
Fíkn

Faðir Friðfinns segist þakklátur
Kristinn Ágúst Friðfinnsson, faðir Friðfinns Freys Kristinssonar sem leitað er um þessar mundir segir engar fréttir vera af máli sonar síns. Hann þakkar fyrir skjót vinnubrögð viðbragðsaðila og kallar eftir frekari fjármagnsveitingu til þess að lögreglan megi vinna betur gegn undirheimum landsins.

Einstaklingum í uppbótarmeðferð fjölgað úr 276 í 438
Árið 2019 voru 276 einstaklingar í svokallaðri „uppbótarmeðferð“ vegna ópíatafíknar á Íslandi en árið 2021 voru þeir orðnir 438. Umræddir einstaklingar eru aðallega í þjónustu SÁÁ, Landspítala eða Sjúkrahússins á Akureyri en ávísanirnar koma aðallega frá sérfræðingum í geðlækningum.

Hefur ýmislegt að athuga við uppáskrift stórra morfínskammta til fíknisjúklinga
Landlæknir hefur ýmislegt við þá aðferðafræði að athuga sem Árni Tómas Ragnarsson læknir lýsti í aðsendri grein í Morgunblaðinu í síðustu viku. Þar greindi hann frá því að hann og fleiri læknar hefðu skrifað upp á stóra skammta af morfíni fyrir langt leidda fíknisjúklinga.

Skaðaminnkandi þjónusta
Skv. Fréttablaðinu í dag varð uppákoma á ráðstefnu SÁÁ þann 3. nóvember sl. Þar sakaði lögreglumaðurinn Guðmundur Fylkisson starfsfólk skaðaminnkunarþjónustu Rauða krossins, Frú Ragnheiði, um að þjónusta börn undir lögaldri án þess að hann, eða lögreglan, séu látin vita.

Viðhaldsmeðferðir manneskjulegar en örugg umgjörð nauðsynleg
„Við erum ekki að tengja saman einstaklinga og lækna. Rauði krossinn gerir ekki svoleiðis. Við höfum enga sérþekkingu til að gera það og höfum ekkert utanumhald til að styðja við einstaklinga í viðhaldsmeðferð.“

Fíknsjúkdómur í stærra samhengi
Fíknsjúkdómur er langvinnur sjúkdómur sem hægt er að meðhöndla. Hann má sjá fyrir sér sem róf með vægri fíkniröskun á nærendanum en fíknsjúkdóminn á fjar.

Snemmtæk inngrip í meðferð hjá SÁÁ
Á Íslandi erum við svo heppin að við sem samfélag lítum á áfengis- og vímuefnafíkn sem sjúkdóm sem á heima í heilbrigðiskerfinu. Áhrifaríkasta leiðin í meðferð þessa vanda er sú sama og í flestum heilbrigðisvanda – að grípa inní snemma. Áfengis- og vímuefnafíkn má sjá fyrir sér sem róf eða mælistiku þar sem alvarleiki vandans mælist frá vægri fíkniröskun til alvarlegs langvinns fíknsjúkdóms.

Fóru á trúnó og hittust svo á AA-fundi fimm árum síðar
Aron Mímir Gylfason, betur þekktur sem RonniGonni, og Bjarki Viðarsson, betur þekktur sem Jeppakall Doperman Rakki, hafa slegið í gegn á Twitter síðustu vikur. Þeir eru oft sagðir vera meðlimir „undirheima-Twitter“ en eru í dag báðir edrú og urðu meira að segja vinir í meðferð.

Dyngjan gefst upp og lokar áfangaheimili sínu
Áfangaheimili Dyngjunnar, hið eina sinnar tegundar sem tekur á móti og veitir konum athvarf sem koma úr vímuefnameðferð og eiga hvergi höfði sínu að halla, mun að öllu óbreyttu hætta starfsemi um næstu áramót.

Gríðarleg aukning í ræktun kókaínrunna
Ræktun á kókaínrunnum í Kólumbíu hefur aukist um 43 prósent samkvæmt nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna. Forseti landsins segir stríðið gegn eiturlyfjum vera tapað.

Var í dái í tvær vikur eftir of stóran skammt af ópíóíðum
Leikarinn Matthew Perry opnar sig um fíknina sem hann hefur verið að fást við í gegnum árin og skildi hann eftir nær dauða en lífi í viðtali við People. Eftir að hafa tekið inn of mikið magn af ópíóíðum fyrir fjórum árum síðan rofnaði ristillinn hans og endaði hann í dái í tvær vikur.

