Faraldur kórónuveiru (COVID-19)

Tveir heimilismenn á Grund greindust smitaðir
Tveir heimilismenn Grundar að Hringbraut hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni. Smitið má rekja til starfsmanns heimilisins sem var í vinnu í síðustu viku.

Óbólusettur Íslendingur á gjörgæsludeild
Átta sjúklingar eru nú á Landspítala með Covid-19 og þar af einn á gjörgæsludeild. Sjúklingarnir eru á aldrinum 40 til 70 ára og voru fimm þeirra lagðir inn á spítalann í gær.

Metfjöldi sjúkraflutninga í gær
„Svei mér þá ef ekki enn eitt metið sé fallið,“ þetta segir í tilkynningu sem Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu birti á Facebook í dag. Slökkviliðið sinnti alls 186 sjúkraflutningum í gær.

Hvað var það sem Meat Loaf var ekki tilbúinn að gera fyrir ástina?
Það eru margar stórar spurningar sem hvíla á mannverunni á meðan hún dvelur í þessari jarðvist.

Fimm forgangsmál í faraldrinum
Sú fjölgun smita sem orðið hefur síðustu daga er högg fyrir þjóðina sem hefur loksins notið ferðalaga og langþráðra samvista við vini og fjölskyldu í sumar og hlakkað til betra lífs eftir að hafa lagt mikið á sig og sýnt gríðarlegan samtakamátt og styrk.

ÍBV íhugar að sækja um ríkisstyrk
Formaður þjóðhátíðarnefndar segir nefndina íhuga að sækja um ríkisstyrk vegna tekjutaps ÍBV af því að fresta þurfi Þjóðhátíð annað árið í röð. Morgunblaðið greindi frá þessu í morgun.

Fjórða bylgjan og óttinn við að missa vinnuna
Nú þegar fjórða bylgjan er hafin er ekki laust við að gamalkunnur Covid-hnútur geri vart við sig hjá sumum: Mun ég missa starfið mitt? Hvernig mun vinnustaðnum mínum reiða af? Verður mér sagt upp um næstu mánaðamót? Eða í haust eða vetur?

„Það eru allar líkur að við verðum orðin appelsínugul á fimmtudaginn“
Ísland verður appelsínugult á litakóðunarkorti sóttvarnastofnunar Evrópu næsta fimmtudag, sem þýðir að strangari reglur gilda fyrir marga ferðamenn hér þegar þeir snúa aftur heim. Hertar reglur á landamærunum tóku gildi á miðnætti og nú þurfa allir ferðamenn að framvísa neikvæðu covid-prófi við komu til landsins.

Sóttvarnalæknir ræður fólki frá öllum ferðalögum nema til Grænlands
Íslendingum er ráðlagt að ferðast ekki að nauðsynjalausu til áhættusvæða í ljósi aukinna smita í löndum heims, sem í dag eru öll lönd og svæði heims nema Grænland. Þetta kemur fram í tilkynningu frá sóttvarnalækni á vef landlæknisembættisins.

„Ég ætla ekki að biðja þjóðina afsökunar“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra leggur áherslu á að gagnrýni stjórnarandstöðunnar þurfi að vera málefnaleg og standast skoðun, en það finnst henni ekki hafa gilt um alla þá gagnrýni sem komið hefur fram undanfarna daga.

Telja að innan við eitt prósent bólusettra sem smitist þurfi innlögn
Aldrei hafa fleiri greinst með kórónuveiruna innanlands og í gær eða 123 og voru 88 utan sóttkvíar. Langflestir hafa smitast af öðrum Íslendingum að sögn yfirlögregluþjóns. Ekki hefur tekist að rekja smit allra innanlands vegna gríðarlegrar fjölgunar síðustu daga.

Sex á sjúkrahúsi
Þrír voru lagðir inn á sjúkrahús í dag, til viðbótar við þrjá sem voru þar fyrir. Már Kristjánsson, yfirlæknir smitsjúkdómadeildar á Landspítala, segir engan vera á gjörgæslu.

Kemur til greina að hraðprófa fyrir stóra viðburði
Til greina kemur að nota hraðpróf í meiri mæli hér á landi, til dæmis á stórum vinnustöðum og fyrir fjölmenna viðburði, líkt og tíðkast víða um heim, að sögn landlæknis. Landspítalinn hóf að skima starfsfólk sitt með hraðprófum í dag.

Vill „mikið frelsi innanlands“ ef alvarleg veikindi reynast mjög fátíð
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra boðar mikið frelsi innanlands ef alvarleg veikindi á meðal bólusettra reynast fátíð á næstu vikum.

Voru ekki send strax í sóttkví þrátt fyrir fjölda smitaðra um borð
Mistök leiddu til þess að hluti farþega um borð í flugi frá Krít var ekki sendur strax í sóttkví þegar fjöldi útskriftarnema frá Flensborgarskólanum greindist með Covid-19.

