Birtist í Fréttablaðinu

Eigandi Norðuráls horfir til Rio Tinto
Svissneska fyrirtækið Glencore, einn stærstu eigenda Century Aluminum sem svo aftur á Norðurál, hefur áhuga á því að kaupa eignir Rio Tinto á Íslandi, í Svíþjóð og Hollandi fyrir allt að 350 milljónir dala.

Hjól þurfa að vera læst
Reiðhjól sem er stolið utandyra þarf að hafa verið læst til að bætur fáist frá tryggingafélögum.

Draga úr þátttöku í kjarnorkusamningi
Stjórnvöld í Íran hættu í gær að fylgja skilmálum JCPOA-kjarnorkusamningsins.

Mitsotakis sigurvegari í Grikklandi
Breskir þingmenn úr bæði Íhaldsflokki og Verkamannaflokki sögðust í gær vera að leita leiða til þess að koma í veg fyrir að næsti forsætisráðherra beiti sér fyrir samningslausri útgöngu úr Evrópusambandinu, þvert gegn vilja þingsins.

Kannanir
Ég hef lengi reynt að ganga í takt við þjóð mína enda er ég pólitískt rétthugsandi gamall maður. Enginn vill vera úthrópaður af feisbúkk og kommentakerfinu sem beiskt gamalmenni sem allt hefur á hornum sér.

Skítleg framkoma
Árið er 1946. Heimsstyrjöldinni síðari er nýlokið. Um Evrópu flakka vegalaus börn sem lifðu af Helförina. Foreldrar þeirra eru látnir eða þeirra saknað.

Margir teknir í óleyfi í utanlandsferðum
Mjög algengt er að Vinnumálastofnun grípi fólk sem þiggur atvinnuleysisbætur í utanlandsferðum í leyfisleysi. Ýmis úrræði til eftirlits. Margir atvinnuleysisbótaþegar vita ekki að tilkynna þurfi utanlandsferð til stofnunarinnar.

Heimsmet í fjölda kvenna í lögreglunni
Á lögreglustöðinni á Vínlandsleið starfa fleiri konur en karlar og er það líklega eini staðurinn í heiminum þar sem hlutfall kvenna er hærra en karla í lögreglunni. Endurnýjun starfsfólks og aukin aðsókn kvenna sögð ástæðan.

VesturVerk segir kortið sett fram til að tefja framkvæmdir
Talsmaður VesturVerks segir að kæra byggð á nýju landamerkjakorti sé sett fram til að tefja framkvæmdir við Hvalárvirkjun. Þessu hafnar teiknarinn. Málið snýst um túlkun á skjali frá 19. öld.

Samkomulag í Súdan
Herforingjastjórnin sem hefur verið við völd í Súdan frá því Omar al-Bashir var steypt af stóli í apríl síðastliðnum komst í gær að samkomulagi við stjórnarandstöðuna í landinu um að fylkingarnar tvær muni deila völdum.

Að selja landið
Við lifum á tímum þar sem það blasir við hverjum sem sjá vill að mannkynið hefur gengið illa um náttúruna. Í græðgislegri þörf sinni fyrir velmegun hefur það mengað umhverfi sitt, jafnvel svo mjög að lífi á jörðinni stafar hætta af.

Skógarbændur segja geitur vera skaðræðisskepnur
"Örfáir landeigendur á Héraði hafa verið að fá sér geitur og hafa undirritaðir átt í vök að verjast undan ágangi þeirra,“ segir í bréfi tveggja skógarbænda til Fljótsdalshrepps.

Erfið reynsla býr til samstöðu
Vestmannaeyjar fagna hundrað ára afmæli kaupstaðarréttinda með veglegum hátíðahöldum. Íris Róbertsdóttir er fyrst kvenna til að gegna stöðu bæjarstjóra í bænum. Hún er fædd í Eyjum og var rúmlega ársgömul í gosinu.

Hóta kyrrsetningu á bresku skipi á móti
Stjórnvöld í Íran foxill vegna kyrrsetningar olíuflutningaskips við Gíbraltar. Ráðgjafi æðstaklerks hótar kyrrsetningu bresks skips á móti. Segja að aðgerðin hafi verið sjórán.

Apple ákveður að skipta um lyklaborð á MacBook
Bandaríski tæknirisinn Apple ætlar sér að skipta út lyklaborðshönnuninni sem finna hefur mátt á MacBook-fartölvum frá árinu 2015.

Verður ekki vísað úr landi
Mál Sarwary-feðganna og Safari-fjölskyldunnar falla undir reglugerðina, sem hefur þegar tekið gildi, að sögn lögmanns þeirra, Magnúsar D. Norðdahl.