Hefur áhyggjur af vinum sínum í þungri vímuefnaneyslu á meðan borgin gerir ekkert
Heimilislausir karlmenn segja borgina ekki hafa veitt þeim nein svör eða brugðist við fyrirséðum vanda þeirra í vetur á nokkurn hátt. Þeir kalla eftir því að neyðarskýli verði opin á daginn og neituðu að fara úr einu slíku í morgun til að vekja athygli á málstað sínum.

Geðheilbrigðisstarfsmaður í lögreglubíl
Undanfarið hefur umræða um geðheilbrigðismál orðið umfangsmeiri í samfélaginu og ákall er eftir auknu aðgengi að faglegri þjónustu. Í því samhengi er mikilvægt að efla samstarf milli geðheilbrigðiskerfisins og lögreglunnar, eins og hefur þegar gefist vel víðsvegar um heiminn.

Þekkir þú Naloxone og kanntu að nota það?
Árlega látast tugir einstaklinga vegna lyfjaeitrana hér á landi. Á síðasta ári voru andlátin fleiri en nokkru sinni, en þá létust 46 einstaklingar. Algengasta lyfið sem fannst í þeim látnu voru ópíóíðinn Oxycontin og flogaveikilyfið Pregabalin. Níu þeirra látnu voru einstaklingar undir þrítugu, jafn mörg og öll þau er létust í umferðinni hér á landi sama ár.

Fleiri en tvö hundruð í lyfjameðferð við ópíóðafíkn á Vogi
Fleiri en tvö hundruð eru í gagnreyndri lyfjameðferð vegna ópíóðafíknar á Vogi þó að það sé bara með samning fyrir níutíu sjúklinga. Aldrei hafa fleiri látist hér á landi vegna ofneyslu ópíóða en í fyrra.

Spilakassarekstur Rauða krossins
Næstkomandi föstudag stendur til að fara í mannvinasöfnun á vegum Rauða krossins. Þjóðþekkt tónlistarfólk, skemmtikraftar og áhrifafólk í samfélaginu munu leggja málefninu lið.

Bindum enda á stríðið gegn vímuefnanotendum
Stríðið gegn vímuefnum er í raun stríð gegn fólki, stríð gegn vímuefnanotendum. Skylda yfirvalda er að verja fólkið í landinu en ekki fara í stríð gegn þeim.

Stofnar ný samtök og vill fara að rótum fíknivandans
Ný notendasamtök hafa verið stofnuð hér á landi til að bæta lífsgæði fíkla og berjast fyrir umbótum. Formaður samtakanna segir að nú sé þeirra tími kominn en allir beri skaða af þegar jaðarsettir hópar fá ekki mannsæmandi meðferð.

„Það er ekki óskastaða neins að búa í tjaldi í Öskjuhlíðinni“
Rusl, gamlar sprautur og tjöld heimilislausra eru algeng sjón þegar rölt er um Öskjuhlíðina. Hún hefur lengi verið eitt helsta afdrep heimilislausra sem komast ekki að í neyðarskýlum borgarinnar. Talsmaður skaðaminnkunarteymis Frú Ragnheiðar kallar eftir meira húsnæði fyrir hópinn. Framkvæmdastjóri hjá velferðarsviði borgarinnar segir húsnæðisvanda til staðar en að reynt sé eftir fremsta megni að bæta þjónustuna.

Dyngjan fullyrðir að fyrir liggi fjöldi óútskýrðra úttekta forstöðukonunnar
Að sögn lögmanns stjórnar Dyngjunnar, áfangaheimili fyrir konur sem koma úr vímuefnameðferð, liggja fyrir fjöldi óútskýrðra úttekta sem fyrrverandi forstöðukona heimilisins hefur ekki skýrt. Stjórn heimilisins hafi því fundið sig knúna til að segja forstöðukonunni upp störfum.

Forstöðukona Dyngjunnar sökuð um að maka krókinn við innkaup fyrir heimilið
Fyrrverandi forstöðukona Dyngjunnar, áfangaheimili fyrir heimilislausar konur sem koma úr áfengismeðferð og eiga sumar hvergi höfði að halla, er sökuð um að hafa farið afar frjálslega með úttektarheimildir sínar og notað til að fjármagna einkaneyslu sína.

