Reykjavík
166 167 168 169 170 171 172 173 174 … 334 ›
Maður handtekinn vegna líkamsárásar í gærkvöldi og nokkuð um þjófnað Lögreglan handtók mann í gærkvöldi í kjölfar tilkynningar um líkamsárás í heimahúsi í hverfi 104 í Reykjavík. Einnig var lögreglan kölluð til nokkurra verslanna í Breiðholti vegna þjófnaða og áreitis. Þá var lögreglan kölluð til í Hafnarfirði vegna slagsmála á skemmtistað en þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Innlent 7.7.2022 06:38
Iceland Airwaves og SAHARA Festival í samstarf Iceland Airwaves tónlistarhátíð og SAHARA Festival markaðsráðstefnan hafa farið í samstarf og halda eina sameiginlega hátíð og mun hún fara fram í nóvember. Lífið 6.7.2022 14:30
Garden Party: Mezzoforte, búbblur og Bríet Þann 13. ágúst fer fjölskylduhátíðin Garden partý fram í Laugardalnum en hátíðin er hugsuð sem lítil bæjarhátíð fyrir Reykjavík. Tónlistarmennirnir Bríet, Frikki Dór, Birnir, Reykjavíkurdætur, Hipsumhaps og Mezzoforte munu koma fram og skemmta lýðnum. Lífið 6.7.2022 09:10
Eldur í hraðbanka á Bíldshöfða í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt en frá klukkan 17:00 til 05:00 í morgun hefur lögreglan sinnt 64 málum. Innlent 6.7.2022 06:32
Hægt að horfa á Stelpurnar okkar á Ingólfstorgi Allir leikir íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta á EM í Englandi, sem er handan við hornið, verða sýndir á risaskjá og í topp hljóðgæðum á Ingólfstorgi. Fótbolti 5.7.2022 18:44
Næturstrætó snýr aftur um helgina Næturstrætó úr miðbæ Reykjavíkur snýr aftur aðfaranótt laugardags 9. júlí eftir um tveggja ára hlé. Innlent 5.7.2022 16:18
Starfsmaður stal 1,7 milljón króna af Bónus Kona var nýverið dæmd til sextíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa, yfir tæplega fjögurra ára tímabil, stolið um 1,7 milljón króna af vinnuveitanda sínum Högum hf. en hún starfaði í Bónus. Innlent 5.7.2022 14:55
Hundrað bókanir eftir Michelin-stjörnuna Stofnandi Óx segir það mikinn heiður að hljóta Michelin-stjörnu eftir áralanga þróun og vinnu með veitingastaðinn. Tveir íslenskir staðir státa nú af stjörnunni eftirsóttu. Innlent 5.7.2022 12:07
Örn Steinsen er látinn Örn Steinsen, fyrrverandi framkvæmdastjóri KR, er látinn, 82 ára að aldri. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. júlí síðastliðinn. Sport 5.7.2022 11:31
Ósáttur við spilakassa sem átti að hafa haft af honum talsverða fjármuni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til á veitingastað í miðbæ Reykjavíkur í nótt vegna viðskiptavinar sem hótaði starfsfólki og neitaði að yfirgefa veitingastaðinn. Innlent 5.7.2022 06:18
ÓX fékk Michelin-stjörnu og DILL hélt sinni Tilkynnt var um það rétt í þessu að veitingastaðurinn ÓX á Laugavegi í Reykjavík hefði hlotið hina eftirsóttu Michelin-stjörnu. Veitingastaðurinn DILL hélt sinni stjörnu. Matur 4.7.2022 16:51
Borgarstjóri sendir samúðarkveðjur til Kaupmannahafnar Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, sendir Sophie Hæstorp Anderson, borgarstjóra í Kaupmannahöfn, innilegar samúðarkveðjur vegna skotárásarinnar sem átti sér stað í verslunarmiðstöðinni Field‘s í Kaupmannahöfn í gær. Innlent 4.7.2022 15:15
Sendi barnsmóður sinni ógnandi skilaboð Karlmaður var á dögunum dæmdur í tólf mánaða fangelsi fyrir ítrekuð brot gegn blygðunarsemi fyrrverandi sambýliskonu sinnar og barnsmóður, hótanir og brot í nánu sambandi með því að hafa sent henni móðgandi smáskilaboð. Innlent 4.7.2022 14:24
Fjórfalda flotann og hlakka til að láta Hopp „svitna aðeins“ Rafhlaupahjólaleigan ZOLO færir nú út kvíarnar og fer heildarfjöldi hjóla hjá fyrirtækinu úr 250 í þúsund. Þá hefur fyrirtækið stækkað umsvifasvæði sitt, sem nær nú í Kópavog, Breiðholt, Árbæ og Grafarvog, en áður hafi félagið haldið sig miðsvæðis í Reykjavík. Framkvæmdastjórinn segist hlakka til að láta keppinautana „svitna aðeins.“ Viðskipti innlent 4.7.2022 11:30
Töluvert af líkamsárásum yfir helgina og vopn notuð í einhverjum tilfellum Þrjár stórfelldar líkamsárásir áttu sér stað í höfuðborginni á aðfaranótt sunnudags. Mikið álag var hjá lögreglunni um helgina þar sem hátt í tvö hundruð mál voru skráð. Innlent 4.7.2022 09:57
