Haukar - Canaria í kvöld Haukastúlkur hefja þáttöku sína í Evrópukeppni kvenna í körfubolta í kvöld þegar þær taka á móti sterku liði Caja Canarias á Ásvöllum. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og rétt að skora á alla körfuboltaáhugamenn að fjölmenna á leikinn og styðja við bakið á ungu liði Hauka. Körfubolti 9. nóvember 2006 18:43
Mikið fjör á öllum vígstöðvum í kvöld Það verður mikið um að vera í körfuboltanum í kvöld. Karlalið Keflavíkur spilar sinn fyrsta leik í Evrópukeppninni á útivelli gegn tékkneska liðinu Mlekarna Kunin og þá eru fjórir leikir í úrvalsdeild karla og einn í efstu deild kvenna. Körfubolti 8. nóvember 2006 15:23
Fimm leikir í kvöld Fimm leikir eru á dagskrá í körfuboltanum hér heima í kvöld. Fjórir leikir eru hjá körlunum og einn í kvennaflokki þar sem Íslandsmeistarar Hauka taka á móti nýliðum Hamars/Selfoss. Sá leikur hefst klukkan 19:15 eins og raunar allir leikir kvöldsins. Körfubolti 29. október 2006 17:36
Tamara Bowie best í fyrstu umferðinni Bandaríska körfuknattleikskonan Tamara Bowie hjá Grindavík var leikmaður fyrstu umferðar í Iceland Express deild kvenna samkvæmt tölfræðigrunni KKÍ en hún átti stórleik gegn liði Hamars/Selfoss. Þetta kemur fram á vef körfuknattleikssambandsins í dag. Körfubolti 25. október 2006 22:15
Birna Valgarðsdóttir meiddist á hné Landsliðskonan Birna Valgarðsdóttir hjá Keflavík verður frá keppni í að minnsta kosti einn mánuð eftir að liðþófi í hné hennar rifnaði á æfingu á mánudagskvöldið. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. Þetta er liði Keflavíkur mikið áfall en Birna á enn eftir að fara í speglun þar sem betur kemur í ljós hve alvarleg meiðsli hennar eru. Körfubolti 25. október 2006 22:15
Góður sigur Keflavíkurstúlkna í Grindavík Önnur umferðin í Iceland Express deild kvenna í körfubolta fór fram í kvöld. Keflavíkurstúlkur gerðu góða ferð yfir til Grindavíkur og sigruðu 72-69. Takesha Watson skoraði 35 stig og hirti 8 fráköst fyrir Keflavík og María Erlingsdóttir skoraði 17 stig. Tamara Bowie fór hamförum í liði Grindavíkur með 33 stig og 16 fráköst og Hildur Sigurðardóttir skoraði 14 stig, hirti 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. Körfubolti 25. október 2006 21:18
Íslandsmeistararnir verja titla sína Í dag var haldinn árlegur blaðamannafundur fyrir upphaf leiks í úrvalsdeildum karla og kvenna í körfubolta og þar spá þjálfarar og fyrirliðar allra liða í deildunum í spilin fyrir komandi leiktíð venju samkvæmt. Njarðvík og Haukar munu verja titla sína ef marka má spár í dag. Sport 17. október 2006 17:44
Páll Axel safnaði mestu fé Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson safnaði mestu fé allra í gær þegar fram fóru úrslitaleikirnir í meistarakeppni KKÍ, en Iceland Express og Lýsing borguðu ákveðnar peningaupphæðir fyrir hverja troðslu og 3ja stiga körfu sem skoruð var í leiknum og rann upphæðin til heyrnadaufra barna. Körfubolti 16. október 2006 21:45
Undanúrslitin í kvennaflokki í kvöld Undanúrslitaleikirnir í Powerade bikar kvenna í körfubolta fara fram í kvöld en nú klukkan 19 mætast Íslandsmeistarar Hauka og ÍS og klukkan 21 eigast við grannaliðin Keflavík og Grindavík. Báðir leikirnir fara fram í Laugardalshöll. Körfubolti 6. október 2006 18:46
Undanúrslitin hefjast annað kvöld Í dag var haldinn blaðamannafundur vegna undanúrslitaleikjanna í karla- og kvennaflokki í fyrirtækjabikar KKÍ sem nefnist Powerade bikarinn að þessu sinni. Keppni þessi hefur verið árviss viðburður í tíu ár og ráðast úrslitin um næstu helgi í Laugardalshöllinni. Körfubolti 4. október 2006 17:00