Sorglegt að ekki hafi tekist að hemja faraldur andláta
Sorglegt er að ekki hafi tekist að koma böndum á faraldur lyfjatengdra andláta þrátt fyrir viðamiklar aðgerðir, segir yfirlæknir á bráðamóttöku. Aldrei hafa fleiri látist vegna lyfjaeitrunar en á síðasta ári.

Svona útrýmum við skipulögðum brotahópum
Nýlega lagði lögreglan hald á 100 kg af kókaíni sem voru falin í vörusendingu. Þetta er langmesta magn ólöglegra vímuefna sem hefur verið haldlagt í einu hérlendis. Þó telur lögreglan að haldlagningin hafi ekki teljandi áhrif á framboð á markaði.

„Við erum á algerlega rangri braut“: Strákarnir okkar brjótast inn og stelpurnar selja sig
Jón Steinar Gunnlaugsson fyrrverandi hæstaréttardómari segir að íslensk stjórnvöld eigi að gefa það frjálst hvaða vímuefna menn neyta; lögleiða vímuefni, með öðrum orðum. Bannstefnan hafi valdið meiri skaða en hún hefur skilað árangri.

40 prósent meintra kókaínefna innihéldu alls ekkert kókaín
Ríkisrekin rannsóknarmiðstöð þar sem neytendur eiturlyfja geta komið og látið prófa efnin sem þeir kaupa hefur nú verið starfrækt í Canberra í Ástralíu í einn mánuð en niðurstöður prófananna eru sláandi.

Stríðið er tapað
Stríðið gegn vímuefnum er tapað. Það virðist ekki skipta máli hversu miklum peningum og starfskröftum við verjum í það, einhvern veginn standa vímuefnin alltaf upp sem sigurvegarinn. Ekki einu sinni langstærsta haldlagning á kókaíni í sögunni er talin hafa nein teljandi áhrif á vímuefnamarkaðinn. Sölumenn hafa alla vega ekki miklar áhyggjur: „Það er alltaf nóg til af dópi.“

Lyfjaverslanirnar dæmdar fyrir sinn þátt í ópíóðafaraldrinum
Alríkisdómstóll hefur úrskurðað að þrjár stærstu lyfjaverslanakeðjur Bandaríkjanna þurfi að greiða 650 milljónir dala í sekt fyrir sinn þátt í ópíóðafaraldrinum í tveimur sýslum í Ohio. Umræddar keðjur eru Wallgreens Boots, CVS og lyfjaverslanir Walmart.

Bréf frá Láru: Að losna úr viðjum matarfíknar
Lára Kristín Pedersen er þrefaldur Íslandsmeistari í fótbolta, tvöfaldur bikarmeistari, hefur leikið tæplega tvö hundruð leiki í efstu deild, fyrir íslenska landsliðið og sem atvinnumaður erlendis. Allt meðfram því að glíma við matarfíkn. Í bókinni Veran í moldinni: Hugarheimur matarfíkils í leit að bata segir þessi 28 ára Mosfellingur frá baráttu sinni við þennan sjúkdóm sem er svo mörgum hulinn; leitinni að lausn, risum og föllum, skömminni sem er fylgifiskur fíknarinnar og leiðinni til bata.

OxyContin-faraldur og innlögnum á Vog fjölgar
Stöðug fjölgun hefur verið á innlögnum inn á Vog vegna ópíóíða en verðkönnun SÁÁ gefur til kynna að framboð á opíóíðum hér á landi hafi aukist síðustu ár. Lögreglan hefur haldlagt mikið af ópíóðanum OxyContin síðustu misseri og læknar á Vogi hafa áhyggjur af þróuninni.

„Mikilvægt að þetta komi allt frá persónulegum og berskjölduðum stað“
Aron Ingi Davíðsson vakti athygli sem einn af eigendum og meðlimum Áttunnar á sínum tíma. Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan þá en Aron flutti meðal annars til Los Angeles til að læra leikstjórn og handritsgerð við New York Film Academy. Nú vinnur hann að því að skrifa þáttaseríu með framleiðslufyrirtækinu ZikZak þar sem Sigurjón Sighvatsson er yfirframleiðandi en um er að ræða unglingaseríu sem kemur inn á ýmis málefni og byggir á persónulegri reynslu. Blaðamaður tók púlsinn á Aroni Inga.