Maður sagður hafa staðið á öskrinu í Grafarvogi Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu barst í nótt tilkynning um tilraun til ráns á veitingahúsi í miðbæ Reykjavíkur þar sem maður var sagður hafa ógnað starfsfólki með hníf. Hann var handtekinn stuttu síðar og vistaður í fangageymslu. Innlent 4.7.2022 06:26
Þrjár stórfelldar líkamsárásir í nótt Alls voru 87 mál skráð í gærkvöldi og nótt hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Átta gistu í fangageymslu í nótt en tilkynnt var um tíu líkamsárásir, þar af þrjár stórfelldar. Innlent 3.7.2022 07:37
Bruni í Grafarholti Eldur logaði við hitaveitutankana í Grafarholti fyrr í kvöld. Mikill reykur lagðist yfir hverfið og sást reykmökkurinn víðsvegar um borgina. Búið er að slökkva eldinn að mestu leiti. Innlent 1.7.2022 20:15
Áframhaldandi gæsluvarðhald vegna manndráps í Barðavogi Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið öðrum manni að bana í Barðagerði í byrjun mánaðar hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald. Innlent 1.7.2022 17:53
Lýsir aðdraganda þess að Ezra Miller tók hana hálstaki á Prikinu Konan sem bandaríski leikarinn Ezra Miller tók hálstaki á Prikinu í apríl 2020 hefur tjáð sig um atvikið og aðdraganda þess. Innlent 1.7.2022 08:11
Ómetanlegt að fagna fjörutíu ára afmælinu Fjörutíu ár eru í dag síðan starfsemi hófst á Hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum í Reykjavík. Heimilismenn, starfsfólk og gestir fögnuðu afmælinu við hátíðlega athöfn í garði heimilisins, þar sem boðið var upp á veitingar og fjölbreytt tónlistaratriði. Innlent 30.6.2022 20:31
Telja að bakslag hafi orðið í réttindabaráttu hinsegin fólks Sýnileikinn er sterkasta vopnið var yfirskrift samstöðufundar hinsegin fólks vegna hryðjuverkaárásarinnar í Osló sem haldinn var á Austurvelli í dag. Talsmenn fundarins telja að bakslag hafi orðið í réttindabaráttu hinsegin fólks. Innlent 30.6.2022 20:00
Mikil vinna framundan áður en nýja hverfið rís Þrjú hundruð og sextíu íbúðir munu rísa í nýju hverfi við Leirtjörn í Úlfarsárdal en mikil vinna er framundan við deiliskipulag. Formaður borgarráðs segir mikilvægt að ryðja land undir ný hverfi samhliða þéttingu byggðar. Innlent 30.6.2022 19:00
Engan sakaði þegar ekið var í gegnum rúðu bakarís Ökumaður ók á framhlið Mosfellsbakarís með þeim afleiðingum að tvær rúður brotnuðu og loka þurfti bakaríinu. Að sögn Hafliða Ragnarssonar, framkvæmdastjóra Mosfellsbakarís, var áreksturinn einungis óhapp og sem betur fer hefði engan sakað. Innlent 30.6.2022 15:23
Frítt í sund fyrir börn í Reykjavík og miðnæturopnanir í Laugardalslaug Frítt verður í sundlaugar Reykjavíkur fyrir börn á grunnskólaaldri frá og með 1. ágúst 2022 en borgarráð samþykkti í dag svohljóðandi tillögu menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs. Einnig var samþykkt tillaga um miðnæturopnun á fimmtudagskvöldum í Laugardalslaug frá og með 4. ágúst til áramóta. Innlent 30.6.2022 13:38
Hækka frístundastyrk um helming Borgarráð hefur samþykkt að hækka frístundastyrk í 75 þúsund krónur fyrir hvert barn þann 1. janúar 2023. Innlent 30.6.2022 13:29
Framkvæmdir í Bláfjöllum komnar á fullt Framkvæmdir við tvær nýjar stólalyftur í Bláfjöllum eru komar á fullt. Reiknað er með að önnur þeirra verði kominn í gagnið á næstu skíðavertíð. Innlent 30.6.2022 11:42
Einar tók fyrstu skóflustungu að nýjum leikskóla Fyrsta skóflustunga var tekin að nýjum leikskóla í Vogabyggð í dag við hátíðlega athöfn. Einar Þorsteinsson, sem tekur við embætti borgarstjóra að hálfu kjörtímabili liðnu, reið á vaðið og tók fyrstu skóflustungu. Innlent 29.6.2022 15:29
Seinka tímalínu framkvæmda við fyrstu lotu Borgarlínunnar Verkefnastofa Borgarlínunnar hefur ákveðið að framkvæmdalok fyrstu lotu Borgarlínunnar verði tvískipt. Áður var reiknað með að fyrsta lotan yrði tilbúin seinni hluta ársins 2025. Uppfærð áætlun gerir ráð fyrir að framkvæmdalok tvískiptrar fyrstu lotu verði 2026 og 2027. Innlent 28.6.2022 12:51
Drógu tvo vélarvana báta að landi og björguðu örmagna göngumönnum Tvisvar þurfti að kalla út björgunarskip Landsbjargar í dag, Gísli Jóns var kallaður út frá Ísafirði vegna vélarvana strandveiðibáts og Sjöfn í Reykjavík var kölluð út vegna vélarvana skemmtibáts við Viðey. Björgunarsveitarmenn þurftu einnig að bjarga örmagna göngumönnum á Sprengisandsleið og aðstoða mann sem hrasaði við Hengifoss. Innlent 27.6.2022 17:42