Heim í heimahagana
Frank Lampard er tekinn við Chelsea þar sem hann gerði garðinn frægan á árum áður. Hann er þó ekki fyrsti stjórinn til að taka við liðinu sem gerði hann að stjörnu.

Afturelding vill selja nafnréttinn
Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur samþykkt með þremur atkvæðum að fela Haraldi Sverrissyni bæjarstjóra að ræða við fulltrúa Aftureldingar um fyrirkomulag merkinga á íþróttamannvirkjum og að niðurstaðan verði kynnt bæjarráði. Þetta kemur fram í fundargerð bæjarráðs í gær.

Sjóðurinn snuðaður og ráðuneyti á flótta
Brynja, hússjóður Öryrkjabandalags Íslands, hefur í fjóra mánuði beðið eftir svörum frá félagsmálaráðherra vegna reglugerðarbreytinga sem gerðar voru í fyrra. Sjóðurinn telur á sig hallað.

Á bremsunni
Spurningin er ekki hvort heldur aðeins hversu mikill efnahagssamdrátturinn verður. Höggið við fall WOW air, ásamt vandræðum Icelandair með MAX-vélarnar, þýðir að ferðamönnum mun að líkindum fækka um liðlega 20 prósent.

Breyta á aðkomu að Bessastöðum
Breytingar á deiliskipulagi Bessastaða eru í farvatninu með það að markmiði að bæta öryggi og aðgengi ferðamanna og annarra gesta Bessastaða.

Gervigreindir stjórnmálaleiðtogar
Eitt af því sem allir í heiminum virðast hafa miklar áhyggjur af um þessar mundir er hver verði áhrifin af aukinni sjálfvirknivæðingu næstu ára og áratuga. Ýmis störf sem mannshönd og hugur hafa leyst munu í auknum mæli verða sett inn í tölvuforskriftir.

Eðlilegt að kosið verði um Elliðaárdalinn
Meirihluti borgarráðs Reykjavíkur samþykkti nýtt deiliskipulag fyrir Stekkjarbakka, í nágrenni Elliðaárdalsins, á fundi sínum í gær. Málið er mjög umdeilt og fundaði borgarráð tveimur tímum lengur í gær en gert var ráð fyrir.

Vilja búa til ísgöng í stað hella sem eru að bráðna í Langjökli
Fyrirtækið Mountaineers of Iceland fékk leyfi frá Bláskógabyggð til að grafa í Suðurjökul Langjökuls til að útbúa þar eitt hundrað metra ísgöng. Herbert Hauksson, stofnandi fyrirtækisins, segir náttúrulega íshella í jökulsporðinu vera að bráðna. Bjóða þurfi ferðamönnum nýjan möguleika á breyttum tímum.

Útgáfa tekjublaða sumarsins í uppnámi
Töluverð óvissa ríkir um hvort hægt verður að gefa út tekjublöð í sumar en enn er ekki vitað hvaða upplýsingar munu koma fram í álagningarskrám. Mikið er í húfi fyrir þá fjölmiðla sem gefa út, bæði hvað varðar sölu og auglýsýsingar.

Ekki skemma miðbæinn
Framkvæmdir í miðborginni hafa leitt til þess að hún er að missa sjarmann. Áður sást víða yfir sundin en núna skyggja byggingar á útsýni. Úr borginni flýja rekstraraðilar og margir forðast að koma í bæinn nema til að sækja skemmtanalífið.

Opnir fundir um þjóðgarð
Þverpólitísk nefnd sem vinnur að tillögum um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu hefur nú boðað til opinna funda. Sveitarfélög víða um land hafa almennt lagst gegn þessum áformum.

Horfa þarf til Hvassahraunsmöguleika
Taka þarf mið af mögulegri uppbyggingu nýs flugvallar í Hvassahrauni í mati á umhverfisáhrifum stækkunar Keflavíkurflugvallar. Þetta kemur fram í ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsáætlun fyrir verkefnið sem birt var á vef stofnunarinnar í gær.

Milljónatuga lekatjón í sundlauginni
Lekatjón á þaki sundlaugar Flateyrar er metið á 53,3 milljónir króna.

Grunur um skipulagðan hjólaþjófnað
Undanfarna mánuði hefur reiðhjólaþjófnaður færst í vöxt og grunur leikur á að um skipulagða glæpastarfsemi sé að ræða. Klippt er á lása og brotist inn í reiðhjólageymslur til að stela hjólunum.