Umferðaröryggi

Samfélagslegur sparnaður vegna herferðar rúmlega 700 milljónir
Símanotkun við akstur minnkaði umtalsvert á síðasta ári í kjölfar herferðarinnar Ekki taka skjáhættuna. Kostnaður vegna umferðaslysa sem tengd eru símanotkun hleypur á milljörðum árlega en deildarstjóri Samgöngustofu segir vandamálið með þeim stærri í umferðinni í dag.

Engin slys á fólki þegar hjólhýsi valt
Hringvegurinn, í austurátt við Ingólfsfjall, hefur verið opnaður á ný eftir umferðarslys.

Umferðaröryggi barna í Kópavogi
Í síðustu viku hófst grunnskólinn aftur eftir gott sumarfrí. Götur bæjarins fylltust af ungum og óreyndum vegfarendum – börnum sem ganga eða hjóla í skólann, sum í fyrsta sinn án fylgdar. Þetta ætti að vera gleðistund. Í staðinn upplifa margir foreldrar kvíða: eru leiðirnar nógu öruggar?

Vegaframkvæmdir við Höfðabakka valdi bæði umferðaröngþveiti og töfum
Íbúar í Árbænum óttast að umdeildar vegaframkvæmdir við Höfðabakka leiði til mikilla tafa í umferð og öngþveitis á háannatíma. Framkvæmdirnar eru á fimm stöðum við Höfðabakka.

Keyrðu hratt á hjólreiðastíg og tóku fram úr reiðhjólamönnum á háannatíma
Á dögunum keyrðu þrír mótorhjólamenn á miklum hraða um reiðhjólastíg í Fossvogi og styttu sér þannig leið á háannatíma í síðdegisumferðinni. Lögregla segir málið litið alvarlegum augum. Formaður Landssamtaka hjólreiðamanna segir atvikið ekki einsdæmi, líkt og kom í ljós þegar fréttamaður fór á vettvang í dag.

Baðlón fær ekki að setja upp ljósaskilti við hringveginn
Byggingarfulltrúa Múlaþings var heimilt að synja fyrirtækinu Vök Baths ehf., sem rekur samnefnt baðlón, að koma upp baklýstu skilti á horni þjóðvegarins og vegarins sem leiðir að baðlóninu.

Leggja til breytingar á gatnamótum í kjölfar banaslyss
Umhverfis- og skipulagssvið og skrifstofa samgangna og borgarhönnunar leggur til að þar til ljósastýringu verður komið upp á gatnamótum Lækjargötu og Vonarstrætis verði settar upp þrengingar og gatnamótunum breytt þannig að fléttun akreina gerist fyrr. Banaslys varð á gatnamótunum fyrir tveimur árum þegar ökumaður sendibíls lést í kjölfar áreksturs við lyftara.

Logandi bíll á hvolfi í Kópavogi
Eldur logaði í fólksbíl í Kópavogi um sexleytið síðdegis. Slökkviliðið er enn á vettvangi. Á myndum af vettvangi má sjá logandi bíl liggja á hvolfi og dökkan reykmökk rísa upp úr bifreiðinni.

Vinstribeygja inn á Bústaðaveg gæti heyrt sögunni til
Til stendur að afnema ljósastýringu á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðavegar í Reykjavík. Til skoðunar er svokölluð „hægri inn og hægri út lausn“, sem myndi gera það að verkum að hvorki væri hægt að komast inn á né út af Bústaðavegi ef ekið er Reykjanesbrautina í norður. Fyrsti valkostur Vegagerðarinnar er þó brú yfir Reykjanesbraut til vinstri inn á Bústaðaveg. Enginn valkostur býður upp á vinstribeygju inn á Reykjanesbrautina af Bústaðavegi.

Lenti næstum framan á vörubíl við framúrakstur
Minnstu mátti muna að jeppi hefði lent framan á vörubíl við Grundartanga í Hvalfirði í gær við glannalegan framúrakstur.

Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall
Ekki mátti miklu muna á að harður árekstur hefði orðið á Biskupstungnabraut við Ingólfsfjall í dag við heldur glannalegan framúrakstur í mikilli umferð.

Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa!
Reykjavíkurborg hefur nú formlega hafið innleiðingu snjalltækni í stýringu umferðarljósa. Fyrsta skerfið er uppsetning snjallstýrðra gönguljósa við gatnamót Bíldshöfða og Breiðhöfða.

Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar
Síðustu aspirnar á Austurvegi, sem liggur í gegnum Selfoss, hafa verið felldar. Bæjarstjóri Árborgar segir aspirnar hafa verið felldar í þágu umferðaröryggis en í stað þeirra komi fallegur gróður.

Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg
Vegafarendur á leið um einn fjölfarnasta þjóðveg landsins, Suðurlandsveg í útjaðri Reykjavíkur, geta senn fagnað nýjum áfanga sem bætir umferðarflæði og eykur öryggi.

Klórar sér í kollinum yfir nýrri göngubrú: Margt „mjög sérstakt“ sem menn hafi búið til síðustu ár
Ný göngubrú er risin yfir Sæbraut og hafa margir skoðun á útliti hennar. Einn þeirra sem klórar sér í kollinum yfir brúnni er rithöfundurinn Andri Snær Magnason sem telur hönnunina merki um of afgerandi áhrif íslenskrar verkfræði í borgarlandslaginu. Fjölmargir leggja orð í belg.

