Umferð

Fréttamynd

Milljarður í holu­fyllingar og Einar minnti á heila­hristing Patta

Borgarráð samþykkti í dag að heimila umhverfis- og skipulagssviðs borgarinnar að hefja innkaupaferli vegna malbiksframkvæmda fyrir árið 2026. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 1.055 milljónir króna. Einar Þorsteinsson, borgarráðsfulltrúi Framsóknar, bókaði að Framsókn telji að stórauka hefði þurft framlög til malbiksviðgerða og vísaði í því samhengi til viðvarandi heilahristings vegna hola í götum, sem áhrifavaldurinn Patrekur Jaime kvartaði undan á dögunum.

Innlent
Fréttamynd

„Mjög vont veður sem mun ef­laust skapa vanda­mál“

Gular viðvaranir verða í gildi á öllu sunnan- og vestanverðu landinu á morgun og búast má við truflunum á samgöngum. Öllu innanlandsflugi Icelandair hefur verið aflýst í dag og farþegum sem eiga flug eiga til og frá Evrópu í fyrramálið verið boðið að færa sig í önnur flug.

Innlent
Fréttamynd

Segir meinta vegtolla ekki á dag­skrá

Fjármálaráðherra segir að ekki standi til að innheimta veggjöld á helstu leiðum til og frá höfuðborgarsvæðiinu með frumvarpi um nýtt innviðafélag þrátt fyrir að fram komi að það hafi verið til skoðunar í greinargerð með frumvarpinu. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins hafi sjálfur stutt vegtolla á sínum tíma.

Innlent
Fréttamynd

Ein­stefna komumegin við Kefla­víkur­flug­völl

Hluti af vegi sem liggur á milli flugstöðvarbyggingar Keflavíkurflugvallar og langtímabílastæða norðan við hana verður einstefna með framkvæmdum sem hófust í dag. Breytingarnar eru sagðar eiga að auka öryggi vegfarenda og bæta umferðarflæði.

Innlent
Fréttamynd

Holta­vörðu­heiði var lokað vegna slyss

Búið er að opna Holtavörðuheiði að nýju eftir að henn ihafði verið lokað vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar Umferðin.is. Lokunin varði í um klukkustund en á meðan var hjáleið um Laxárdalsheiði og Bröttubrekku. 

Innlent
Fréttamynd

Hval­fjarðar­göng lokuð

Hvalfjarðargöngum hefur verið lokað. Tilkynning um lokunina var birt á vef Vegagerðarinnar klukkan 16:28 en göngunum mun hafa verið lokað vegna bilaðs bíls.

Innlent
Fréttamynd

Vatnselgur undir brúnni í Ártúnsbrekku

Mikill vatnselgur hefur myndast á veginum undir brúnni neðst í Ártúnsbrekku. Vatnið er djúpt á veginum, eins og meðfylgjandi mynd sýnir glögglega. Vegfarendur þurfa að sýna varúð en töluverðar leysingar eru á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Strætó fór út­af á Holta­vörðu­heiði

Strætisvagn fór út af veginum á Holtavörðuheiði á sjöunda tímanum í dag. Björgunarsveitirnar Húnar á Hvammstanga, Blanda á Blönduósi og Heiðar í Borgarfirði voru kallaðar út til aðstoða um fimmtán manns sem voru í vagninum.

Innlent
Fréttamynd

Tækinu ekki ekið of hratt þó hraðinn segi ekki allt

Bílar í hið minnsta fimm ökumanna urðu fyrir miklu tjóni vegna snjóruðningstækis sem ók í gagnstæða átt við þá á Hafnarfjarðarvegi um kvöldmatarleytið í gær. Vegagerðin segir að málið verði kannað til hlýtar.

Innlent
Fréttamynd

Rúta lenti utan vegar

Rúta á vegum Reykjavík Excursions sem var á leið til Reykjavíkur lenti utan vegar nærri Litlu kaffistofunni síðdegis í dag. Engum varð meint af og er búið að ferja farþega rútunnar í borgina. Þetta segir Björn Ragnarsson, forstjóri fyrirtækisins, sem lýsir erfiðum akstursskilyrðum á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Hvetja fólk til að fara fyrr heim vegna veðurs

Ofankoma er mikil þessa stundina á höfuðborgarsvæðinu og þau sem hafa tök á því eru hvött til að fara fyrr heim úr vinnu. Gul veðurviðvörun er í gildi og töluverðar seinkanir eru á strætó.

Veður
Fréttamynd

„Svo sprakk rúðan og gler­brot út um allt í bílnum“

Ágúst Elí Ólafsson var hætt kominn í gær á Miklubraut þar sem hann var á leið heim úr vinnu en trjádrumbi var kastað í rúðuna hans af göngubrú við Skeifuna. Hann segist þakklátur fyrir að ekki hafi farið verr en biðlar til foreldra um að brýna fyrir börnum sínum hve hættuleg slík uppátæki séu. Hann tilkynnti málið til lögreglu, enda heyrði hann af öðru nýlegu dæmi við sömu brúna.

Innlent
Fréttamynd

Á sjötta hundrað lentu í vand­ræðum

Farþegar í á sjötta hundrað farartækja lentu í vandræðum undir Eyjafjöllum í gærkvöldi vegna skafrennings. Það var samvinnuverk að koma bílunum aftur af stað sem björgunarsveitir, Vegagerðin og bændur á svæðinu tóku þátt í.

Innlent
Fréttamynd

Vara við því að færð spillist í kvöld

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur Vegagerðarinnar, segir útlit fyrir að færð muni spillast í kvöld. Syðst á landinu stefni í hríðarveður og skafrenning og að ekki muni rofa til að gagni fyrr en upp úr hádegi á morgun.

Innlent