Mætir með medalíu af ÓL í jarðarför föður síns Norski skíðastökkvarinn Johann Andre Forfang hugsaði sterkt til föður síns heitins eftir að hann vann til verðlauna á Vetrarólympíuleikunum í dag. Faðir hans, Hugo, lést nokkrum dögum fyrir leikana og var jarðarför hans frestað þar til eftir að sonur hans hafði keppt þar. Sport 16. febrúar 2026 22:00
Klúðraði gullinu, henti frá sér öllu lauslegu og strunsaði út í skóg Norski skíðamaðurinn Atle Lie McGrath klúðraði seinni svigferðinni sinni á Vetrarólympíuleikunun eftir að hafa verið með forystu eftir fyrri umferðina. Hann tók vonbrigðunum vægast sagt mjög illa. Sport 16. febrúar 2026 14:32
Jón Erik náði 25. sætinu með frábærri seinni ferð Íslenski alpagreinaskíðamaðurinn Jón Erik Sigurðsson stóð sig frábærlega í svigkeppni Vetrarólympíuleikanna þegar hann náði 25. sætinu. Þetta er besti árangur Íslendings á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina til þessa og sá besti í tvo áratugi í svigi. Sport 16. febrúar 2026 13:40
„Hann var stressaður og það var svo krúttlegt“ Fyrir flesta íþróttamenn væri það meira en nógu mikil spenna fyrir eitt kvöld að komast í fyrsta sinn í úrslit á Ólympíuleikum en kvöld úkraínsku skíðafimikonunnar Katerynu Kotsar var rétt að byrja. Sport 16. febrúar 2026 12:01
Hann vann fyrsta gull Brasilíu en af hverju keppir hann ekki fyrir Noreg? Söguleg Ólympíugullverðlaun Lucas Pinheiro Braathen fyrir Brasilíu hafa vakið athygli en þetta eru fyrstu verðlaun Brasilíu á Vetrarólympíuleikum. Hvers vegna keppir Lucas Pinheiro Braathen samt ekki fyrir Noreg? Sport 16. febrúar 2026 11:31
Jón Erik meðal þrjátíu efstu og fer fyrstur af stað á eftir Jón Erik Sigurðsson var meðal þrjátíu efstu keppenda í erfiðum aðstæðum í svigkeppni á Vetrarólympíuleikunum. Hann ræsir fyrstur í seinni ferðinni á eftir. Sport 16. febrúar 2026 11:22
Snoop Dogg gat ekki borgað fyrir hamborgarann á Ólympíuleikunum Bandaríski rapparinn Snoop Dogg fékk hjálp frá ítalskri fjölskyldu þegar greiðsla hans gekk ekki í gegn og greiðslukortinu hans var hafnað. Sport 16. febrúar 2026 10:32
Sögð þéna milljónir á því að sýna brjóstahaldarann á Ólympíuleikunum Hollenska skautakonan Jutta Leerdam fylgdi eftir gullverðlaunum í 1000 metra skautahlaupi með því að vinna silfurverðlaun í 500 metrunum í gær. Hún fer því heim af Ólympíuleikunum með tvenn verðlaun. Sport 16. febrúar 2026 09:02
Vann Ólympíuverðlaun með kúlu á fætinum Norska skíðakonan Thea Louise Stjernesund tryggði sér silfurverðlaun eftir gríðarlega spennu í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Sport 16. febrúar 2026 08:33
„Ég er ekki kærastan“ Bandaríska skíðaskotfimikonan Chloe Levins vildi koma einni staðreynd á hreint eftir að samfélagsmiðlar og fleiri fóru að halda því fram að hún væri kærastan sem norski skíðaskotfimimaðurinn Sturla Holm Lægreid hélt fram hjá. Sport 16. febrúar 2026 08:00
Typpið í lagi en skórnir of stórir Skíðastökkvari var útilokaður frá úrslitum á Vetrarólympíuleikunum í Mílano og Cortina vegna of stórra skóa aðeins nokkrum dögum eftir að „typpamálið“ skók leikana. Sport 16. febrúar 2026 07:33
Hvorki Danir né Grænlendingar með grænlenska fánann á leik Bandaríkjanna Tveir áhorfendur sem héldu á lofti grænlenskum fána þegar Bandaríkin kepptu við Danmörku í íshokkí karla á Vetrarólympíuleikunum i Mílanó og Cortina segjast hafa gert það til að sýna eyjunni og Danmörku stuðning frá Evrópu. Sport 16. febrúar 2026 06:30
Rústaði á sér fótunum en varð samt stjarna leikanna Ítalska skíðadrottningin Federica Brignone var ekki viss um að hún gæti skíðað aftur, eftir hræðilegt slys í keppni fyrir tíu mánuðum. Einhvern veginn tókst henni samt að keppa á Vetrarólympíuleikunum í ár og gott betur því hún er búin að vinna tvenn gullverðlaun. Sport 15. febrúar 2026 21:20
Elín í 43. sæti en Sonja fékk byltu Elín Elmarsdóttir Van Pelt hafnaði í 43. sæti af 76 keppendum í frumraun sinni í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum í Cortina. Stalla hennar Sonja Lí Kristinsdóttir féll við í brautinni og tókst því ekki að klára greinina. Sport 15. febrúar 2026 13:56