Göngu- og hjólabrú við Dugguvog opnuð síðdegis í dag
Göngubrú yfir Sæbraut verður opnuð fyrir gangandi og hjólandi síðdegis í dag. Búið er að gera öryggisúttekt á brúnni og verða girðingar umhverfis framkvæmdasvæði fjarlægðar síðdegis í dag. Brúnni er ætlað að bæta umferðaröryggi verulega fyrir vegfarendur milli nýrrar Vogabyggðar og Vogahverfis, ekki síst fyrir skólabörn í Vogaskóla.

Hnullungur þveraði veginn þar sem banaslys varð
Grjót hrundi úr Holtsnúpi undir Eyjafjöllum í morgun og stór hnullungur fór yfir þjóðveginn. Þetta var á svipuðum stað og banaslys varð vegna grjóthruns í mars á þessu ári.

Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss
Umferðarslys varð í Laugardal í Reykjavík í gærkvöld eða nótt. Þar skemmdust þrír bílar og einn þeirra varð óökufær eftir á og var sá dreginn af vettvangi. Engin slys urðu á fólki.

Tveir leigubílstjórar sviptir ökuréttindum við Keflavíkurflugvöll
Settur yfirlögregluþjónn segir lögreglu ekki vera í neinu sérstöku átaki varðandi leigubílstjóra á Keflavíkurflugvelli. Hins vegar sé reglulegu eftirliti sinnt, og eiga leigubílstjórar það til að brjóta af sér. Tveir misstu prófið við flugstöðina í gær.

Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf
Leikarinn og skemmtikrafturinn Saga Garðarsdóttir er nú handhafi ökuréttinda í fyrsta sinn á 38 aldursári. Fyrsta ökutímann satún 25 ára og í dag stóðst hún prófið undir handleiðslu sama manns.

Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni
Konu á leið frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur í gær var sagt að hún væri bær til að aka þegar hún blés í áfengismæli lögreglu við Landeyjahöfn en var handtekin vegna gruns um ölvunarakstur eftir að hafa blásið á næsta eftirlitspósti, nokkrum mínútum síðar. Hún reiknar með hárri sekt og að missa ökuréttindin. Aðalvarðstjóri segir ökumenn alfarið ábyrga í tilfellum sem þessu og að áfengismælar gefi einungis vísbendingu um vínandamagn.

Þrettán kærðir fyrir ölvunarakstur og hundruð stöðvuð vegna hraðaksturs
Þyrluáhöfn Landhelgsisgæslunnar hefur sinnt umferðareftirliti í dag í samstarfi við lögregluna á Vesturlandi. Þrettán voru í dag sektaðir fyrir ölvunarakstur á Suðurlandi og um tvö hundruð stöðvaðir vegna hraðaksturs á Austurlandi. Umferðin um helgina hefur gengið stórslysalaust fyrir sig.

Allir blása í Landeyjahöfn
Lögreglan á Suðurlandi fylgist með umferð í Landeyjahöfn en Þjóðhátíðargestir flykkjast nú í land. Enginn bílstjóri kemst af svæðinu án þess að vera athugaður af lögreglu.

„Þetta er hættuleg helgi“
Stærsta ferðahelgi ársins, Verslunarmannahelgin, er að hefjast og umferðin á þjóðvegum landsins þegar farin að þyngjast. Forvarnasérfræðingur hvetur fólk til að vera varkárt og hafa hugann við aksturinn.

Klár fyrir Verslunarmannahelgina?
Verslunarmannahelgin er fjölmennasta ferðahátíð ársins á Íslandi. Þá leggja þúsundir landsmanna í hann, margir á leið á útihátíðir, í sumarhús eða til vina og vandamanna.

Ung stúlka varð fyrir húsbíl og hljóp af vettvangi
Lögreglan á Norðurlandi Eystra leitar að ungri stúlku sem hljóp í veg fyrir húsbíl á föstudaginn síðasta Hjalteyrargötu á Akureyri. Hún lenti á bifreiðinni og féll í götuna en hljóp svo í burt.

Keyrt á íslenska stráka á Ólympíuhátíð
Keyrt var á tvo íslenska stráka í Norður-Makedóníu þegar þeir æfðu fyrir keppni í götuhjólreiðum. Líðan þeirra er sögð góð eftir atvikum.

Litlu mátti muna: Glannalegur framúrakstur í Hörgárdal
Ekki miklu mátti muna þegar ökumaður tók fram úr öðrum á þjóðveginum fyrir norðan. Bíllinn komst aftur á sinn vegarhelming augnablikum áður en að bíll kom á fleygiferð úr hinni áttinni.

Ógnaði lífi vegfarenda og lögreglu með ofsaakstri í Hafnarfirði
Karlmaður hefur verið dæmdur í átta mánaða fangelsi vegna ofsaaksturs þar sem hann var sagður hafa stofnað lífi vegfarenda og lögreglumanna sem reyndu að stöðva hann í hættu.

Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum
Jepplingur tók fram úr öðrum bíl við Holtavörðuheiði um hádegisleytið í gær þar sem er óbrotin lína á veginum. Litlu munaði á að jepplingurinn endaði á bíl sem ók úr gagnstæðri átt. Rétt áður en bílarnir lentu saman tókst ökumanni jepplingsins að koma ökutæki sínu aftur á réttan vegarhelming.