Tímamót

Silja Rós og Magnús eiga von á dreng
Leikkonan, handritshöfundurinn og söngkonan Silja Rós Ragnarsdóttir og unnusti hennar, Magnús Orri Dagsson tónskáld, eiga von á dreng í lok desember. Frá þessu greina þau í sameiginlegri færslu á Instagram.

Stelur af Sigga Bond: „Þá ætla ég að tala við Hannes Hólmstein“
Kristján Freyr Halldórsson skrifaði í dag afmælisgrein til heiðurs Dr. Gunna en textinn er nánast allur stolinn úr afmælisgrein sem Sigurður Bond skrifaði um Auðunn Blöndal. Kristján segist hafa verið innblásinn af Sigurði og muni leita til Hannesar Hólmsteins verði hann sakaður um ritstuld.

Til þeirra sem fagna Doktornum!
Síðustu misseri hef ég velt fyrir mér hversu mikil áhrif einn einstaklingur þarf að hafa til þess að ártal sé miðað við fæðingu þess einstaklings, líkt og í tilfelli Jesú Krists.

„Hálfur áratugur með þér my love“
Tónlistarkonan Elísabet Ormslev og Sindri Þór Kárason, hljóðvinnslumaður hjá Saga Film, fögnuðu hálfum áratug saman á dögunum. Frá þessu greinir Elísabet í færslu á Instagram.

„Ég er tilbúin að vera þetta ofurpar sem okkur er ætlað að verða“
Heiðdís Rós Reynisdóttir, athafnakona og förðunarfræðingur, og kærasti hennar Laameri, bílasali, fögnuðu eins árs sambandsafmæli sínu um helgina. Í tilefni tímamótanna samdi Heiðdís Rós lag sem hún tileinkaði kærastanum.

Trúlofuðu sig í laxveiði
Inga Lind Karlsdóttir, framleiðandi og einn eigandi Skot Productions, og Sigurður Viðarsson, framkvæmdastjóri Aparta á Íslandi, eru trúlofuð eftir rúmlega árs samband.

Stjörnulífið: „Mesta milf Íslands“
Stórafmæli, tónleikar og árshátíðarferðir voru áberandi í vikunni sem leið. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, fagnaði sextugsafmæli sínu í Hlöðunni á Álftanesi með glæsilegri veislu þar sem vinkonur hennar og þingkonurnar Kristrún Frostadóttir og Inga Sæland komu henni á óvart og tóku lagið The Best með Tinu Turner.

Ragnhildur tekur við Kveik
Ragnhildur Þrastardóttir, fréttastjóri á Heimildinni, hefur verið ráðin ritstjóri Kveiks og mun hefja störf um miðjan október. Hún segist þó munu sakna Heimildarinnar.

Páskaungi á leiðinni hjá Kristínu og Sverri
Tónlistarmaðurinn Sverrir Bergmann og lögfræðingurinn Kristín Eva Geirsdóttir eiga von á sínu þriðja barni. Þau greina frá gleðitíðindunum á Facebook.

Kalla ráðherra og forstjóra Samgöngustofu fyrir samgöngunefnd
Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokks, situr í samgöngunefnd og á von á því að nefndin muni strax í næstu viku, að lokinni kjördæmaviku, kalla ráðherra og forstjóra undirstofnanna á fund sinn. Hann segir þrotið hafa komið sér í opna skjöldu. Hann fór yfir gjaldþrot Play í Bítinu á Bylgjunni.

Leik lokið hjá Play
Play varð þriðja íslenska lágfargjaldaflugfélagið sem hverfur af sviðinu á rúmum áratug. Líkt og þegar forveri þess Wow air fór í þrot fyrir sex árum eru fórnarlömbin hundruð starfsmanna sem missa vinnuna og þúsundir farþega sem eru standaglópar eða sitja eftir með sárt ennið.

Fanney og Teitur orðin þriggja barna foreldrar
Fanney Ingvarsdóttir, stafrænn markarðssérfræðingur hjá Bioeffect, og Teitur Páll Reynisson, viðskiptastjóri hjá Landsbankanum, eru orðin þriggja barna foreldrar. Hjónin eignuðust stúlku síðastliðinn sunnudag.

Nicole Kidman og Keith Urban hvort í sína átt
Ástralska leikkonan Nicole Kidman og ástralski tónlistarmaðurinn Keith Urban eru skilin eftir að hafa verið gift í nítján ár.

Ung, upprennandi og sjóðheit stjarna á lausu
Hinn ungi og sjarmerandi leikari Mikael Emil Kaaber er nýlega orðinn einhleypur. Leiðir hans og Svölu Davíðsdóttur skildu í vor eftir fjögurra ára samband. Á sama tíma hefur ferill Mikaels verið á hraðri uppleið, því hann hefur fengið hvert hlutverkið á fætur öðru – nú síðast burðarhlutverk í söngleiknum Moulin Rouge.

Egill og Thelma eiga von á sínu öðru barni
Útvarpsmaðurinn Egill Ploder Ottósson og sambýliskona hans Thelma Gunnarsdóttir, sérfræðingur í sjálfbærni hjá Embla Medical, eiga von á sínu öðru barni í byrjun næsta árs. Parið greinir frá gleðitíðindunum í færslu á samfélagsmiðlum.