Auddi skýtur á Nökkva Fjalar fyrir að vilja ekki bólusetningu
Fjölmiðlamaðurinn Auðunn Blöndal virðist ekki sáttur með skilaboð athafnamannsins Nökkva Fjalars Orrasonar til fylgjenda sinna þar sem hann segist hafa talið það best fyrir sína heilsu að sleppa því að fara í bólusetningu.

„Við hljótum að halda niðri í okkur andanum“
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hvetur til þess að ráðist verði í mikla bólusetningarherferð hér á landi, í senn á meðal þeirra sem ekkert bóluefni hafa fengið, þeirra sem fengu Janssen og þeirra sem eldri eru og hafa þegar fengið tvær sprautur. Sömuleiðis eigi að hugleiða alvarlega að bólusetja börnin.

123 smit greind í gær: Aldrei fleiri greinst á einum degi
Nú liggur fyrir að fjöldi innanlandsmita í gær reyndist 123 talsins eftir að farið hefur verið yfir öll sýnin sem tekin voru í gær. Tvö smit greindust á landamærunum.

Fjöldi einstaklinga með vissa litakóðun segi ekki alla söguna
Líkt og í gær eru þrír sjúklingar inniliggjandi á Landspítala með Covid-19. Enginn þeirra er á gjörgæslu. Fjórtán starfsmenn spítalans eru nú í einangrun og hefur fækkað um einn frá því í gær.

Grunsemdir um smit um borð í Kap
Vísbendingar eru um COVID-smit í áhöfn Kap VE II og þess vænst að niðurstöður skimunar leiði í ljós síðar í dag eða í kvöld hvort veikindin skýrist af veirunni eða einhverju öðru.

Fólkið sem talið er að hafi sýkst aftur var ekki bólusett
Enginn þeirra fjögurra einstaklinga sem grunað er að hafi sýkst aftur af Covid-19 eru bólusettir. Nokkuð langur tími leið frá fyrra smiti áður en smit virtist koma upp aftur.

Rakningarappið er algjör bylting sem hefur ekki enn náð fram að ganga
Hið uppfærða rakningarapp er „algjör bylting“ að sögn Jóhanns B. Skúlasonar, yfirmanns smitrakningarteymis almannavarna. Vandamálið er bara að flestir eiga eftir að uppfæra forritið í símunum sínum og ganga um með gamla og óvirka útgáfu í vasanum.

Dæmi að fólk missi af flugi vegna ófullnægjandi gagna
Talsvert er um að fólk mæti ekki með fullnægjandi gögn á Keflavíkurflugvöll og dæmi eru um að það missi þar af leiðandi af flugi sínu út, segir Arngrímur Guðmundsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum. Hann hvetur fólk til að fylgjast með þeim reglum sem séu í gildi hverju sinni, sem geti breyst frá degi til dags. Þá sé mikilvægt að ferðalangar mæti snemma í innritun því hún taki lengri tíma nú en áður.

96 greindust í gær og greining sýna stendur enn yfir
Í gær greindust minnst 96 einstaklingar innanlands með Covid-19. Ekki er enn búið að greina öll sýni frá því í gær vegna mikils fjölda sýna og getur talan því hækkað þegar líður á daginn.

Svona var 185. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis hafa boðað til upplýsingafundar klukkan ellefu í dag, þriðjudaginn 27. júlí.

Ófrískar konur kallaðar í bólusetningu vegna ástandsins
Ófrískum konum verður boðin bólusetning við Covid-19 á fimmtudaginn. Framkvæmdastjóri lækninga hjá heilsugæslunni segir að ástand faraldursins kalli á þessa ráðstöfun og hvetur konur til að þiggja bólusetninguna.

Útlit fyrir áframhaldandi aðgerðir í Sydney næstu vikurnar
Þrátt fyrir fjögurra vikna harðar samkomutakmarkanir í Nýja Suður Wales í Ástralíu greindist metfjöldi smitaðra í ríkinu í morgun, eða rúmlega 170 tilfelli og um 60 voru utan sóttkvíar.

„Við megum ekki beita þeim aðferðum sem endanlega koma okkur öllum í gröfina“
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir munu koma í ljós á næstu viku hver næstu skref í baráttunni gegn Covid-19 þurfi að vera.

Delta-afbrigðið veldur usla víða um heim
Delta-afbrigði Nýju kórónuveirunnar er skæðasta afbrigði veirunnar sem veldur Covid-19 og hefur að miklu leyti snúið baráttunni gegn faraldrinum á haus. Afbrigðið dreifist auðveldar manna á milli en bóluefni virðast veita mikla vörn gegn alvarlegum veikindum meðal smitaðra.

Ákvæði um loftræstingu fjarlægt úr sóttvarnarreglum
Búið er að gera tvær breytingar á núgildandi takmörkunum á samkomum vegna Covid-19. Önnur breytingin snýr að því að fjölda- og nálægðartakmarkanir snúi einnig að börnum og hin snýr að ákvæði um loftræstingu.