
Lífið

Hlýddu á nýjustu Hjaltalín-plötuna
Þriðja breiðskífa hljómsveitarinnar Hjaltalín, Enter 4, fór í forsölu á Tónlist.is í gær en kemur í verslanir í næstu viku.

Nýjasta viðbót Ford
Casey Legler er nýjasta karlfyrirsæta Ford fyrirsætuskrifstofunnar. Það væri ekki frásögur færandi nema fyrir þær sakir að Legler er kona.

Biophilia fyrir alla snjallsíma
Björk Guðmundsdóttir ætlar að laga Biophilia-verkefnið sitt að stýrikerfinu Android og reyna að setja það í loftið á næsta ári. Þetta þýðir að Biophilia-öppin verða fáanleg fyrir alla snjallsíma, ekki bara fyrir iPhone og iPad.

Endurhljóðblandað meistaraverk
Hljómsveitin Massive Attack var einn af kyndilberum trip-hop tónlistarinnar sem var áberandi í Bretlandi á tíunda áratugnum.

Gefur út nótnabók í stað venjulegrar plötu
Bandaríski tónlistarmaðurinn Beck hefur gefið út plötuna Song Reader. Þetta er samt engin venjuleg plata því hún hefur aðeins að geyma nótur á blöðum og eiga þeir sem lesa þær að sjá sjálfir um tónlistarflutninginn.

Handahófskennd og heillandi
Blaðamaður dagblaðsins The Irish Times gefur nýafstaðinni tónlistarhátíð, Iceland Airwaves, fína einkunn. Tónleikar Sóleyjar í Iðnó fá mjög góða dóma.

Ísland í tísku á Travel Channel
„Það var tökulið hérna í þrjár vikur í sumar. Ég eyddi með þeim hálfum degi þar sem við spjölluðu um alls konar hluti tengda Íslandi. Þar að auki mættu þeir á leiksýninguna mína How to Become Icelandic in 60 Minutes og tóku hana alla upp. Hvort þeir noti svo eitthvað af því efni veit ég ekkert um,“ segir leikarinn Bjarni Haukur Þórsson um heimsókn Travel Channel hingað til lands í sumar.

Jólasveinarnir á fullu í desember
„Fyrstu heimsóknirnar verða núna um helgina svo þeir eru byrjaðir að detta niður úr Esjunni," segir Bendt Harðarson, umboðsmaður jólasveinanna og einn eigandi Jólasveinaþjónustunnar Skyrgáms. Bendt segir bræðurna þrettán afar upptekna á þessum tíma árs en aðspurður segir hann Skyrgám gera út yfir 300 jólasveina hver jól.

Svartir dagar í Bíói Paradís
Svartir sunnudagar nefnist dagskrárliður í Bíói Paradís sem fram fer öll sunnudagskvöld. Aðstandendur Svartra sunnudaga eru Hugleikur Dagsson, Sjón og Sigurjón Kjartansson og hafa þeir staðið fyrir sýningum á myndum sem falla undir költ-flokkinn.

Réð til sín breskan hljóðversgítarleikara
Tónlistarmaðurinn Hjörtur Geirsson réð breska hljóðversgítarleikarann Nigel Cuff til að spila inn á nýjustu plötuna sína, Watch the Bird Fly (The Raven).

Samsamaði sig sjóræningjum
„Þetta er sjálfstætt framhald Indjánans. Sjóræninginn segir frá Hlemmsárunum mínum, þegar ég er á aldrinum þrettán til fimmtán ára. Í stórum dráttum segir bókin frá því þegar ég lýk barnaskóla og fer í Réttarholtsskóla. Þar varð ég fyrir miklu einelti og lenti í ákveðnum erfiðleikum, svo kynnist ég pönkinu og fer að hanga á Hlemmi,"

Útpældur bókatitill
Frosti Gnarr, sonur Jóns, hannar bókarkápu Sjóræningjans, en á henni má sjá mynd af húðflúri sem Jón fékk sér nítján ára gamall.

Hátíð helguð furðum, göldrum og gufupönki
Kjartan Yngvi Björnsson, Snæbjörn Brynjarsson og Þorsteinn Mar Gunnlaugsson eru forsprakkar Íslenska furðusagnafélagsins, sem stendur fyrir hátíð í Norræna húsinu á föstudag og laugardag þar sem furðusögum verða gerð skil.

Stuttmynd byggð á Ósjálfrátt
Leikstjórinn Kristín Eysteinsdóttir ætlar að gera stuttmynd byggða á einum kafla úr nýútkominni skáldsögu Auðar Jónsdóttur, Ósjálfrátt.

Hvað gerist þegar lífið tekur nýja stefnu?
"Verkið heitir … Og þá aldrei framar og fjallar um ákvarðanir sem fólk þarf að taka í lífi sínu og hvernig þær ákvarðanir breyta lífi þess varanlega,“ segir Steve Lorenz, höfundur eins fjögurra verka sem Íslenski dansflokkurinn frumsýnir í kvöld undir yfirskriftinni Á nýju sviði.