Ásmundur Einar segir skilið við stjórnmálin
Ásmundur Einar Daðason, ritari Framsóknarflokksins og fyrrverandi ráðherra, hefur látið af embætti ritara Framsóknar. Hann segir skilið við stjórnmálin og snýr sér að öðrum verkefnum.

Ástfangin á ný
Þorsteinn Einarsson, söngvari og gítarleikari í Hjálmum, og tónlistarkonan Sigríður Eyþórsdóttir eru byrjuð aftur saman. Þau kynntust fyrst árið 2004, eignuðust tvö börn saman og giftu sig en leiðir skildu fyrir mörgum árum síðan.

Opnar stað í anda Kaffi Vest í Fossvoginum
Parið Auðunn Blöndal og Rakel Þormarsdóttir hyggjast opna veitingastað á neðri hæð verslunarkjarnans Grímsbæjar. Hjónin hafa verið með hugmyndina í maganum lengi en þurft að bíða eftir réttu staðsetningunni. Hvorki er um sportbar né skemmtistað að ræða heldur notalegan hverfisstað.

Leiðir skilja hjá Svala og Jóhönnu
Fjölmiðlamaðurinn Sigvaldi Kaldalóns, eða Svali eins og hann er kallaður, og Jóhanna Katrín Guðnadóttir hárgreiðslukona eru farin í sundur eftir tuttugu og fjögurra ár samband. Mbl.is greindi fyrst frá.

Stella og Davíð sjóðheitt nýtt par
Listræni stjórnandinn, framleiðandinn og danshöfundurinn Stella Rósenkranz og Davíð Örn Hákonarson, stjörnukokkur og meðeigandi veitingastaðarins Skreið, eru sjóðheitt nýtt par og ástfangin upp fyrir haus.

Baywatch aftur á skjáinn
Bandaríska sjónvarpsstöðin Fox hyggst framleiða glænýja seríu af Baywatch þáttunum sem gerðu allt vitlaust á tíunda áratugnum og voru langvinsælustu þættir í heimi. Fox hyggst framleiða tólf glænýja þætti með glænýju fólki.

„Það jafnast enginn á við þig“
Sveindís Jane Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu og leikmaður bandaríska félagsins Angel City, sendi kærasta sínum Rob Holding, varnarmanni Colorado Rapids, stutta en afar einlæga kveðju á Instagram í tilefni 30 ára afmælis hans þann 20. september síðastliðinn.

Stjörnulífið: Dætur Jóns Ásgeirs og Geirs H. Haarde giftu sig
Vikan sem leið var heldur betur viðburðarík hjá stjörnum landsins. Brúðkaup í Sitges og á Ítalíu, stórtónleikar í Laugardalshöll og Bakgarðshlaupið var meðal þess sem stóð mest upp úr. Þá fóru glæsilegustu fimmtugu konur landsins í vinkonuferð til Sitges í leit að senjóritukjólum á meðan Rúrik Gíslason fór í sitt árlega Októberfest-partý hjá ofurfyrirsætunni Heidi Klum í Þýskalandi.

Lítill rappari á leiðinni
Rapparinn og Breiðhyltingurinn Birgir Hákon og kærasta hans Sigríður Birta eiga von á sínu fyrsta barni. Birgir Hákon hefur komið víða við í íslensku tónlistarlífi og fagnaði á dögunum sjö ára edrúmennsku.

Fátt skemmtilegra en að klappa Einari á afturendann á almannafæri
„Við reynum að daðra mikið við hvort annað og hlæjum mikið saman. Mér finnst til dæmis fátt skemmtilegra en að klappa Einari á afturendann á almannafæri eins og í Ikea eða Smáralindinni. Þá verður hann alveg extra vandræðanlegur sem gleður mig mikið,“ segir Milla Ósk Magnúsdóttir, spurð hvernig hún viðhaldi neistanum í sambandinu.

Innviðaráðherra á von á barni
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra á von á barni með norskri barnsmóður sinni en fyrir eiga þau þriggja ára barn saman.

Búið spil hjá Burton og Bellucci
Bandaríski leikstjórinn Tim Burton og ítalska leikkonan Monica Bellucci eru hætt saman eftir tveggja ára samband. Stutt er síðan hún lék í kvikmynd hans, Beetlejuice Beetlejuice.

Hlaupadrottning eignaðist dreng með hraði
Ultra maraþon hlauparinn og næringarfræðingurinn Elísabet Margeirsdóttir og útivistarkappinn Páll Ólafsson eignuðust dreng þann 9. september síðastliðinn. Parið deilir gleðitíðindunum í sameiginlegri færslu á Instagram.

Emilíana Torrini fann ástina
Söngkonan Emilíana Torrini og Ellert Kristófer Schram, eigandi og framkvæmdastjóri EKS Verk ehf., eru eitt nýjasta og jafnframt huggulegasta par landsins, að því herma heimildir fréttastofu.

Hörður og Svala endurvekja Macland
Hörður Ágústsson, stofnandi Macland, segir fyrirtækið komið aftur í sínar hendur þremur árum eftir að hann hætti öllum afskiptum af því. „Nú byrjum við aftur, gamalt vín á nýjum belg. Í hvaða formi og hvenær er enn óljóst,“ segir hann jafnframt.