Flug
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 173 ›
Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Fjórum brottförum frá Reykjavíkurflugvelli hefur verið aflýst í dag vegna veðurs. Stefnt er að því að fljúga seinnipartinn. Innlent 31.10.2025 11:46
Töldu hættu stafa af einkaþotufyrirtækinu sem var svipt starfsleyfi Flugþjónustufyrirtækið ACE FBO sem var svipt starfsleyfi sínu á Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvelli síðasta vetur tilkynnti ekki um öryggisatvik sem því var skylt og braut reglur ítrekað. Áhættumat sem var unnið um starfsemina var sagt staðfesta að hún stæðist ekki kröfur um flugöryggi. Viðskipti innlent 31.10.2025 08:03
Fundi slitið án árangurs og nýr ekki boðaður Fundi samninganefnda Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara var slitið á þriðja tímanum í gær án árangurs. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Innlent 30.10.2025 10:03
Hóflega bjartsýnn á viðræður dagsins Arnar Hjálmsson formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra segist hóflega bjartsýnn á að viðræður dagsins hjá ríkissáttasemjara gangi vel. Samninganefndir FÍF og Samtaka atvinnulífsins ganga inn á fund klukkan tíu. Innlent 29.10.2025 09:56
Biðu í fjóra tíma úti á braut og aðra fjóra við farangursbeltin Kona sem var á meðal á annað þúsund farþega sem biðu í nokkrar klukkustundir í flugvél á Keflavíkurflugvelli í morgun áður en fluginu var aflýst er ósátt við upplýsingagjöf Icelandair. Fjögurra tíma bið við farangursbeltin áður en tilkynnt var um þrjúleytið að engar töskur bærust hafi verið sérstaklega svekkjandi. Félagið harmar biðina. Innlent 28.10.2025 16:38
Sérlausn fyrir fluglosun virðist ekki hafa verið auglýst Sérfræðingar í loftslagsmálum setja spurningarmerki við hvernig íslensk stjórnvöld stóðu að upplýsingagjöf um sérlausn sem þau fengu vegna hertra losunarreglna. Lausnin er opin öllum flugfélögum sem fljúga um Ísland en hún virðist ekki hafa verið auglýst fyrir erlend félög að neinu marki. Viðskipti innlent 28.10.2025 15:02
Flugmaðurinn sem fórst millilenti oft í Reykjavík Flugmaður litlu Cessna-flugvélarinnar, sem fórst við Nuuk á laugardag, var reyndur breskur ferjuflugmaður. Hann hugðist millilenda í Reykjavík á sunnudagskvöld og fljúga áfram til Skotlands á mánudag. Innlent 28.10.2025 12:33
Fjölmargir farþegar fastir í flugvélum á Keflavíkurflugvelli Mikil röskun hefur orðið á flugferðum frá landinu í morgun vegna snjókomu. Mikill fjöldi farþega er löngu kominn um borð í flugvélina og bíður tímunum saman eftir brottför. Flugrekstrarstjóri segir aðstæður afar krefjandi á Keflavíkurflugvelli. Unnið sé að því að koma vélum í loftið en öryggi sé númer eitt, tvö og þrjú. Búið er að aflýsa um ellefu flugum Icelandair í dag. Innlent 28.10.2025 11:11
„Vonandi klárast þetta á morgun“ Fundi flugumferðastjóra og Samtaka atvinnulífsins var slitið á fimmta tímanum í dag. Nýr fundur hefur verið boðaður á morgun og í samtali við fréttastofu sagðist Sigríður Margrét Oddsdóttir, vonast til að viðræður deiluaðila klárist á morgun. Innlent 27.10.2025 17:00
Hafa fundið Cessna-vélina Björgunarlið á Grænlandi hefur fundið Cessna-vélina sem leitað hefur verið að nærri Nuuk síðan á laugardag. Einn var um borð og komst hann ekki lífs af. Erlent 27.10.2025 12:48