Jón segist vernda hagsmuni Bubba og Bítla
„Vangaveltur mínar hvað varðar þetta lag miðuðust fyrst og fremst að því að vernda hagsmuni Bubba Morthens og réttindi höfunda lagsins Across The Universe, þeirra Johns Lennon og Pauls McCartney," segir Jón Ólafsson, tónlistarmaður og framkvæmdastjóri Félags tónskálda og textahöfunda (FTT), í yfirlýsingu frá því í gær.

í Trúboðastellingar
Leikarinn Jesse Plemons, sem meðal annars hefur unnið sér til frægðar að leika í fimmtu seríu hinnar vinsælu þáttaraðar Breaking Bad, mun koma fram í prufuþætti The Missionary sem Baltasar Kormákur leikstýrir.

Gaman að vinna með mömmu
„Ég tók þátt í sýningunni með Felix Bergssyni nokkrum sinnum og þegar ég spurði hann út í sýninguna í ár voru blikur á lofti. Ég sagði við Felix að hann yrði að setja upp verkið, annars mundi ég gera það. Og úr því varð,“ útskýrir Orri Huginn Ágústsson sem fer með öll helstu hlutverk í leiksýningunni Ævintýrið um Augastein.

Mesta áskorunin var kynlífslýsingar og koddahjal
„Í ferlinu komumst við að því að það er lítil hefð fyrir koddahjali á íslensku og var það mesta áskorunin fyrir okkur,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir sem ásamt Þóru Karitas Árnadóttur hefur þýtt metsölubókina Þú afhjúpar mig eftir Sylviu Day.

Fáránlegur metnaður
Poppfræðingurinn Dr. Gunni hefur ritað sögu íslenskrar dægurtónlistar í bókinni Stuð vors lands. „Ég veit ekki hvað ætti að vera meira töff en þetta,“ veltir Dr. Gunni fyrir sér um Stuð vors lands, spánnýja bók hans um sögu dægurtónlistar á Íslandi.

Fimmtán hljómsveitir í beinni hjá KEXP
Útvarpsstöðin KEXP frá Seattle sendir út beint frá tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves og er þetta fjórða árið í röð sem hún mætir á hátíðina.

Fólk hendir sér í dansinn
Dansviðburðurinn Lunch Beat hefur slegið rækilega í gegn frá því hann hóf göngu sína í ágúst. Dans Dansviðburðurinn Lunch Beat hefur slegið rækilega í gegn frá því hann var haldinn hér fyrst í tengslum við Reykjavík Dance Festival í lok ágúst. Hópur fólks sem starfar við danslist sér um að skipuleggja viðburðinn sem á upptök sín í Svíþjóð.

Myndi skíttapa fyrir Nelson
„Mér finnst mjög gaman að mæta í tímana hans því hann er svo góður leiðbeinandi,“ segir Auður Ómarsdóttir, kærasta bardagakappans Gunnars Nelson. Þau kynntust í gegnum æfingarnar í Mjölni og hafa nú verið saman í um tíu mánuði.

Samsæri innan tískubransans
Fataval Ann Romney fær enga athygli og enginn hönnuður vill þýðast hana. Öðru máli gildir um Michelle Obama, sem er í miklu uppáhaldi.

Sjónarhornssprengja í Japan
„Þetta var alveg ótrúlegt,“ segir Haukur S. Magnússon úr rokksveitinni Reykjavík!. „Þú hefur ekki lifað fyrr en þú hefur verið á sviði með fimmtán síðhærðum japönskum stelpum að „headbanga“ við músíkina þína.“

Flengingar og BDSM misskilið
„Við vildum setja saman skemmtilega og fræðandi dagskrá um kynlíf og á sama tíma vekja athygli á félaginu okkar, Kynís,“ segir Sigga Dögg, kynfræðingur og formaður Kynís.

Kaupir kvikmyndaréttinn að krimmanum Snjóblindu
Leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn að glæpasögunni Snjóblindu eftir Ragnar Jónasson og voru samningar þess efnis undirritaðir á dögunum.

Hakka í 24 annasama tíma
Nýsköpunarviðburðurinn Music Hack day tengir saman tónlist og tækni. Hann er haldinn í fyrsta sinn á Íslandi um helgina.

Íslensku lopasokkarnir í útrás til Kanada
„Kanadabúar eru ekki hræddir við ullina þó að hún stingi smá,“ segir Birgitta Ásgrímsdóttir, sölu-og markaðsstjóri hjá prjónafyrirtækinu Varma sem nýverið hóf útrás á íslensku ullarsokkunum til Kanada.

Nóra með Himinbrim
Önnur plata hljómsveitarinnar Nóru, Himinbrim, kemur út í dag.