Kappræður í borginni í beinni á Stöð 2 klukkan 18:55 Oddvitar níu framboða í Reykjavík mætast í kappræðum á Stöð 2 klukkan 18:55 í kvöld. Við sama tilefni verður greint frá niðurstöðum nýrrar könnunar Maskínu fyrir fréttastofu um fylgið í borginni. Innlent 11. maí 2022 15:54
Erum við ekki öll listafólk? Kjósum við geymili eða heimili? Burn – out (ofkeyrsla) er hugtak sem er orðið þekkt á Íslandi því miður. Ofkeyrsla er ekki jafn þekkt fyrirbæri í öðrum þjóðfélögum. Af hverju ekki? Skoðun 11. maí 2022 15:45
Meirihlutinn í Kópavogi fallinn Kópavogur á afmæli í dag 11. maí. Á afmælisdögum er oft ástæða til að líta yfir farinn veg. Það var einmitt gert á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi í gær þar sem farið var yfir málefnasamning Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks á þessu kjörtímabili sem nú er að ljúka. Skoðun 11. maí 2022 15:30
Undirskriftamálið á borð héraðssaksóknara Yfirkjörstjórnin í Reykjavík mun vísa undirskriftarmáli E-listans, Reykjavík – besta borgin, til héraðssaksóknara en stjórnin komst að þessari niðurstöðu að loknum fundi í dag. Innlent 11. maí 2022 15:19
Er flokkunum sem vinna gegn Reykjavík treystandi til að stjórna Reykjavík? Reykjavíkurborg er með lægsta skuldahlutfall sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og stendur betur fjárhagslega heldur en hin stóru sveitarfélögin á Íslandi. Það er nánast sama hvaða mælikvarði er notaður, alltaf kemur Reykjavík best út. Skoðun 11. maí 2022 15:16
Við erum á krossgötum Sameininga-hamarinn er á lofti. Verkefni þeirra fulltrúa sem fá umboð til að stjórna í smærri sveitarfélögum í komandi kosningum verða því ólík því sem áður hefur verið. Kjósendur í þessum fámennu sveitarfélögum þurfa því að spyrja sig, hverjir munu gæta hagsmuna þeirra sveitarfélags og tryggja að ef til sameininga kemur, þá verði þjónusta og lífsgæði meiri en áður! Skoðun 11. maí 2022 15:01
Oddvitáskorunin: Syndir, skýtur og semur ljóð Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 11. maí 2022 15:01
Fjölbreytt leiguhúsnæði Við þurfum öll að eiga heimili, hvort sem það er í eigin húsnæði eða leiguhúsnæði. Sum okkar vilja eiga húsnæði á meðan aðrir annað hvort kjósa að leigja eða eru fastir á leigumarkaði af einhverjum ástæðum. Skoðun 11. maí 2022 14:47
Hver stendur vörð um vinnustaðinn Reykjavíkurborg? Reykjavíkurborg er stærsti vinnustaður landsins með um 11.200 starfsmenn á sínum snærum. Vinnustaðurinn Reykjavíkurborg er því leiðandi vinnustaður sem horft er til á landinu öllu. Skoðun 11. maí 2022 14:15
Drög að fyrri hluta kosningaskýrslu eftirlits Pírata vegna kosninga 2022 Á laugardaginn er kjördagur og því utankjörfundi að ljúka. Því er ekki úr vegi að líta til baka og gera upp kosningaframkvæmdina fram að þessu. Ég vona innilega að fyrri hálfleikur verði ekki lýsandi fyrir þann seinni. Því þá stefnir í að lýðræðið skíttapi þessu 14-2. Skoðun 11. maí 2022 14:01
Hversu löng eru fjögur ár? Mig langar að stunda stjórnmál þar sem íbúar bæjarins fá að segja skoðun sína oftar en á fjögurra ára fresti. Líf fólks getur gjörbreyst á þeim tíma, aðstæður þess og kröfur orðið aðrar og fyrir vikið getur fólk þurft að reiða sig á annars konar þjónustu en þegar það gekk síðast að kjörborðinu í sveitarstjórnarkosningum. Skoðun 11. maí 2022 13:46