Fumlaus frumraun íslensku stelpnanna Þær Elín Elmarsdóttir Van Pelt og Sonja Lí Kristinsdóttir þreyttu frumraun sína á Vetrarólympíuleikum er þær renndu sér niður brekkurnar á Ítalíu í stórsvigi í morgun. Sport 15. febrúar 2026 10:54
„Besta tap ævi minnar“ Það er ekki oft sem að íþróttafólk fagnar eftir að hafa tapað en það gerðu Slóvakar svo sannarlega eftir 5-3 tap gegn Svíum í íshokkí karla á Vetrarólympíuleikunum í gær. Sport 15. febrúar 2026 09:01
Skandall í krullu og ljót orð látin falla „Þú mátt fokka þér,“ sagði hinn kanadíski Marc Kennedy þegar Svíar sökuðu hann um svindl í krullu á Vetrarólympíuleikunum í gær. Myndband virðist þó sýna að Svíarnir hafi mikið til síns máls. Sport 14. febrúar 2026 20:27
Fékk sig fullsaddan í Noregi og vann sögulegt gull fyrir Brasilíu Lucas Pinheiro Braathen vann fyrsta Ólympíugull Brasilíu í sögu Vetrarleika í dag. Hann fagnaði sigri í stórsvigi þar sem okkar maður Jón Erik Stefánsson var á meðal keppenda. Sport 14. febrúar 2026 15:31
Hlé á keppni eftir að Jón Erik þeyttist út í vegg Jón Erik Sigurðsson fékk væna byltu í síðari ferð dagsins í stórsvigi á Vetrarólympíuleikunum. Hann komst blessunarlega á fætur eftir fallið. Sport 14. febrúar 2026 13:52
Hjörtu Svía brotin: „NEI, NEI, NEI“ Allt logar í Svíþjóð eftir að lið landsins í boðgöngu í skíðagöngu kvenna á Vetrarólympíuleikunum missti af gulli. Þetta var „martröð“ og hjörtu eru brotin samkvæmt liðskonu sem féll tvisvar í brautinni. Sport 14. febrúar 2026 13:01
Ólympíufarar notuðu yfir tvo smokka á dag Tíu þúsund smokkar í Ólympíuþorpinu í Cortina á Ítalíu kláruðust á mettíma. Karlkyns keppendur notuðu að meðaltali fleiri en tvo smokka á dag á þremur dögum. Sport 14. febrúar 2026 11:15
Fínasta fyrri ferð Jóns Eriks Jón Erik Sigurðsson mætti til leiks á Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu í morgun er hann tók þátt í risasvigi í Stelvio brekkunni í Ölpunum. Sport 14. febrúar 2026 10:30
Brottvísun af ÓL stendur: Áfrýjun Úkraínumannsins vísað frá Alþjóðaíþróttadómstóllinn hefur vísað frá áfrýjun Úkraínumannsins Vladyslav Heraskevych eftir að honum hafði verið vísað úr keppni á Vetrarólympíuleikunum. Ákvörðun um brottvísun hans af leikunum stendur því. Sport 13. febrúar 2026 17:25
Smokkarnir kláruðust í Ólympíuþorpinu á þremur dögum Það átti að vera nóg af smokkum í boði í Ólympíuþorpi keppenda í Cortina á Vetrarólympíuleikunum en þeir voru ekki lengi að klárast. Sport 13. febrúar 2026 16:30
Dagur gaf vel í eftir rólega byrjun Dagur Benediktsson lauk 10 kílómetra skíðagöngu með frjálsri aðferð á 24 mínútum og 18,1 sekúndu og var í 69. sæti. Norðmaðurinn Johannes Klæbo vann gullið eftir mikla samkeppni. Sport 13. febrúar 2026 11:58
Sýndi bæði gullið og áverkana á mjöðminni Svissneska skíðakonan Mathilde Gremaud tryggði sér Ólympíugull í skíðafimi kvenna en henni tókst að vinna gullið þrátt fyrir fall á síðustu æfingu fyrir úrslitin. Sport 13. febrúar 2026 10:30
Lá hreyfingarlaus eftir fall en vann síðan Ólympíugullið Hin sautján ára gamla Choi Ga-on kom í veg fyrir að bandaríska goðsögnin Chloe Kim skráði sig á spjöld sögunnar í snjóbrettaheiminum þegar sú suðurkóreska hristi af sér byltu í byrjun og vann gull í hálfpípu á Vetrarólympíuleikunum í Mílanó og Cortina. Sport 13. febrúar 2026 09:32
Þjálfari rekinn heim af Ólympíuleikunum fyrir fyllerí Finnski skíðastökkþjálfarinn Igor Medved þarf að yfirgefa Ólympíuleikana í Mílanó og Cortina eftir það sem lýst er sem „áfengistengdum vandamálum“. Sport 13. febrúar 2026 09:02
Ólympíugull og bónorð á sömu Ólympíuleikum Þetta verða heldur betur eftirminnilegir Ólympíuleikar fyrir bandarísku alpaskíðakonuna Breezy Johnson. Sport 13. febrúar 2026 07:31
Áfrýjar brottvísun af Ólympíuleikunum til Íþróttadómstólsins Úkraínumaðurinn Vladyslav Heraskevych hefur áfrýjað til Alþjóðaíþróttadómstólsins (CAS) eftir að honum var vísað úr keppni á magasleða á Ólympíuleikunum á fimmtudag. Sport 13. febrúar 2026 06:20