Leit að flugvélinni horfnu engan árangur borið Umfangsmikilli leit að flugvél sem hvarf skammt utan Nuuk á Grænlandi hefur aftur verið frestað en hún hefur enn engan árangur borið. Leitin mun halda áfram á morgun, mánudag. Einn var um borð. Erlent 26.10.2025 21:20
Leita Cessnu sem hvarf nærri Nuuk Umfangsmikilli leit að eins hreyfils flugvél sem hvarf nærri Nuuk á Grænlandi var frestað vegna veðurs í gær. Leitin á að halda áfram í dag en flugvélin, Cessna frá Kanada, hvarf af ratsjám norður af Nuuk seinni partinn í gær. Erlent 26.10.2025 08:56
Fólk hafi dreymt um að eignast flugstjóradress Svokölluð pop-up-sala fór fram í Mosfellsbæ í dag á ýmsum varningi tengdum flugfélaginu Play. Innlent 25.10.2025 23:35
Stuttur fundur og hittast næst á mánudag Fundi flugumferðastjóra og Samtaka atvinnulífsins var slitið á hádegi í dag og næsti fundur boðaður á mánudag. Engar frekari verkfallsaðgerðir eru áætlaðar að svo stöddu segir formaður Félags flugumferðastjóra. Innlent 24.10.2025 18:21
Tekjur Isavia jukust um tæpa 1,2 milljarða króna milli ára Rekstrarafkoma af samstæðu Isavia fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) á fyrri helmingi ársins 2025 var jákvæð um 4.245 milljónir króna samanborið við 3.213 milljónir króna fyrir sama tímabil á síðasta ári. Það er betri niðurstaða en upphaflegar áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir og nemur aukningin um 1.032 milljónum króna. Viðskipti innlent 24.10.2025 12:34
Leggja til breytingar við Reykjavíkurflugvöll eftir að lá við árekstri kennsluvéla Meta ætti hvort ástæða sé til þess að breyta reglum um loftrýmið í kringum Reykjavíkurflugvöll eftir alvarlegt flugatvik þar sem lá við árekstri tveggja kennsluflugvéla yfir Kópavogi í fyrra. Þetta er tillaga rannsóknarnefndar samgönguslysa eftir rannsókn hennar á atvikinu. Innlent 24.10.2025 11:48
Flugumferðarstjórar aflýsa vinnustöðvunum á morgun og laugardag Flugumferðarstjórar hafa aflýst fyrirhuguðum vinnustöðvunum á morgun og laugardag. Fundi þeirra með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins var slitið um klukkan 22:20 í kvöld og nýr boðaður í fyrramálið. Innlent 23.10.2025 22:33
Óttaðist um líf sitt í Delta-flugi sem nauðlenti á Íslandi Lohanny Santos, farþegi í flugi Delta á leið frá Dublin til New York, á miðvikudag, lýsir því á samfélagsmiðlum að hafa óttast um líf sitt þegar annar hreyfill vélarinnar hætti að virka á flugi þeirra yfir Atlantshafinu. Ákveðið var að nauðlenda á Íslandi. Fjallað var um það í gær að hættustigi hafi verið lýst yfir á Keflavíkurflugvelli vegna nauðlendingarinnar. Lífið 23.10.2025 21:36
Fresta fundi til tíu í fyrramálið Búið er að fresta fundi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasemjara þar til klukkan tíu í fyrramálið. Arnar Hjálmsson, formaður Félags íslenskra flugumferðarstjóra, segir umræðum hafa verið frestað að frumkvæði sáttasemjara, viðræðum miði í rétta átt „í hænufetum“. Innlent 22.10.2025 18:03
Hagnaður minnkar um 1,5 milljarða milli ára Hagnaður Icelandair eftir skatta nam sjö milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi, samanborið við 8,5 milljarða hagnað á sama tímabili í fyrra. Félagið áætlar að afkoma fyrir vaxtagreiðslur og skatta árið 2025 verði neikvæð um 1,2 til 2,4 milljarða króna. Viðskipti innlent 22.10.2025 16:14
