Reykjanesbær
3 4 5 6 7 8 9 10 11 … 35 ›
Rafmagnsofnar uppseldir: Íbúar mjög uggandi Rafmagnsofnar eru uppseldir í Reykjanesbæ. Verslunarstjóri í Múrbúðinni segist aldrei hafa upplifað annað eins, örtröðin í dag hafi verið svakaleg. Viðskiptavinur sem beið í langri röð segir þungt hljóð í íbúum. Innlent 8.2.2024 14:35
Heitavatnslaust á Keflavíkurflugvelli Heitavatnslaust er á Keflavíkurflugvelli vegna hrauns sem flætt hefur yfir heitavatnsæð við Svartsengi. Innlent 8.2.2024 13:25
Neyðarstigi lýst yfir vegna rofs á heitavatnslögn Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að virkja neyðarstig Almannavarna vegna rofs á afhendingu á heitu vatni á Suðurnesjum. Innlent 8.2.2024 13:16
„Í rauninni það versta sem gat gerst“ Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri Reykjanesbæjar er staddur á Ítalíu og fylgdist með aukafréttatíma Stöðvar 2, sér til mikillar hrellingar. Innlent 8.2.2024 12:35
Fleiri innviðir í hættu Víðir Reynisson, sviðstjóri Almannavarna segir ljóst að heitavatnsleysi á Suðurnesjum verði talið í dögum. Svartasta sviðsmyndin sem teiknuð hafi verið upp sé að rætast. Rafmagns- og kaldavatnslagnir eru í hættu á að verða undir hrauni en þær eru á talsverðu dýpi og vonast er til að þær haldi. Innlent 8.2.2024 12:25
Hraunið farið yfir heitavatnslögnina Hraunið hefur farið yfir heitavatnslögnina sem ber heitt vatn frá Svartsengi til Reykjanesbæjar, Suðurnesjabæjar, Grindavíkur og Voga. Heitavatnslaust verður í að minnsta kosti nokkra daga. Innlent 8.2.2024 12:14
Katrín uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum Forsætisráðherra er uggandi yfir stöðunni á Suðurnesjum, þar sem hraun rennur hratt í átt að heitavatnslögn. Ef allt fari á versta veg gætu Suðurnesin verið án heits vatns í tvo til þrjá daga. Innlent 8.2.2024 11:57
Biðja fólk um að lækka á ofnum og fara ekki í bað Útlit er fyrir að hraunið á Reykjanesi fari yfir stofnlögn sem flytur heitt vatn frá Svartsengi til Fitja í Reykjanesbæ á næstu klukkustundum. Gerist það verður heitavatnslaust í Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ, Grindavík og Vogum. Innlent 8.2.2024 11:12
Mögulega heitavatnslaust á Suðurnesjum eftir nokkrar klukkustundir Mikil hætta er á að hraun renni yfir hitaveituæð HS veitna í Svartsengi. Það þýðir að ekkert heitt vatn yrði á Suðurnesjum og nágrannasveitafélögum. Svartasta sviðsmyndin gæti verið að raungerast, segir forstjóri. Íbúar Suðurnesja eru beðnir um að varðveita hita á húsum og loka strax gluggum. Heitavatnsleysið myndi þó sennilega ekki standa lengur en í einn til tvo sólarhringa. Innlent 8.2.2024 10:34
Vaktin: Eldgos hafið við Sundhnúksgíga Eldgos hófst klukkan sex í morgun í Sundhnúksgígaröðinni á Reykjanesskaga. Neyðarstigi hefur verið lýst yfir vegna heitavatnsskorts á Suðurnesjum. Hraun hefur flætt yfir Grindavíkurveg, nærri afleggjaranum að Bláa lóninu, og þá hefur hraun einnig flætt yfir heitavatnslögn. Innlent 8.2.2024 06:11
