Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttamynd

Hvar er menningar­hús Hafn­firðinga?

Hafnarfjörður er með ríka sögu um öflugt menningarlíf. Samt sem áður vantar eitt grundvallaratriði sem flest sambærileg sveitarfélög hafa þegar byggt upp, það er menningarhús. Slíkt hús er ekki aðeins vettvangur fyrir listir og menningu, heldur hjarta samfélagsins, staður þar sem íbúar koma saman, upplifa og skapa.

Skoðun
Fréttamynd

Víðistaðatún, lykill að öflugri vetrarúti­vist í Hafnar­firði

Hafnarfjörður er einstakur bær. Hann stendur á hrauni og er umvafinn náttúru sem býður upp á ótal tækifæri til útivistar allt árið um kring. Við eigum fallegar gönguleiðir, magnaðar hraunmyndanir, langa strandlengju og græn svæði sem gera bæinn að einum besta stað landsins til að njóta hreyfingar, náttúru og samveru utandyra.

Skoðun
Fréttamynd

Að byggja fyrir fólk eða…

Í Morgunblaðinu 2. maí er stórmerkilegt viðtal við spænskan arkitekt, Rafael Campos de Pinho sem búið hefur hér á landi í 20 ár og fylgst með þeirri skipulags- og húsbyggingarstefnu sem ríkt hefur á höfuðborgar­svæðinu, einkum í Reykjavík á þessu tímabili.

Skoðun
Fréttamynd

Skyn­semi, á­byrgð og fjölskylduvæn fram­tíð í Fjarðabyggð

Sem fjölskyldumaður í Fjarðabyggð horfi ég á stjórnmál fyrst og fremst út frá daglegu lífi fólks. Ég hugsa um heimilin, börnin, atvinnuna, reikningana, þjónustuna og framtíðina sem við viljum byggja hér. Fyrir mér eiga stjórnmál ekki að snúast um flókin kerfi eða fjarlægar hugmyndir, heldur um það hvort ákvarðanir stjórnvalda geri líf fólks betra, einfaldara og öruggara.

Skoðun
Fréttamynd

Hvers vegna spyr RÚV ekki um loftslagsmálin?

Það er skemmtilegur og jafnvel gagnlegur samkvæmisleikur fyrir kjósendur að taka kosningapróf. Það þekkja allir hvernig þetta virkar – fólk svarar fáeinum spurningum, bæði almennum stjórnmálaspurningum og eins og spurningum sem snúa að þínu sveitarfélagi.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­tíðin er þeirra!

Eitt umdeildasta fyrirbæri hér á landi sem annars staðar er skólakerfið. Við virðumst geta röflað út í hið óendanlega um hvort að það eigi að kenna kynfræðslu, flagga fánum, nota síma eða spjaldtölvur, nota bókstafi eða tölustafi, og hvort að við séum að standa okkur nógu vel í PISA könnunum.

Skoðun
Fréttamynd

Frelsið til að eiga heimili

Séreignarstefnan – eða áhersla á að sem flestum sé gert kleift að eiga eigið húsnæði hefur lengi verið hornsteinn í stefnu Sjálfstæðisflokksins. Séreignastefnan er frelsisstefna. Að gera launafólki kleift að búa við fjárhagslegt sjálfstæði.

Skoðun
Fréttamynd

Regn­boga­vottun – and­leg vald­beiting?

Markmið Regnbogavottunar Reykjavíkurborgar er að gera starfsemi borgarinnar hinseginvænni og geta öll borgarfyrirtæki öðlast vottunina svo framarlega sem þau fara að fyrirmælum vottunaraðilans sem er Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar.

Skoðun
Fréttamynd

Græna, græna byltingin

Fyrr á þessu ári var ég eins og stundum áður á gangi á stígnum í Skerjafirði að njóta náttúrunnar og veðurblíðunnar. Þótt túristaþyrlur séu stundum truflandi ásamt drunum einkaþotna tekst þeim jafnan ekki að eyðileggja þá miklu náttúruupplifun sem ströndin býður upp á.

Skoðun
Fréttamynd

Hafnar­fjörður í sókn

Það er í daglegu lífi bæjarbúa sem árangur góðrar stjórnunar bæjarins sést best. Í greiðfærum götum, snyrtilegu umhverfi, öflugri íþróttaaðstöðu, góðum sundlaugum og fallegum svæðum þar sem fólk kemur saman.

Skoðun
Fréttamynd

Skólinn á að rúma okkur öll

Við í Garðabæ getum verið stolt af fagfólkinu okkar sem starfar á gólfinu í skólum bæjarins. Við sem störfum í skólunum, foreldrar í samfélaginu og starfsfólkið á skólaskrifstofunni reynum öll að mæta börnunum okkar eins og vel og við getum.

Skoðun
Fréttamynd

Eru heimgreiðslur verk­færi djöfulsins?