Aflýsa verkfalli öðru sinni Flugumferðarstjórar hafa aflýst verkstöðvun sem átti að hefjast á morgun. Tugir flugferða til og frá Keflavíkurflugvelli voru undir. Innlent 22.10.2025 14:56
Segir sorglega illa hafa verið haldið á hagsmunum flugsins Íslensk stjórnvöld hafa haldið illa á hagsmunum flugsins á Íslandi og undirgengist ósanngjarnt og íþyngjandi kerfi evrópskra umhverfissskatta án þess að skoða nægilega afleiðingarnar fyrir íslenskan flugrekstur. Icelandair þurfti í fyrra að greiða 2,5 milljarða króna í kolefnisgjöld. Innlent 22.10.2025 14:40
„Vonbrigði hvað kom lítið út úr fundinum í gær“ Formaður félags flugumferðastjóri segir vonbrigði hve lítið hafi komið út úr fundi félagsins við fulltrúa samtaka atvinnulífsins hjá ríkissáttasamjara í gær. Rúmur sólarhringur er þar til næstu verkfallsaðgerðir flugumferðastjóra hefjast. Innlent 22.10.2025 11:53
Fleiri hundruð kröfur og líklegt að óeðlilegum greiðslum verði rift Hundruðum krafna hefur verið lýst í þrotabú flugfélagsins Play sem varð gjaldþrota í lok september. Launakröfur starfsfólks liggja enn ekki fyrir. Skiptastjóri telur líklegt að þrotabúið sæki með riftun óeðlilegar greiðslur félagsins skömmu fyrir gjaldþrot. Viðskipti innlent 22.10.2025 11:22
Klórar sér í kollinum yfir kvennaverkfallinu Fyrrverandi þingmaður segist ekkert skilja í því að konur eigi að fá auka frídag á föstudag þegar kvennaverkfall er boðað á fimmtíu ára afmæli þess fyrsta. Hún segist ekki myndu vilja reka fyrirtæki á Íslandi í dag. Innlent 22.10.2025 10:48
Hagsmunir flugrekstrar á Íslandi eru miklir Eitt meginverkefni stjórnvalda á hverjum tíma er að gæta hagsmuna sinnar þjóðar, ekki hvað síst til að tryggja samkeppnishæfni þeirra fyrirtækja sem standa í alþjóðlegri samkeppni. Skoðun 22.10.2025 08:47
Lýstu yfir hættustigi vegna flugvélar í vanda Rauðu hættustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli í gær og voru viðbragðsaðilar í viðbragðsstöðu vegna bilunar í hreyfli flugvélar með ríflega 220 farþega innanborðs sem fékk heimild til lendingar í Keflavík. Slökkviliði barst tilkynning frá Neyðarlínunni á fimmta tímanum síðdegis í gær og voru sjúkra- og dælubílar frá Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu í viðbragðsstöðu. Boðið var afturkallað þegar vélin lenti heilu og höldnu. Innlent 22.10.2025 07:54
Olíuboranir að hefjast beint norður af Íslandi Bandarískt olíuleitarfélag með höfuðstöðvar í Texas hefur hafið olíuleit við Scoresbysund á Austur-Grænlandi. Líklegt er að þjónustu við olíuleitina verði að einhverju leyti sinnt frá Íslandi og er flugfélagið Norlandair á Akureyri byrjað að fljúga þangað með olíuleitarmenn. Innlent 21.10.2025 19:59
Fundi frestað þar til á morgun Fundi deiluaðila í kjaradeilu Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins hefur verið frestað til klukkan ellefu á morgun. Ríkissáttasemjari frestaði fundi nú klukkan sex í kvöld. Innlent 21.10.2025 18:10
Flugvél snúið til Keflavíkur vegna bilunar Samhæfingarmiðstöð almannavarna var virkjuð á fimmta tímanum vegna flugvélar sem þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli vegna tæknibilunar. Flugvélin lenti um tíu mínútur í fimm og engin slys urðu á fólki. Innlent 21.10.2025 17:01