Náum jafnvægi á húsnæðismarkaði Íbúar í Kópavogi eru tæpleg 39 þúsund eða ríflega 10% landsmanna. Bærinn hefur síðustu áratugina vaxið ört, ekki síst í tíð Sigurðar heitins Geirdal, bæjarstjóra Framsóknar í Kópavogi til fjölda ára. Skoðun 11. maí 2022 13:15
Ungt fólk til áhrifa í Múlaþingi Í Já eða nei í Kastljósi síðastliðinn mánudag kom afdráttarlaust fram hjá öllum framboðum að ekki er gert nóg fyrir unga fólkið í Múlaþingi. Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að gera betur fyrir unga fólkið. Skoðun 11. maí 2022 13:01
Oddvitaáskorunin: Fékk að gista í fangaklefa á Eskifirði Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 11. maí 2022 13:01
Tími kominn á innhverfin Reykjavík byggðist í marga áratugi út á við. Í meira en 50 ár fólst allur vöxtur borgarinnar í því að byggja ný og ný úthverfi. Sífellt meira land var brotið undir nýja byggð, vegalengdir jukust, erfiðara varð um alla þjónustu og kostnaður við gerð innviða jókst stöðugt. Skoðun 11. maí 2022 12:46
Til móts við nýja tíma í Garðabæ Við höfum góða sögu í Garðabæ. Samfélagið okkar hefur eflst og dafnað í gegnum tíðina undir forystu okkar í Sjálfstæðisflokknum og rekstur bæjarins er traustur. Fólk vill búa í Garðabæ því það veit að hér er gott, öflugt og traust samfélag og bæjarbúar eru ánægðari með þjónustuna en víðast annars staðar. Skoðun 11. maí 2022 12:30
Áhyggjur af borðaklippingum Ég hef áhyggjur. Ég hef miklar áhyggjur af meirihlutanum í Hafnarfirði. Þau hafa ekki undan að klippa á borða og fagna verkefnum. Þau stunda allskyns opnanir, passa sig á að mæta á ýmsa viðburði til að skreyta sig með fjöðrum og skenkja sér freyðivín. Ég hef áhyggjur af þeim þar sem þau eru ekki í neinu formi til að gera þetta. Hvenær sefur þetta fólk? Skoðun 11. maí 2022 12:15
Dýrkeypt fjarlægð milli barna og sálfræðinga Árum saman hef ég sem sálfræðingur og borgarfulltrúi barist fyrir því að sálfræðingar hafi aðsetur í skólunum sjálfum frekar en á þjónustumiðstöðvum. Borgarstjórnarmeirihlutinn hefur hunsað þetta mikilvæga mál. Skoðun 11. maí 2022 12:00
Víst er ég Reykvíkingur Mikið hefur verið rætt um meintan flótta íbúa úr borginni. Í Pallborði hjá Vísi og Stöð2 benti Þórdís Lóa Þórhallsdóttir oddviti Viðreisnar fyrir nokkru réttilega á að Reykvíkingum hafi fjölgað um 10.000 á síðustu fjórum árum. Þá svaraði Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins: „En megnið af því fólki er að koma að utan.“ Skoðun 11. maí 2022 11:46
„Leiðinlegt ef gamall bæjarstjóri er mættur til þess eins að fella mig“ Hafnfirðingar sviku ekki í kappræðum um bæjarstjórnarmálin í kappræðum á Vísi í gær og buðu uppá hressileg skoðanaskipti. Átta framboð keppast um hituna og flugu skeytin milli oddvita. Innlent 11. maí 2022 11:43
Þegar samvinna býr til samfélagsleg verðmæti Endurbætur og stækkun Þorlákshafnar á árunum 2015-2017 undir forystu Framfarasinna er framkvæmd sem gjörbreytt hefur samfélaginu í Ölfusi með jákvæðum hætti. Hjörtur Jónsson var ráðinn hafnarstjóri Þorlákshafnar í ársbyrjun 2014 og upp úr því fóru magnaðir hlutir að gerast í góðu samstarfi starfsmanna og kjörinna fulltrúa. Skoðun 11. maí 2022 11:15