Hvað á foreldri að gera þegar fæðingarorlofi lýkur en ekkert dagvistunarpláss er í boði? Og hvað ætlar borgin að gera til að mæta fjölskyldum sem lenda í þeirri stöðu?

Skoðun
Fréttamynd

Allir æfa – Reykja­vík á hreyfingu

Við heyrum of oft frá foreldrum sem eru að hlaupa og skutlast á milli skóla, frístundar, æfinga og listiðkunar að kerfið vinnur ekki alltaf með þeim. Við getum gert þetta miklu betur.

Skoðun
Fréttamynd

Til kennara og for­eldra í Kópa­vogi

Mikil umræða hefur verið um grunnskólamál að undanförnu, ekki síst um námsárangur, einkunnakerfi og lesskilning nemenda. Kópavogsbær getur ekki breytt einkunnakvarða nemenda því samkvæmt lögum ber skólum að fara eftir aðalnámskrá grunnskóla.

Skoðun
Fréttamynd

Geðheilbrigðisvandi, taktu númer….

Þegar barn slasast eða veikist fær það yfirleitt viðeigandi þjónustu. En hvað grípur barn sem glímir við kvíða, depurð eða hegðunarvanda? Svarið er: biðlisti eða ekkert.

Skoðun
Fréttamynd

Ég kýs með leikskólahjartanu

Í ár ætla ég að kjósa með leikskólahjartanu. Það felur í sér að kjósa fólk sem talar fyrir hönd barna, fyrir hönd starfsfólks leikskóla, fyrir hönd foreldra. Það felur í sér að átta sig á að vandi leikskólans er margþættur.

Skoðun
Fréttamynd

Við viljum ekki Sæbrautarstokk í nýja nefnd

Nýtt deiliskipulag fyrir Sæbrautarstokk er á leið í auglýsingu eftir samþykkt borgarráðs í vikunni. Um er að ræða eins kílómetra kafla á Sæbrautinni sem verður settur í stokk frá Miklubraut og norður fyrir gatnamót Kleppsmýrarvegar og Skeiðarvogs.

Skoðun
Fréttamynd

Flokkur fólksins þorir og getur

Kjörorð Flokks fólksins hefur frá upphafi verið „fólkið fyrst og svo allt hitt.“ Meginmarkmið flokksins með þátttöku í ríkisstjórn var og er að berjast fyrir málefnum venjulegs fólks.

Skoðun
Fréttamynd

Hraðar heim

Samgöngur eru eitt stærsta hagsmunamál Reykvíkinga. Þær snúast ekki bara um götur, akreinar eða ljósastýringu. Þær snúast líka um tíma fólks. Að komast í vinnu, sækja börnin, sinna fjölskyldunni og komast heim á skikkanlegum tíma.

Skoðun
Fréttamynd

Krist­rún og Kópavogsskatturinn – opið bréf frá leikskólastjóra í Kópa­vogi

Í aðdraganda komandi sveitastjórnarkosninga hafa málefni leikskólans verið í brennidepli. Við leikskólafólk fögnum því, enda er ekki vanþörf á. Við sem höfum valið leikskólann sem okkar starfsvettvang höfum kallað eftir því um áraraðir að stjórnmálafólk láti sig fyrsta skólastigið varða og bent á að áframhaldandi útþensla á leikskólakerfinu án þess að farið verði í öflugar aðgerðir til þess að bregðast við mönnunarvanda, þrengslum í húsnæði, skorti á kennurum, miklu álagi og mikilli starfsmannaveltu er stefna sem er fyrir löngu komin í þrot.

Skoðun
Fréttamynd

Hugsum lengra en næstu kosningar

Stjórnmálin vinna á fjögurra ára kjörtímabilum, en borgir, samgöngur og börnin okkar vinna á fjörutíu árum. Það er kominn tími til að brúa þessa gjá.

Skoðun
Fréttamynd

Er byggða­stefna á Ís­landi?

Af mörgum ómerkilegum plöggum ríkisvaldsins hljóta byggðaáætlanir og aðgerðaáætlanir þeirra að vera eitt það alla ómerkilegasta. Í landi hvar leitun er að annarri eins bjögun á íbúadreifingu er niðurlægjandi fyrir landsbyggðirnar að litlum 650 milljónum sé varið í byggðamál.

Skoðun
Fréttamynd

Góð, betri, best

Við sem búum í sveitarfélaginu Árborg eigum flest sameiginlegt að hafa á einhverjum tímapunkti staðið fram fyrir því að velja okkur búsetu. Við völdum öll það samfélag sem við töldum best að tilheyra, til að ala upp börnin okkar og eldast.

Skoðun
Fréttamynd

Byrgjum brunninn í stað þess að byggja brunna

Að útrýma biðlistum virðist vera vinsælt kosningaloforð þegar kemur að málefnum aldraðra. En sjaldan er talað um það hvernig við ætlum að fara að því að útrýma biðlistum og hvaða biðlistar það eru helst sem þarf að útrýma.

Skoðun