Sautján ára fluttur á bráðadeild eftir líkamsárás við Norðlingaskóla Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í gærkvöldi og í nótt, á meðal þeirra verkefna sem embættið sinnti var tilkynning um líkamsárás við Norðlingaskóla þar sem 17 ára piltur var fluttur á bráðadeild með áverka á höfði. Innlent 24. september 2022 07:38
Ragnhildur áfram rektor HR Ný stjórn Háskólans í Reykjavík hefur framlengt ráðningarsamning Ragnhildar Helgadóttur rektors til ársins 2026. Ragnhildur tók við stöðunni af Ara Kristni Jónssyni árið 2021, en hann hafði þá verið rektor í ellefu ár. Ragnhildur gerði upphaflega samning til eins árs, sem hefur nú verið framlengdur. Viðskipti innlent 22. september 2022 11:02
Nemendur flykkjast heim að Hólum að læra fiskeldi Sprenging hefur orðið í fjölda nemenda í fiskeldisnámi við Háskólann á Hólum og stunda núna um áttatíu manns nám í faginu. Samtímis fer þar fram rannsóknar- og kynbótastarf í fiskeldi. Innlent 20. september 2022 23:13
Góð kartöfluuppskera í Krakkaborg í Flóahreppi Börnin í leikskólanum Krakkaborg í Flóahreppi og starfsfólk hoppa hæð sína af gleði þessa dagana því leikskólinn hefur fengið splunkunýtt gróðurhús og þá er kartöfluuppskeran með besta móti í útigarði skólans. Innlent 18. september 2022 20:05
Sláandi munur á færni leikskólabarna Börn af annarri kynslóð innflytjenda ná mun verri tökum á íslensku en áður var talið. Þetta sýnir ný rannsókn á vegum Háskóla Íslands en vísindamennirnir segja stöðuna grafalvarlega og kalla eftir íslenskukennslu í leikskólum. Innlent 17. september 2022 20:01
„Þau hafa ekki fengið þá aðstoð sem þau þurfa“ Vel rúmlega 1100 börn bíða eftir að komast að hjá fagfólki Skólaþjónustu Reykjavíkurborgar. Borgarfulltrúi segir ástandið stjórnlaust. Það sé hættulegt að láta börn í andlegri vanlíðan bíða eftir sálfræðiþjónustu. Innlent 17. september 2022 12:01
Tónlistarnám í Reykjavík allt að tvöfalt dýrara Skólagjöld tónlistarskóla í Reykjavík eru þau dýrustu á landinu en borgin, ólíkt flestum öðrum sveitarfélögum, rekur ekki tónlistarskóla á eigin vegum. Veturinn í tónlistarskóla getur kostað rúmlega tvö hundruð þúsund krónur. Innlent 17. september 2022 07:39
Ekkert barn þarf að sitja eftir Á þeim sex árum sem liðið hafa frá því lesfimipróf Menntamálstofnunar fór fyrst í almenna notkun hafa litlar breytingar orðið á niðurstöðum prófsins á landsvísu og hlutfall nemenda sem útskrifast úr grunnskóla undir lágmarksviðmiði í lesfimi enn um 30%. Skoðun 16. september 2022 13:01
Rúmlega hálfur milljarður í fjárveitingu vegna rakaskemmda Í morgun samþykkti bæjarráð Reykjanesbæjar mörg hundruð milljóna króna fjárveitingu til Myllubakkaskóla til þess að hægt sé að halda viðgerðum vegna rakaskemmda hjá skólanum áfram. Innlent 15. september 2022 23:22
618 börn bíða eftir sálfræðiþjónustu hjá HH Þessa stundina bíða 618 börn eftir sálfræðiþjónustu hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þetta kemur fram í nýrri samantekt sem Umboðsmaður barna hefur ráðist í um bið barna eftir nauðsynlegri þjónustu. Ráðist var í sams konar samantekt í árslok 2021 og síðan voru nýjustu upplýsingar birtar í gær frá sömu aðilum en auk þeirra voru birtar upplýsingar frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Heilsuskóla barnaspítalans og þjónustu talmeinafræðinga. Innlent 15. september 2022 13:27