Jón Eðvaldsson tekur við kvennaliði Keflavíkur Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur ráðið Jón Halldór Eðvaldsson sem næsta þjálfara kvennaliðs félagsins. Samningurinn er til tveggja ára og honum til aðstoðar verður Agnar Mál Gunnarsson. Jón hefur áður verið við þjálfun hjá yngri flokkum félagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Sport 13. júní 2006 16:27
Haukar Íslandsmeistarar Haukastúlkur tryggðu sér í kvöld sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í körfuknattleik kvenna þegar liðið lagði Keflavík 81-77 í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu. Haukar unnu því samtals 3-0 og eru vel að titlinum komnir eftir frábæran árangur í vetur. Sport 7. apríl 2006 20:48
Haukar í vænlegri stöðu Haukastúlkur eru komnar í afar vænlega stöðu í úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn eftir góðan útisigur á Keflavík 79-77 í æsispennandi öðrum leik liðanna í Keflavík í kvöld. Megan Mahoney skoraði 33 stig í liði Hauka í kvöld og Helena Sverrisdóttir skoraði 21 stig. Hjá Keflavík var Lakiste Barkus yfirburðamaður og skoraði 37 stig. Haukar hafa því unnið tvo fyrstu leikina í einvíginu og geta tryggt sér titilinn á heimavelli sínum í þriðja leiknum á föstudaginn. Sport 4. apríl 2006 21:33
Haukar komnir yfir Haukastúlkur hafa heldur betur tekið sig saman í andlitinu í leiknum gegn Keflavík í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna. Haukar voru 11 stigum undir í hálfleik, en þegar þriðja leikhluta lauk hafði liðið náð forystu 61-56. Leikurinn fer fram í Keflavík, en nái Haukar að sigra í kvöld getur liðið klárað dæmið á heimavelli sínum á föstudaginn. Sport 4. apríl 2006 21:17
Keflavík yfir í hálfleik Keflavíkurstúlkur hafa yfir 48-34 í hálfleik gegn deildarmeisturum Hauka í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi Iceland Express-deildar kvenna í körfubolta, en leikurinn fer fram í Keflavík. Lakiste Barkus hefur farið mikinn í liði heimamanna og skoraði 22 stig í fyrri hálfleiknum. Sport 4. apríl 2006 21:05
Stúdínur lögðu Hauka Lið ÍS náði að jafna metin í 1-1 í rimmu sinni við deildarmeistara Hauka í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í dag með góðum sigri í Kennaraháskólanum 83-71. Liðin þurfa því að mætast að Ásvöllum í oddaleik um hvort liðið mætir Keflavík í úrslitunum. Sport 25. mars 2006 19:22
Keflavík í úrslitin Keflavík leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna eftir að hafa burstað granna sína í Grindavík 97-72 í öðrum leik liðanna í Keflavík í kvöld. Keflavík vann því samanlagt 2-0 og mætir annað hvort Haukum eða ÍS í úrslitum. Sport 24. mars 2006 21:16
Fer Keflavík í úrslitin? Keflavíkurstúlkur geta unnið sér sæti í úrslitaeinvíginu í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna í kvöld þegar liðið tekur á móti Grindvíkingum á heimavelli sínum í kvöld. Keflavík náði að vinna fyrsta leikinn í Grindavík í fyrrakvöld og getur því klárað dæmið í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15. Sport 24. mars 2006 16:53
Haukar lögðu ÍS Haukastúlkur höfðu betur í fyrsta leik sínum við ÍS í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í körfubolta í kvöld 76-66. Helena Sverrisdóttir skoraði 18 stig, hirti 10 fráköst og gaf 7 stoðsendingar í liði Hauka og Megan Mahoney skoraði 18 stig og hirti 13 fráköst. Maria Conlon skoraði 25 stig og hirti 10 stig fyrir ÍS og Helga Þorvaldsdóttir skoraði 20 stig. Sport 23. mars 2006 22:06