Reykjanesbrautinni gæti verið lokað en ófremdarástand ólíklegt Reykjanesbrautin er á óvissustigi sem þýðir að mögulega gæti þurft að loka henni. Að sögn G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, er þó ólíklegt að vandræðaástand myndist þar líkt og hefur gerst áður. Innlent 31.1.2024 11:47
Minnast tveggja fallinna félaga Slysavarnafélagið Landsbjörg minnist tveggja fallinna félaga í færslu á Facebook-síðu sinni í dag. Það eru Frímann Grímsson og Júlíus Þór Gunnarsson sem báðir sinntu störfum fyrir Landsbjörgu. Báðir voru bornir til grafar í vikunni. Innlent 27.1.2024 14:04
Rafmagn komið aftur á Suðurnesjum Rafmagn er komið aftur á Suðurnesjum en rafmagnslaust varð í Keflavík, Ásbrú, Sandgerði, Garði og víðar fyrir um klukkustund. Innlent 25.1.2024 16:06
Rafmagnslaust eftir að eldingu laust niður á Suðurnesjalínu Íbúar í Keflavík, Njarðvík, Ásbrú, Sandgerði, Garði og víðar á Suðurnesjum hafa ekkert rafmagn sem stendur. Upplýsingafulltrúi Landsnets segir að öllum líkindum að eldingu hafi lostið niður á Suðurnesjalínu I. Innlent 25.1.2024 15:06
Ákærður fyrir að gabba lögreglu: „Höfuð ykkar og hjörtu barna ykkar munu springa“ Erlendur karlmaður hefur verið ákærður fyrir brot gegn valdstjórninni og að gabba lögreglu, með því að senda falska sprengjuhótun á stofnanir Reykjanesbæjar. Meðal stofnanna voru nokkrir leikskólar og ráðhús bæjarins var rýmt vegna hótananna. Innlent 24.1.2024 20:47
Gengur vel að aðstoða fólk með fíknisjúkdóm í apótekinu Tugir hafa nýtt sér skaðaminnkandi þjónustu í Reykjanesapóteki þar sem fólki er bæði hjálpað við að draga úr neyslu og veitt aðstoð í viðhaldsmeðferð. Lyfjafræðingur segir fyrirkomulagið hafa gefið góða raun og vill að það verði tekið upp á landsvísu. Innlent 23.1.2024 13:40
Opna þjónustumiðstöð fyrir Grindvíkinga í Reykjanesbæ Ríkislögreglustjóri, í samstarfi við Rauða krossinn og Grindavíkurbæ, mun opna þjónustumiðstöð á morgun, þriðjudaginn 23. janúar klukkan 14. Þjónustumiðstöðin verður til húsa í húsi Rauða krossins að Smiðjuvöllum 9 í Reykjanesbæ. Opnunartími verður á mánudögum, þriðjudögum og föstudögum milli klukkan 14 og 17. Innlent 22.1.2024 18:44
Giftu sig á Hlévangi svo faðir brúðarinnar gæti verið með Kara Tryggvadóttir og Eysteinn Sindri Elvarsson höfðu lengi ætlað að láta pússa sig saman. Þegar þau tíðindi bárust að brugðið gæti til beggja vona hjá föður Köru biðu þau ekki boðanna. Blásið var til brúðkaups á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ svo faðir brúðarinnar gæti fylgt litlu stelpunni sinni upp að altarinu. Lífið 20.1.2024 09:01
Dæmdur fyrir að ógna lífi dóttur, stjúpdóttur og barnsmóður sinnar Karlmaður hefur hlotið níu mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundin til þriggja ára, í Héraðsdómi Reykjaness fyrir brot gegn dóttur, stjúpdóttur og barnsmóður sinni. Í ákæru segir að maðurinn hafi ógnað lífi, heilsu og velferð kvennanna, en mörg brota hans áttu sér stað á heimili fjölskyldunnar í Reykjanesbæ. Innlent 16.1.2024 16:05
Lagði líf sitt í hættu við að reyna að bjarga manninum sem lést Eldsvoði um borð í netabátnum Grímsnesi GK555 kviknaði út frá vettlingaþurrkara í stakkageymslu bátsins. Einn lést í brunanum en einn bátsverja lagði líf sitt í hættu við að reyna að bjarga honum en tókst ekki að komast til hans. Innlent 16.1.2024 13:36
