 ára afmælisárinu? Ásmundur Einar Daðason hefur unnið að góðum málum í síðustu og núverandi ríkisstjórn, komið vel fyrir og lagt mikla áherslu á mál barna. En varðandi komandi breytingar á framhaldsskólakerfinu hafa málin heldur betur farið illa af stað og snúist í höndum ráðuneytis hans, mörgum framhaldsskólum hefur verið komið í opna skjöldu. Skoðun 19. maí 2023 09:01
Bætum líðan, bætum árangur og eflum áhugahvöt barna Kveikjum neistann er rannsóknar og þróunarverkefni, sem Grunnskóli Vestmannaeyja tekur þátt í hefur verið í gangi með nemendum í næstum tvö ár. Verkefnið hefur farið afar vel af stað og árangur nemenda lofar góðu. Það er einmitt árangur nemenda sem er skýrt leiðarljós þeirra sem að verkefninu koma og mjög ánægjulegt að sjá mælanlegan góðan árangur í færni jafnt sem líðan undanfarin tvö ár. Skoðun 19. maí 2023 08:30
Kennarinn á Sjónarhóli Flestir vita eflaust að lykillinn að því að líða vel er sá að líkami og sál gangi í takt. Bæði fyrirbærin hlúa hvort að öðru og næra. Stundum koma upp aðstæður sem höggva í þessi fyrirbæri og skilja eftir sár og sorg. Skoðun 19. maí 2023 08:00
Smiður í mannauðsmálin: „Okkur vantar okkar Óla Stef í hjúkrunarfræðina“ „Ég segi fyrir mitt leyti að það hafði ekki tekist í grunnskóla að vekja áhuga minn á einhverju til að stefna á í framhaldsskóla. Ég fór í Verkmenntaskólann á Akureyri eftir grunnskóla en það var eiginlega bara af skyldurækni. Ég vissi ekkert hvað ég var að gera þar,“ segir Daníel Gunnarsson, mannauðssérfræðingur hjá Alvotech. Atvinnulíf 19. maí 2023 07:00
Nicole Leigh Mosty ráðin leikskólastjóri í Vík í Mýrdal Nicole Leigh Mosty hefur verið ráðin í starf leikskólastjóra leikskólans Mánalands í Vík í Mýrdal. Innlent 18. maí 2023 12:15