Oddvitaáskorunin: Spilaði fótboltamót í sundbol Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 11. maí 2022 11:00
Opið bréf til framboðslista varðandi sýn þeirra á kynþáttafordóma Nýverið opinberuðust rasísk viðhorf í samfélaginu í tengslum við flótta ungs hörundsdökks manns úr haldi lögreglunnar. Í kjölfar þess opinberaðist mjög glögglega að kynþáttafordómar lifa góðu lífi hér sem annas staðar. Skoðun 11. maí 2022 11:00
Sléttuvegur 11-13 Oddviti Flokks fólksins í Reykjavík, Kolbrún Baldursdóttir, sat nýverið í oddvitaspjalli á Bylgjunni þar sem hlustendur gátu hringt inn og spurt hana spjörunum úr. Ýmislegt má segja um viðtalið, bara eins og gengur og gerist í stjórnmálum, enda höfum við öll mismunandi skoðanir og eigum okkar málefni. Skoðun 11. maí 2022 10:46
Reykjavík – framsækin menningarborg Í nútímasamfélagi gegnir menningarstarfsemi lykilhlutverki. Hér á landi erum við svo lánsöm að eiga magnaða listamenn í öllum listgreinum sem skapa ómetanleg verðmæti fyrir samfélagið okkar. Listir og menning eru mótunarafl í samfélaginu og skapandi drifkraftur. Skoðun 11. maí 2022 10:31
Umbót svarar kallinu! - Skólafélagsráðgjafa í skólana okkar Þörfin: Á síðastliðnum áratugum hefur orðið breyting á okkar samfélagi á landsvísu. Félagsmótunarhlutverk skóla hefur aukist sem hefur aukið álag á kennara og starfsfólk grunnskóla til að sinna ekki bara kennslu heldur einnig velferð og vellíðan nemenda. Ein af grundvallar stefnumálum Umbótar fyrir kosningarnar er að ráða skólafélagsráðgjafa í skólana okkar. Skoðun 11. maí 2022 10:16
Neyðarkall frá móður jörð Loftslagsbreytingar eru stærsta áskorunin sem við stöndum frammi fyrir í dag og það er mikilvægt að stjórnvöld bregðist við vandamálum sem þeim fylgja sem fyrst. Skoðun 11. maí 2022 10:00
Reykjanesbær þarf að girða sig í brók Ásbrú eða gamli völlurinn eins og þetta svæði er oft kallað er svæði tækifæranna. Svæðið sem býður upp á atvinnu, menntun, hreyfingu og dásamlegar íbúðir í fjölbýli sem hægt og rólega er verið að gera upp. Skoðun 11. maí 2022 09:45
Hvers virði eru 13.200 mínútur? Mikið er rætt um bættar samgöngur í Garðabæ og bætta samgönguinnviði. Umferðarþungi milli Garðabæjar og Reykjavíkur er viðvarandi vandamál. Flestir íbúar Garðabæjar þurfa að sækja vinnu eða nám til Reykjavíkur. Sá tími sem tekur að aka í mikilli umferð til og frá vinnu skerðir lífsgæði fjölskyldna í bæjarfélaginu. Þessi mikli akstur er einnig mjög óumhverfisvænn og stækkar kolvetnisspor bæjarins til muna. Skoðun 11. maí 2022 09:31
Öryggisvistunarmálið í Reykjanesbæ - Bæjarfulltrúinn sem stóð með íbúunum Nauðsynlegt er að rifja upp öryggisvistunarmálið fyrir kosningar. Það sýnir hversu mikilvægt það er að við íbúarnir eigum öflugan bæjarfulltrúa sem gætir hagsmuna íbúanna þótt móti blási. Margrét Þórarinsdóttir var eini bæjarfulltrúinn sem barðist gegn því að öryggisvistun yrði staðsett í íbúabyggð. Barátta hennar skilaði árangri og fallið var frá málinu. Skoðun 11. maí 2022 09:16