Keflavík sigraði í Grindavík Keflavíkurstúlkur gerðu sér lítið fyrir og lögðu granna sína í Grindavík í fyrsta leik undanúrslitanna í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld 90-83. Keflavík getur því komst í úrslitin með sigri á heimavelli sínum í næsta leik. LaKiste Barkus skoraði 30 stig fyrir Keflavík, en Tamara Stocks skoraði 33 stig fyrir Grindavík. Sport 22. mars 2006 20:59
Grindavík lagði Keflavík Grindavíkurstúlkur tryggðu sér í kvöld annað sætið í Iceland Express deild kvenna í körfubolta þegar þær lögðu granna sína í Keflavík 77-70 í hreinum úrslitaleik um hvort liðið yrði með heimavallarréttinn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Sport 15. mars 2006 21:15
Leikið um heimavallarréttinn í Grindavík Grindavík og Keflavík mætast í hreinum úrslitaleik um hvort liðið verður með heimavallarréttinn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Grindavík er í þriðja sæti deildarinnar, en Keflavíkurstúlkur geta komist upp fyrir þær með sigri í kvöld. Þá fá Haukastúlkur afhentan deildarbikarinn eftir leik sinn við Breiðablik á Ásvöllum. Sport 15. mars 2006 15:40
Auðveldur sigur Hauka Haukastúlkur unnu auðveldan sigur á liði KR í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld 102-51 á Ásvöllum. Helena Sverrisdóttir skoraði 23 stig, gaf 8 stoðsendingar og stal 6 boltum fyrir Hauka á aðeins 23 mínútum. Vanja Pericin skoraði 16 stig, hirti 8 fráköst og stal 8 boltum hjá KR. Sport 2. mars 2006 21:41
Kveðjuleikur Önnu Maríu í kvöld Í kvöld er einn leikur á dagská í Iceland Express deild kvenna í körfubolta þegar Keflvíkingar taka á móti Breiðablik á heimavelli sínum. Leikurinn verður kveðjuleikur sigursælustu körfuboltakonu landsins, Önnu Maríu Sveinsdóttur. Sport 1. mars 2006 16:42
Auðveldur sigur Keflvíkinga á Grindavík Keflvíkingar unnu í kvöld öruggan sigur á grönnum sínum í Grindavík 109-84 í toppslag í Iceland Express deild karla í körfubolta. Grindvíkingar voru án Páls Axels Vilbergssonar, Helga Jónasar Guðfinnssonar og Hjartar Harðarsonar í leiknum, en þeir eru allir meiddir. Sport 23. febrúar 2006 21:25
Keflvíkingar leita hefnda í kvöld Heil umferð er á dagskrá í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld og einn leikur er á dagskrá í kvennaflokki. Stórleikur kvöldsins er viðureign Keflavíkur og Grindavíkur í Keflavík, en þar munu heimamenn eflaust vilja hefna ófaranna í bikarúrslitaleiknum um síðustu helgi. Sport 23. febrúar 2006 17:00
Haukastúlkur deildarmeistarar Haukastúlkur tryggðu sér í kvöld deildarmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna þegar liðið vann átakalítinn sigur á Grindavík á útivelli, 89-68. Því er ljóst að liðið hefur tryggt sér heimavallarréttinn í úrslitakeppninni í vor, því ekkert lið getur nú náð þeim að stigum. Sport 8. febrúar 2006 22:36
Haukar geta orðið deildarmeistarar Kvennalið Hauka getur í kvöld tryggt sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna í körfubolta þegar liðið sækir Grindvíkinga heim. Haukastúlkur hafa sex stiga forystu í deildinni þegar fimm umferðir eru eftir og geta með sigri á Grindavík tryggt að ekkert lið nái þeim að stigum. Sport 8. febrúar 2006 18:28
Haukar áfram á toppnum Haukastúlkur eru enn á toppnum í Iceland Express deild kvenna í körfubolta, en þrír leikir voru á dagskrá í kvöld. Haukar lögðu Breiðablik auðveldlega á útivelli 87-63, ÍS lagði KR 88-67 og þá vann Keflavík sigur á grönnum sínum í Grindavík í toppslag liðanna 83-71. Sport 1. febrúar 2006 22:18
Auðvelt hjá toppliðunum Topplið Hauka og Grindavíkur unnu þægilega sigra í Iceland Express-deild kvenna í körfubolta í kvöld. Grindavík lagði ÍS 84-66 í Grindavík, þar sem Jerica Watson skoraði 28 stig og hirti 15 fráköst og Hildur Sigurðardóttir var með 24 stig, 19 fráköst og 6 stoðsendingar. Sport 18. janúar 2006 22:24