Takið ákvörðunina Manstu þegar gluggarnir heima hjá þér fóru að leka, ofninn bilaði og þú áttir von á einu barni til viðbótar svo það bráðvantaði annað herbergi - en þú beiðst bara í nokkur ár þangað til að málið leystist af sjálfu sér? Nei ekki ég heldur. Það er vegna þess að heimurinn virkar ekki þannig. Þvert á móti stækka vandamálin því lengur sem kosið er að vanrækja þau. Skoðun 15. september 2022 08:00
Háskólanemar hjálpi til með fækkun á biðlistum frístundaheimila Leikskólamál hafa verið í brennidepli nú síðustu mánuði, foreldrar hafa fjölmennt á palla ráðhússins með börnin sín, sem fá ekki leikskólapláss. Innlent 14. september 2022 11:57
Nemandi FÁ dró upp hníf í skólanum Myndskeið sem sýnir nemanda í Fjölbrautaskólanum við Ármúla draga upp hníf í skólanum gengur nú manna á milli. Innlent 13. september 2022 19:16
Ökumaðurinn ekki undir áhrifum þegar bíllinn hafnaði á lóð leikskólans Ökumaður bílsins sem hafnaði inni á lóð leikskólans Fífusala var ekki undir áhrifum áfengis eða vímuefna þegar bíllinn fór inn á lóðina, heldur komu upp veikindi hjá honum. Þetta segir Erla Stefanía Magnúsdóttir, leikskólastjóri Fífusala. Innlent 13. september 2022 19:07
Bíl ekið inn á lóð Fífusala Einn var fluttur á sjúkrahús eftir að bíl var ekið inn á lóð leikskólans Fífusala í Salahverfi í Kópavogi í dag. Mikill viðbúnaður var á vettvangi en bílnum var ekið inn á lóðina á vegg leikskólans. Leikskólabörnin sluppu alfarið. Innlent 13. september 2022 15:51
Hefur náð mögnuðum tökum á málinu á skömmum tíma „Ég hef lært íslensku í þrjú ár. Nú á dögum er ég að læra meira af því að ég er í vinnu í grunnskóla, þar sem ég hef verið að tala við krakkana allan tímann,“ segir hinn kínverski Yi Hu, sem rætt var við í Íslandi í dag í síðustu viku. Innlent 13. september 2022 09:01
Hver ber ábyrgð á menntamálum? Þessa dagana er nokkuð rætt um stöðu verkalýðshreyfingarinnar (hér stytt í VLH) og þá jafnframt Samtaka atvinnurekenda (SA) gagnvart kröfu um íslenskukennslu fyrir starfsfólk á vinnumarkaði. Svo virðist sem einhverjir líti svo á að þessir aðilar eigi að sjá um menntamál. En er það tilfellið? Skoðun 13. september 2022 08:01
Kaup hlutafjár eina leiðin í þröngri stöðu Höfundi Hjallastefnunnar þykir afskaplega miður að félagið, sem rekur leik- og grunnskóla, hafi þurft að kaupa hlutafé fráfarandi framkvæmdastjóra félagsins með töluverðum hagnaði fyrir framkvæmdastjórann. Innlent 12. september 2022 23:32
Nothæfar starfsstöðvar merktar með „má nota“ eftir alvarlega tölvuárás Alvarleg og ígrunduð tölvuárás var gerð á Tækniskólann í síðustu viku. Ekki er talið að aðgangur að drifum skólans verði aðgengilegur fyrr en í næstu viku. Innlent 12. september 2022 21:56
„Afi Palli“ er vinsæll í leikskólanum á Flúðum Börnin í leikskólanum á Flúðum eru alsæl með að vera búin að fá „afa“ í leikskólann sinn enda er hann alltaf kallaður „Afi Palli“. Innlent 12. september 2022 20:07
Ráðast í úttekt á Sælukoti og taka arðgreiðslur til skoðunar Vegna umfangs umkvartana hefur Reykjavíkurborg ákveðið að farið verði í ytra mat á starfsemi leikskólans Sælukots. Meðal annars verður farið yfir reglur um arðgreiðslur og samræmingu innritunar borgarrekinna og sjálfstætt starfandi leikskóla. Innlent 12. september 2022 16:28