Leigubílstjórar fá ekki árskort og kostnaður gæti margfaldast Isavia hefur gert breytingar á gjaldheimtu á leigubílastæðinu við Leifsstöð. Stakt gjald fyrir innakstur á stæðið helst óbreytt en árskort standa ekki lengur til boða. Ljóst er að kostnaður leigubílstjóra sem vinna mikið við að aka fólki til og frá Keflavíkurflugvelli gæti margfaldast. Viðskipti innlent 10.1.2024 11:02
Fangar í mygluðu húsnæði í Reykjanesbæ Lögreglustöðin á Hringbraut í Reykjanesbæ er ónothæf vegna myglu og raka. Fangagangur byggingarinnar er þó enn í notkun, en hann hefur verið einangraður frá öðrum rýmum hússins. Þar er bæði átt við um aðstöðu fanga sem og lögreglumanna á fangavakt. Innlent 9.1.2024 18:31
Einn í biluðum báti og björgunarsveitin á leiðinni Viðbragðsaðilar hafa verið kallaðir út frá Garði, Sandgerði, og Reykjanesbæ vegna lítils báts sem er úti við Garðskagavita. Í bátnum er einn maður um borð. Innlent 30.12.2023 14:05
Diljá Péturs fann ástina og samdi lag um það Diljá Pétursdóttir, söngkona og Eurovisionfari, hefur fundið ástina í örmum tónlistarmannsins Róberts Andra Drzymkowski. Lífið 28.12.2023 12:44
Leita vitna að slysi sem varð í október í fyrra Lögreglan á Suðurnesjum leitar vitna að umferðarslysi sem varð í Reykjanesbæ. Slysið varð fyrir rúmu ári síðan. Innlent 26.12.2023 09:39
Nægar ástæður fyrir Willum að auglýsa stöðu Markúsar Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra mátti auglýsa stöðu forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í september síðastliðnum. Fráfarandi forstjóri stofnunarinnar stefndi íslenska ríkinu vegna ákvörðunar ráðherra og krafðist þess að hún yrði felld úr gildi. Þá vildi hann bætur frá ríkinu. Ríkið var sýknað í málinu og er niðurstaðan afdráttarlaus. Innlent 22.12.2023 12:17
Reyndi að fá fjórtán ára stúlku með sér á hótelherbergi í Reykjanesbæ Karlmaður um fertugt hlaut á dögunum átta mánaða fangelsisdóm, skilorðsbundin til tveggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að tæla fjórtán ára stúlku og peningafals árið 2021. Maðurinn var sýknaður af kröfu ákæruvaldsins sem var á þá leið að maðurinn yrði dæmdur fyrir tilraun til nauðgunar á stúlkunni. Innlent 20.12.2023 13:08
Íbúar Suðurnesja léttir en þreyttir Hljóðið í íbúum Suðurnesja sem fréttastofa náði tali af í dag var ágætt, þrátt fyrir að margir hafi verið þreyttir eftir að hafa fylgst með fréttum af eldgosi nánast í bakgarðinum fram eftir nóttu. Innlent 19.12.2023 22:52
Markús í leyfi vegna meints eineltis Markús Ingólfur Eiríksson, fráfarandi forstjóri HSS hefur verið sendur í leyfi vegna ætlaðs eineltis. Til stóð að hann myndi starfa út skipunartíma sinn sem rennur út í febrúar. Innlent 19.12.2023 17:50
Guðlaug Rakel nýr forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir hefur verið skipuð forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja (HSS) til næstu fimm ára af Willum Þór Þórssyni heilbrigðisráðherra. Fráfarandi forstjóri stendur nú í málarekstri gegn ráðherra. Innlent 19.12.2023 16:42