Ábyrgðin á Sælukoti liggur hjá Reykjavíkurborg Í viðtali á Bylgjunni við Elínu Halldórsdóttur leikskólastjóra á Sælukoti, þann 9. september síðastliðinn, kemur fram að rekstrarstjóri Sælukots sé nunna í Ananda Marga samtökunum sem vinnur mikla sjálfboðavinnu og óeigingjarnt starf. Skoðun 12. september 2022 11:00
Konur af erlendum uppruna gagnrýna ummæli Sólveigar Önnu harðlega Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að þau gagnrýni harðlega þau ummæli sem formaður Eflingar lét falla í viðtali við Ríkisútvarpið í dag. Samtökin segja ummælin skaðleg áratugalangri baráttu þeirra sem hafa flutt hingað til Íslands um að fá aukinn aðgang að vönduðum íslenskunámskeiðum af hendi atvinnurekenda. Innlent 11. september 2022 21:13
Á sandi byggði heimskur maður hús Það sem einkennir gjarnan okkar ágæta samfélag er að málin eru oft leyst með skammtalækningum í stað þess að hugsa til framtíðar. Núna, sem fyrr koma foreldrar og mótmæla stöðunni í leikskólamálum hjá borginni vegna þess að börn þeirra komast ekki inn í skólana. Skoðun 11. september 2022 18:02
Söguleg skólamunastofa heyrir sögunni til Óánægja ríkir með þá ákvörðun skólastjóra og borgaryfirvalda að leggja niður svonefnda skólamunastofu Austurbæjarskóla til að rýma þar fyrir kennslustofu. Skólamunastofan er safn sem hefur staðið í risinu í Austurbæjarskóla um árabil. Innlent 10. september 2022 23:19
„Alls ekki verið nóg gert“ Forsætisráðherra segir alls ekki hafa verið gert nóg í að styðja við íslenskukennslu fyrir útlendinga hér á landi. Stjórnvöld og atvinnulíf geti gert betur og fólk eigi að geta sótt íslenskunám á vinnutíma án hás kostnaðar. Prófessor emeritus vill að íslenskukennsla verði sett í kjarasamninga. Innlent 10. september 2022 21:28
Tryggjum börnum gott atlæti - núna Nú verður ríkið að stíga inn í og lengja fæðingarorlof barna. Þó löngu fyrr hefði verið enda ótal rannsóknir sem sýna fram á að börnum er best borgið með sínu besta fólki, foreldrum sínum fyrstu tvö árin, þessum mikilvægu árum geðtengslamyndunar. Skoðun 10. september 2022 09:30
Fjarlægðu bækur og húsgögn úr Fossvogsskóla Hafdís Guðrún Hilmarsdóttir, skólastjóri Fossvogsskóla, hefur óskað eftir að betur sé farið yfir þau viðmið sem voru notuð við flutning á gögnum, búnaði og húsgögnum úr Korpuskóla. Hún gerir það í kjölfar ábendinga sem bárust frá foreldrum tveggja barna í skólanum. Innlent 9. september 2022 14:11
Vegna umfjöllunar um leikskólann Sælukot Ég undirrituð hef þurft að lesa greinar og hlusta á viðtöl í fjölmiðlum síðustu 2 daga þar sem fram koma ótrúlegustu rangfærslur um skólastarf leikskólans Sælukots sem á að baki 46 ára starf. Skoðun 9. september 2022 13:01
Diljá Mist bíður og bíður: „Spennandi að sjá hvort metið verði slegið“ „Jæja! 7. sept og strákurinn minn bíður enn eftir frístundaplássi í Reykjavík. Varla er stundatöflupúsl enn að vefjast fyrir yfirstjórninni..? Í fyrra fékk hann pláss 12. október, spennandi að sjá hvort metið verði slegið,“ skrifaði Diljá Mist Einarsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins á samfélagsmiðla í gær. Lífið 8. september 2022 17:00